Ský - 01.02.2007, Qupperneq 55
ský 55
Það er Dóra Jóhannsdóttir sem leikur
Kötu en í öðrum hluverkum eru: Halldóra
Geirharðsdóttir, Kjartan Guðjónsson, Edda
Björg Eyjólfsdóttir, Stefán Hallur Stefánsson,
Atli Rafn Sigurðarson, Katla Margrét
Þorgeirsdóttir, Friðrik Friðriksson, Jóhannes
H. Jóhannesson, Valur Freyr Einarsson og
Elma Lísa Gunnarsdóttir. Sviðsmyndin og
búningahönnunin er í leiknum höndum
Ilmar Stefánsdóttur og Þórunnar Sveinsdóttur.
Sveinbjörg Þórhallsdóttir semur dansana og
snillingarnir í Flís tónlistina. Björn Bergsteinn
er með lýsinguna og Gideon Kiers sér um
myndvinnslu. Þetta er frábær hópur.“
Höfðar verkið meira til yngri áhorfenda en
hins „klassíska“ hóps leikhúsgesta?
„Hugleikur Dagsson er náttúrlega elskaður
og dáður af yngri kynslóðum okkar og hans
svarti, beinskeytti húmor. Mér finnst hann þó
standa fyrir miklu meira en það; hann er ekki
bara strákur með dónahúmor heldur er hann
er sérlega glöggskyggn á þjóðfélagsástandið og
hvernig heimurinn er orðinn. Hugleikur hefur
líka sérstæðan og skemmtilegan bakgrunn
þar sem hann hefur mikið lifað og hrærst
í vísindaskáldsöguskap og teiknimyndum.
Framtíðarpælingar eru alveg á hans línu.
Okkur tókst einmitt með verkinu Forðist
okkur að fá í leikhúsið yngri og um leið nýjan
hóp áhorfenda sem var mikið gleðiefni. En
þrátt fyrir það kom einnig mikið af fólki
úr hinum hefðbundna áhorfendahópi sem
skildu vel boðskapinn og hina myrku sýn á
samtímann. Okkar vonir standa til þess að hið
sama gerist með Legi. Sýningin er vissulega
óhefluð og kannski ekki fyrir viðkvæmustu
sálir, nema kannski þá sem fá „kikk“ út úr því
að láta ganga fram af sér og væla svo yfir öllu
saman á eftir!
Það er búið að vera frábært að vinna með
Hugleik en vinnutíminn í kringum að setja
upp svona sýningu er mjög langt ferli og við
byrjuðum fyrir um ári. Sjálfar æfingarnar eru
nýhafnar og það er virkilega gaman að sjá
þetta verða til á sviðinu. Fólk gerir sér oft ekki
grein fyrir hversu mikil vinna liggur að baki
verkunum sem það sér í leikhúsi. Oft gefum
við okkur heldur ekki nægan tíma til að hugsa
og þróa verkefnin í leikhúsinu heldur látum
færibandið, sem aldrei stoppar, ráða ferðinni.
Í þessu tilfelli hefur undirbúningurinn
verið góður, sem er lúxus, því þetta er flókin
uppsetning.“
Hvers vegna söðlaðir þú um og fórst í
leikstjórnina?
„Fyrir mér var það einfaldlega eðlileg þróun. Ég
er menntaður leikari en þjáðist af þorsta í meiri
næringu heldur en leikarastarfið veitti mér á
sínum tíma og hef aðallega verið að leikstýra
á undanförnum árum. Ég byrjaði á því að
leikstýra í framhaldsskólum, sem gekk bara
vel, og fékk svo frekara tækifæri með leikritinu
Kvetch sem hlaut mörg Grímuverðlaun og
það hvatti mann til frekari dáða. Þetta er
annar veturinn sem ég er leikstjóri núna
við Þjóðleikhúsið en ég leikstýrði tveimur
sýningum þar í fyrra, Túskildingsóperunni
og Fagnaði eftir Harold Pinter. Þar áður var
ég tvö ár í Borgarleikhúsinu með margar
sýningar, m.a. Belgísku Kongó eftir Braga
Ólafsson, sem enn gengur. Hann er mjög
gott leikskáld og ég vona að meira eigi eftir
að koma frá honum. Annars má segja að
Hugleikur, sem ég er að vinna með núna, sé
uppáhaldsleikskáld mitt um þessar mundir.
Mér finnst hann ansi lunkinn og koma með
stórskorið og spennandi hráefni þar sem hægt
er að beita öllum áhrifamætti leikhússins. Verk
hans eru svo myndræn enda á hann rætur í
kvikmyndunum og skrifar mjög skemmtilegar
senur. Jón Atli er líka mjög flott leikskáld og er
hátt skrifaður hjá mér.
Ég fylgist einnig grannt með því sem
kollegar mínir eru að gera erlendis og þegar
mig vantar meiri næringu sæki ég hana - mest
til London og Þýskalands. Ég reyni að fara
tvisvar á ári í víking, fer þá mjög mikið í
leikhús og dreg andann, sem er oft erfitt hér í
smæðinni.“
Einhver áhugamál utan leikhússins?
Stefán brosir hugsi. „Þetta starf gleypir mann
með húð og hári. En fyrir utan brennandi
áhuga á leikhúsi þá er mitt áhugamál að njóta
þess að vera með fjölskyldunni þegar ég er ekki
í vinnunni.“
Bætir svo við eftir smáumhugsun:
„Svo finnst mér voða gott að fara út í
náttúruna og veiða á flugu þegar ég get.“
Fólk klykkir oft út með klisjunni: „Það er alltaf
svo gaman að fara í leikhús!“ Eru það alltaf
sannindi?
„Það er fátt verra en lélegt leikhús,“ segir Stefán.
„Það er m.a. vegna þessarar líkamlegu nálægðar
sem við upplifum í leikhúsinu. Íslendingar eru
líka aldir upp við að láta bjóða sér allt þegjandi
og hljóðalaust. Svo má til sanns vegar færa að
leikhúsin okkar eru að ákveðnu leyti markeruð
af smæðinni og stuttum menningarrótum.
Þetta er svolítið eins og íslenska veðráttan -
stundum finnst manni uppblásturinn fullmikill
og það fennir hreinlega yfir allt. Mér finnst
menningarpólitíkin ekki vera mjög þroskuð hér
á landi. Við viljum vera mikil menningarþjóð
í orði en viljinn er oft steinsteyptur, þ.e. við
reisum húsin en hugsum ekki um hvað þarf
til að reka þau. Áherslan er á umbúðir en
ekki innihald. Í slíku landslagi er auðvelt
að grípa til frjálshyggjunnar ef illa gengur
og vilja selja allt draslið. Menningarstefnan
er rekin áfram á þann hátt að yfirvöld stóla
á hugsjónir og fórnfýsi listamannanna sem
vinna á hræðilegum launum og undir miklu
álagi. Þetta er amatöraarfleifðin. Ég held þó
að skilningurinn sé að aukast með nýju fólki.
Erlenda samhengið skiptir þá máli því þá fyrst
virðast menn sjá hlutina í „nýju“ ljósi, sbr.
„Björk-orðin-fræg-úti-syndrómið“. Þá er oft
hlaupið til og listamönnum veitt gæðavottorð
lýðveldisins. Svona menningarvitund kemur
að sjálfsögðu niður á rekstri og skipulagi
leikhúsheimsins.
Leg-ið hans Hugleiks er hrátt og fyndið
en í því er jafnframt broddur sem stingur á
samfélagslegum kýlum og það spyr okkur
hvers konar framtíðarland við viljum. Og svo
trúi ég að tónlistin eigi eftir að gleðja marga.
Það leikur enginn vafi á því að Hugleikur
Dagsson er ferskur sviptivindur íslensku
leikhúsi og hreyfir við okkur öllum.“
„Við viljum vera mikil
menningarþjóð í orði en
viljinn er oft steinsteyptur,
þ.e. við reisum húsin en
hugsum ekki um hvað þarf
til að reka þau. Áherslan er á
umbúðir en ekki innihald.“
„Íslenska þjóðin er þá í raun
misnotaður unglingur sem
á nóg af peningum en lítið
af viti og hefur gleymt sér í
umbúðakapphlaupinu.“
Leikhús
sky
,