Ský - 01.02.2007, Síða 58
58 ský
EJS hf. er eitt öflugasta fyrirtæki landsins
á sviði upplýsingatækni og nær þjónusta
EJS til flestra hliða nútíma upplýsinga-
og samskiptatækni. Fyrirtækið rekur tvær
starfsstöðvar. Höfuðstöðvar þess eru á
Grensásvegi 10 í Reykjavík og útibú er
á Tryggvabraut 10 á Akureyri. Rekstur
fyrirtækisins skiptist í fjögur svið.
Lausnasvið EJS býður viðskiptavinum
uppá þjónustu við alla upplýsingatæknilega
innviði með sérstakri áherslu á þarfir stórra
fyrirtækja, þar sem kröfur til miðlægra
kerfa eru miklar og flóknar. Viðskiptavinir
lausnasviðs fá sérsniðna þjónustu að sínum
þörfum. Sérfræðingar lausnasviðs eru til
ráðgjafar í nethögun, Microsoft lausnum,
öryggislausnum, gagnalausnum og IP
símkerfum.
Búnaðarsvið EJS býður búnað frá
leiðandi fyrirtækjum í upplýsingatækni. Sem
dæmi má nefna Dell, EMC, Xerox, SUN,
Lucent/Alcatel, Cisco og svo mætti lengi telja.
Hugbúnaðarlausnir eru einnig mikilvægur
þáttur og þar eru samstarfsaðilar EJS t.d.
Microsoft, Citrix, Trend Micro,VMware,
Altiris o.s.frv. Þjónustumenn búnaðarsviðs
sinna almennum uppsetningum á útstöðvum
og allri viðgerðarþjónustu. Einnig eru á
sviðinu afgreiðslukerfa og hraðbankadeild.
Fjármálasvið EJS heldur utan um
fjárreiður, bókhald, innkaup og birgðahald
ásamt gæðamálum. Fjármálasvið aðstoðar
við gerð og endurskoðun fjárhagsáætlana
og þegar áætlanir hafa verið samþykktar ber
sviðið ábyrgð á að þeim sé framfylgt.
Sverrir Hákonarson er sérfræðingur hjá
EJS í öryggishugbúnaði og í viðtali við hann
greindi hann frá þeim hættum sem steðja að
hugbúnaðinum hjá einstaklingnum og hvað
skal varast:
„Þegar verið er að ræða um öryggi í tölvum
sem einstaklingurinn notar, þá viljum við
verja tölvuna okkar frá ákveðnum hættum,
við viljum verja okkur fyrir amapósti og
óæskilegum pósti, og við viljum halda okkar
persónulegu upplýsingum leyndum. Þessum
þáttum er að stórum hluta hægt að verjast
án þess að eyða miklum peningum í vörur
þar sem mikið af þessu snýr að hegðun
notandans.
Við höfum hingað til eingöngu boðið
fólki vörur sem hjálpa því að leysa hluta af
þessum vandamálum, en munum örugglega
fara meira út í að aðstoða fólk við að gefa því
góð ráð. Það hefur orðið æ meira áberandi í
umræðunni að einstaklingurinn þarf að taka
ákveðin skref til að verjast og vil ég í því
sambandi benda á www.saft.is, sem Heimili
og skóli reka ásamt samstarfsaðilum. Þar er
góðar upplýsingar að finna um örugga og
ábyrga notkun á Netinu.“
Að hegða sér rétt á Netinu
Sverrir segir að það þurfi að kenna,
sérstaklega börnunum okkar, að hegða
sér á Netinu: „Netið er ekkert annað en
samskiptafyrirkomulag sem þarf að kunna.
Það þykir sjálfsagt að kenna krökkunum
okkar að vera kurteis og koma vel fram
og í þjóðfélagi okkar í dag þarf einnig
að vera sjálfsagt að gefa krökkunum rétt
Netuppeldi, ef svo má að orði komast. Það
má segja að Netið dragi upp ákveðna mynd
af þjóðfélaginu. Það er nauðsynlegt fyrir
foreldra að vera vel inni í netmiðluninni
Sverrir Hákonarson,
sérfræðingur í öryggismálum hjá EJS hf.
FRÆÐSLA ER OFT
BESTA VÖRNIN
Varðandi almennt öryggi má benda á eftirfarandi atriði:
• Setja upp eldvegg
• Uppfæra stýrikerfi þegar það á við
• Setja upp vírusvörn og uppfæra hana reglulega (helst sjálfkrafa)• Nota sterk lykilorð, þ.e. löng lykilorð sem erfitt er að giska á• Setja skýrar reglur á heimilinu fyrir um Internetnotkun
Eoin Ferrer og Sverrir Hákonarson eru sérfræðingar í öryggisútbúnaði fyrir tölvur.
KYNNING: EJS