Ský - 01.02.2007, Side 54
54 ský
Stefán Jónsson útskrifaðist sem leikari frá Guildhall School of Music and Drama í London árið 1989 og lék í kjölfarið
veigamikil hlutverk í mörgum leikritum hjá
Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu. Hann
heillaðist þó fljótlega af leikstjórn og hefur
starfað við hana undanfarin ár við afar góðan
orðstír.
Hann var valinn leikstjóri ársins fyrir Kvetch,
þegar Gríman var veitt í fyrsta sinn árið 2003,
og var einnig tilnefndur til sömu verðlauna
fyrir Sporvagninn Girnd, Héra Hérason og
Forðist okkur. Ekki síður er hann þekktur
fyrir leikstjórn sína á verkunum Draugalest,
Terrorisma, Sekt er kennd og Belgísku Kongó.
Í fyrra fór Stefán fyrir hópi sem setti
upp leikritið Forðist okkur eftir Hugleik
Dagsson í Þjóðleikhúsinu við gífurlegar
vinsældir og á næstunni verður frumsýndur
vísindasögusöngleikur eftir sama höfund sem
nefnist Leg. Verkið varð til upp úr vinnu og
samstarfi Stefáns og Hugleiks í Forðist okkur.
Við hjá Skýjum tókum leikstjórann tali til
að forvitnast frekar um nýja söngleikinn sem
verður frumsýndur á Stóra sviði Þjóðleikhússins
í byrjun mars.
„Já, ákveðið var að halda þessu frábæra
samstarfi áfram og búa til söngleik þar sem
söguþráðurinn er Ísland framtíðarinnar og
gerist í kringum árið 2020. Þá er allt búið
að keyrast í botn. Okkur finnst kannski nóg
komið nú þegar en þarna er kapítalisminn
búinn að éta allt upp og það er búið að virkja
allt; auðlindir okkar fullnýttar og náttúran
horfin, veruleikinn er sýndarveruleiki. Leg er
sannarlega nöpur sýn á heiminn en á sama
tíma sprenghlægilegt stykki. Sagan segir frá
Kötu, óléttri stelpu í Garðabænum, sem er í
þann mund að klára stúdentspróf og er í miklu
veseni með sjálfa sig. Það má segja að Kata sé
eins konar tákngervingur þessa framtíðarlands
í gegnum allt verkið. Íslenska þjóðin er þá
í raun misnotaður unglingur sem á nóg af
peningum en lítið af viti og hefur gleymt
sér í umbúðakapphlaupinu. Plasmasjónvarpið
er orðið stærsta húsgagnið á heimilum
framtíðarinnar, allt er hátæknivætt og mannleg
samskipti orðin gersneydd allri „mennsku“.
Útlitið, gróðinn og partíið er það sem skiptir
máli. Í innra plottinu fléttast saman myrk öfl
sem stefna að heimsyfirráðum og ástand mála
á Íslandi rímar vel við það plan.
ÍSLAND
FRAMTÍÐARINNAR?
Leg-ið hans Hugleiks / Stefán Jónsson leikstjóri
Texti: Hrund Hauksdóttir Mynd: Geir Ólafsson
Leikhús
Stefán Jónsson við Þjóðleikhúsið.