Ský - 01.02.2007, Síða 56

Ský - 01.02.2007, Síða 56
 56 ský Lögreglan og þjónustumiðstöðvar Reykjavíkur-borgar hafa hleypt af stokkunum verkefni á sviði nágrannavörslu. Hugsunin sem þar liggur að baki er að nágrannar líti til hver með annars eigum, fylgist með grunsamlegum mannaferðum og geri lögreglu viðvart ef þeir telja ástæðu til. Samkvæmt erlendri reynslu felst mikil forvörn í slíku, til dæmis gagnvart innbrotum og þjófnuðum, og er sú reynsla sem hér á landi hefur fengist af verkefninu, sem nær til allra hverfa borgarinnar, afar góð. Leiðtogi í hverfinu „Aðild okkar hjá Reykjavíkur- borg að verkefninu er sú að við leiddum íbúana saman og héldum fræðslufund með þeim um með hvaða hætti þeir gætu staðið saman um nágrannavörsluna Úr þeirra hópi var valinn eins konar leiðtogi, sem er tengiliður við viðkomandi þjónustumiðstöð borgarinnar og lögregluna. Þá voru sett upp skilti við enda gatnanna með merki nágrannavörslunnar og allir íbúar fengu límmiða til að setja í glugga og segul á ísskáp. Það er mikil ánægja með þetta fyrirkomulag, sem hefur það inntak að gera fólk meðvitað um umhverfi sitt,“ segir Þráinn Hafsteinsson hjá Þjónustumiðstöð Breiðholts í Álfabakka 12 í Mjódd, sem er þar í sambýli við hverfisstöð lögreglunnar. Saman vinna þessir aðilar að mörgum verkefnum í hverfinu, ekki síst á sviði á sviði forvarnamála í víðustu merkingu. Oftast brotist inn í blokkir og bíla „Hættan á innbrotum er ekki meiri á einum tíma frekar en öðrum. Hins vegar hvetur lögreglan fólk til þess, til dæmis fyrir páska og sumarleyfi, að gæta vel að eigum sínum, með því að hafa ljós kveikt, tæma pósthólf reglulega og svo framvegis. Það hefur gefið góða raun. Tíðni innbrota ræðst meðal annars af því hvort þeir síbrotamenn sem lögreglan þarf svo oft NÁGRANNAVARSLA GEFUR GÓÐA RAUN Að fólk sé meðvitað um umhverfi sitt er inntak verkefnis á sviði nágrannavörslu sem Reykjavíkurborg og Lögregla höfuðborgarsvæðisins standa að. Fólk lítur til hvert með annars eigum – og kynnist um leið. Texti: Sigur›ur Bogi Sævarsson Mynd: Geir Ólafsson Löggæsla

x

Ský

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.