Ský - 01.02.2007, Qupperneq 66
66 ský
SVEITAPILTSINS
DRAUMUR
Að vinna stóra sigra og slá í gegn. Ótal marga dreymir um slíkt, þótt fólk geri ekki
kannski endilega uppskátt um það. Margir íslenskir rithöfundar hafa glímt við söguna
um sveitadrenginn sem flytur á mölina, en yfirgefur samt sveitina aldrei í hjarta sínu.
Enginn getur að flúið sinn fæðingarhrepp, segir í ljóðinu. Enn fleiri höfundar og það
af öllu þjóðerni hafa svo fjallað um ameríska drauminn, enda eru Bandaríkin sögð
land tækifæranna.
Guðmundur Magni Ásgeirsson, ungur sveitastrákur frá Borgarfirði eystra, hélt vestur á liðnu sumri í leiðangur, hvar honum farnaðist vel. Miklir hæfileikar og orkan
sem hann nam í hinu ævintýralega umhverfi bernskuslóða sinna
undir Dyrfjöllum varð honum gott veganesti. Í sveitinni lærði
hann að taka til hendi, hann var til dæmis ekki óvanur því að
keyra á traktor og sinna nauðsynlegum bústörfum. Iðja er auðnu
móðir, segir máltækið og í keppninni um Rock-Star Supernova,
sem sjónvarpað var um öll Bandaríkin og eins hér heima, hefur
slíkt áreiðanlega komið sér vel.
Enda sló Magni rækilega í gegn. Þúsundir Íslendinga fylgdust
heilu næturnar með Magna í Rock Star - og þótti talsvert til
koma. Í keppninni lenti hann í fjórða sæti um hver yrði söngvari
Super Nova. Öllum mátti því ljóst vera að í Magna væri góður
efniviður, enda hafði hann áður getið sér gott orð sem söngvari
sveitarinnar Á móti sól sem söng á alls konar dansiböllum hér
heima og tryllti lýðinn.
Myndin sem hér fylgir var tekin í Borgarfirði eystra árið 2001
og sýnir svolítið annan Magna en sjónvarpsáhorfendur víða um
heim sáu í fyrra. Hann er svolítið hallærislegur sveitapiltur við
dráttarvélina sína, einn af fjölmörgum sem lætur sig bara dreyma
um frægðina.
Og nú er Magni aftur floginn vestur. Rokkbandið
Supernova, þar sem hann keppti um söngvarahlutverkið í
raunveruleikaþáttunum frægu í fyrra, hefur nú fengið hann í
sínar raðir sem gítarleikara, en sveitin lagði nýverið upp í ferð
um Bandaríkin og Kanada þar sem leikið er á tæplega þrjátíu
tónleikum. Þar kemur Magni fram, ásamt félögum sínum úr
Rock Star þáttunum, og ýmsum fleiri. Þessi tónleikalota stendur
fram á vor, en þá tekur Magni að óbreyttu aftur upp þráðinn þar
sem frá var horfið með félögum sínum í Á móti sól.
En þótt frægðin sé sæl hefur Magni líka lent í mótbyr.
Frægðinni fylgir svo sem ekki eintóm sæla - og sveitapiltsins
draumur kostar fórnir.
Texti: Sigur›ur Bogi Sævarsson Mynd: Sigur›ur Jökull
Frægð
sky
,Sveitapilturinn Guðmundur Magni og dráttarvélin árið 2001.