Ský - 01.02.2007, Síða 48
48 ský
ÁTJÁN
HETJUR
Hvaða Íslendingar hafa breytt eða eru að breyta
Íslandssögunni? Hverjir þora að gera eitthvað nýtt,
sigla gegn straumnum? Í fjórða tölublaði
Iceland Review í fyrra valdi ritstjórnin átján „hetjur“
af ýmsu tagi. Um slíkt val má alltaf deila og lesendur
geta valið sínar eigin hetjur, skipt út og bætt við.
Sigríður Tómasdóttir
Næstum 80 árum áður en fólk fór að leggja í aðgerðir fyrir umhverfið (Julia Butterfly Hill
bjó í tré í 738 daga til að bjarga skógum í Kaliforníu) barðist Sigríður Tómasdóttir ötullega
fyrir því að bjarga einni mestu náttúruperlu Íslands, Gullfossi, frá því að vera virkjuð. Með
hjálp lögfræðings síns, Sveins Björnssonar, síðar forseta, bauð hún þeim ríku og máttugu
birginn til að bjarga fossinum í túnfæti fjölskyldunnar - einum vatnsmestu fossum Evrópu. Í
hita baráttunnar sem hún háði ein hótaði hún jafnvel að fleygja sér í hyldýpið - en sem betur
fer þurfti hún þess ekki.
Guðlaugur Friðþórsson
Sagan af Guðlaugi Friðþórssyni
sem synti fimm kílómetra í Norður-
Atlantshafi og lifði af, hljómar eins
og atriði úr Hollívúdd-hasarmynd
– en er samt sönn saga. Þann 11.
mars 1984 fékk báturinn Hellisey
á sig brotsjó sex kílómetra austur
af Vestmannaeyjum. Fimm menn
voru um borð. Eftir að horfa upp á
félaga sína farast áttaði Guðlaugur
sig á að hann ætti um tvennt að
velja: að sökkva eða synda. Og hann
synti ... og synti ... og synti. Þegar
hann hafði farið þriðjung leiðarinnar
fór bátur framhjá honum í um 100
metra fjarlægð. „Ég öskraði eins
og ég gat en þeir heyrðu ekki neitt
í niðamyrkrinu,“ sagði hann í viðtali
við Morgunblaðið viku eftir slysið.
Eftir fimm klukkustundir komst
hann á land og varð þá að ganga í
þrjá tíma berfættur yfir nýtt hraun
áður en hann náði að vekja menn.
Guðlaugur er enn á lífi.
Hetjur
fi‡tt úr Iceland Review