Ský - 01.02.2007, Side 40
skautum fyrir hálfri öld. Við skiptumst á
sögum af skemmtilegum karakterum sem
settu svip á umhverfið í Kleppsholtinu,
rólegheitafólki sem var vistað á Kleppi en
fékk að ganga óheft um, enda gerði það
engum mein. Samstarfsfólki Gunnars á Zinn
Café þótt skrýtið að þarna skyldi komin
blaðamaður sem hefði þekkt bræðurna fyrir
óralöngu.
Tinsmiðurinn sem ræður ríkjum hjá Babette Schweizer er Gunnar Schweizer, hálfíslenskur. Hann tók við tingerðinni af þýskum ættingjum sínum og
hefur starfað við tinsmíðar í áraraðir. Forfeður Gunnars sem hófu tinsmíðar á
þessum slóðum fyrir rúmum tveimur öldum smíðuðu þó líklega ekki tindáta eins
og Gunnar gerir í dag. Lengi framan voru aflátsmedalíur helsta framleiðsluvaran
en kaþólska kirkjan keypti medalíurnar og seldi þær aftur syndugum til
syndaaflausnar. Með tilkomu lútherstrúar dró úr þessum viðskiptum og menn
urðu að finna sér eitthvað annað til lífsviðurværis.
Nú má sjá marga skemmtilega tinmuni hjá Babette Schweizer, ótal útgáfur af
tindátum, búsmala úr tini, kýr, kindur og hænsni og Maríu mey og helga menn er
þarna líka að finna og auk þess ölkönnur og staup úr tini.
Jólaskrautið hjá Babette Schweitzer er framleitt eftir aldagamalli hefð og á rætur
að rekja til 1850. Þar á meðal eru örþunnar tinfígúrur sem menn sækjast mjög eftir
að hengja á jólatréð, englar, jesúbörn og stjörnur auk óvenjufallegra tinkúlna. Allir
þessir listmunir eru mjög svo eftirsóttir af söfnurum.
Faðirinn tók myndir og bróðirinn skrifar bækur
Til gamans má geta þess að faðir Gunnars, Bruno Schweizer, sem ferðaðist um hér
á landi fyrir stríð, tók mikið af myndum af búskaparháttum og mannlífinu yfirleitt.
Þær eru ómetanleg heimild um lífið hér á landi á þeim tíma og margar þeirra má
skoða í bókinni Úr torfbæjum inn í tækniöld sem kom út fyrir nokkrum árum.
Helgi Schweizer, rithöfundur og heimspekingur, er bróðir Gunnars. Helgi
hefur skrifað bókina Um gildi hlutanna sem er frásögn af dvöl hans að Heiðarseli á
Síðu, en þar var hann sex sumur í bernsku, og frá þeim bæ var einnig móðir þeirra
bræðra, Þorbjörg Jónsdóttir Schweizer hjúkrunarkona. Bókin Um gildi hlutanna
er m.a. merkileg vegna þess að hún er skrifuð bæði á íslensku og þýsku. Önnur
síðan er á þýsku og hin á íslensku og gagnast því sama bókin báðum þjóðernum
jafnt til aflestrar. Í haust kom út önnur bók eftir Helga, sem tengist Íslandi, Andi
Anders Welt, heitir hún. Þar er að finna smásögur sem eiga uppruna sinn á Íslandi
og þar kemur meira að segja Óli blaðasali við sögu. Þessi bók er á þýsku.
Babette Schweizer og Zinn-Café, lítill og notalegur kaffistaður, eru í húsi
fjölskyldunnar að Herrenstrasse 17 í Diessen og þangað er ráð að bregða sér ef
menn eru á ferð í München eða í Bayern yfirleitt.
TINSMIÐURINN OG
RITHÖFUNDURINN MEÐ
RÆTUR Á ÍSLANDI
Tinmunafyrirtækið Babette Schweizer í Diessen í Suður-
Þýskalandi á sér langa sögu. Það var stofnað um jólaleytið
árið 1796 og hefur framleiðsla þess alla tíð síðan tengst
kaþólskri trú, jólum og kannski ekki síður styrjöldum. Í
þessari litlu tinmunagerð eru nefnilega framleiddir ekta
tindátar sem hafa mikið söfnunargildi, m.a. vegna þess
að þeir eru „klæddir“ í búninga ákveðinna hersveita og
stríðsmanna frá þekktum styrjöldum sem lesa má um í
sögubókum.
40 ský
Helgi með bókina Um gildi hlutanna.
Íslendingar í Bæjaralandi
Nýjasta bók Helga, smásögur sem gerast
á Íslandi.