Ský - 01.02.2007, Side 46
Tækni- og verkfræðideild er stærsta deild Háskólans í Reykjavík. Helsta hlutverk
hennar er að veita afburða háskólamenntun
fyrir tæknifólk og stjórnendur framtíðar,
stunda öflugar rannsóknir og sinna
nýsköpunar- og þróunarstörfum í tæknifræði,
tölvunarfræði, verkfræði og iðnfræði sem
er 45 eininga diplómanám á háskólastigi..
Tækni- og verkfræðideild býður einnig
upp á nám í frumgreinum. Markmið náms
á frumgreinasviði er fyrst og fremst að
undirbúa nemendur fyrir frekara nám í
deildinni. Markmið náms á frumgreinasviði
er fyrst og fremst að undirbúa nemendur
fyrir frekara nám í deildinni og þá sem
þurfa að bæta við sig námi í stærðfræði og
raungreinum. Að auki býður tækni- og
verkfræðideild upp á fjölbreytta möguleika á
símenntun á fagsviðum hennar. Námsbrautir
tækni- og verkfræðideildar eru fjölmargar og
ættu því flestir nemendur að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi, hvort sem hugur þeirra
stefnir á hátæknifyrirtæki, fjármálamarkað,
byggingariðnað, rekstur og stjórnun eða til
frekara náms. Rannsóknir eru mikilvægur
þáttur í starfsemi deildarinnar sem undirstaða
kennslu og til sjálfstæðrar þekkingarleitar og
er rannsóknarstarf í tækni- og verkfræðideild
unnið í samstarfi við fyrirtæki og stofnanir
hér á landi og erlendis.
KYNNING: HÁSKÓLINN Í REYKJAVÍK
Háskólinn í Reykjavík býður fjarnám og háskólanám með vinnu (HMV) í tölvunarfræði, sem er sérstaklega hannað fyrir
einstaklinga sem vilja stunda fullgilt háskólanám í tölvunarfræði
samhliða vinnu. Elín Jónína Jónsdóttir er að ljúka slíku námi:
„Ég er viðskiptafræðingur að mennt og bý í Bolungarvík,
sem kannski er ekki besti staðurinn á landinu ef þú ætlar að
stunda háskólanám, en fjarnámið á sér engin landamæri. Mig
TÆKNI- OG VERKFRÆÐIDEILD
HÁSKÓLANS Í REYKJAVÍK
Ofanleiti 2 • Höfðabakka 9 • Kringlunni 1
Sími 599 6200 • www.hr.is
Elín Jónína Jónsdóttir, viðskiptafræðingur,
er að ljúka diplóma í tölvunarfræði við
Háskólann í Reykjavík í fjarnámi
ALVÖRU NÁM SEM KALLAR Á
SKIPULAGNINGU Á TÍMA
Elín Jónína Jónsdóttir, sem býr í Bolungarvík, segir marga kosti
við fjarnám fyrir þá sem búa úti á landi.
46 ský