Breiðholtsblaðið - 01.01.2006, Blaðsíða 5
Eins og frá vara skýrt í
nóvemberhefti Breiðholtsblaðs-
ins standa eldri borgarar í Breið-
holti að mikilli hátíð í lok febrú-
ar, Breiðholtshátíð- menningar-
hátíð eldri borgara 2006. Undir-
búningur er nú vel á veg kom-
inn og mun hátíðin standa í fjóra
daga víðsvegar um Breiðholtið
og verða hátíðarhöldin liður í
Vetrarhátíð Reykjavíkur.
Fatlaðir, unglingar og
eldri borgarar saman á
fimmtudegi
Að tengja kynslóðirnar samana
er eitt af markmiðum Breiðholts-
hátíðarinnar. Í þeim tilgangi
verða tvö atriðið á fimmtudegin-
um 23. febrúar. Þá munu eldri
borgarar og unglingar úr Fella-
skóla spila félagsvist í Gerður-
bergi. Í reiðhöllinni í Víðidal
munu eldri borgarar hitta fatlað
áhugafólk um útreiðar og teyma
undir þeim og gera þeim þannig
kleift að njóta návista við hrossin.
Kynslóðirnar saman,
málþing, sýningar og
fjöltefli á föstudegi
Eftir hádegi á föstudeginum 24.
febrúar verður Breiðholtshátíðin
sett formlega af frammámönnum
Reykjavíkurborgar og í kjölfarið
haldið málþing um málefni eldri
borgara. Umfjöllunarefnið verður
félagsstarf og félagsþjónusta eldri
borgara. Hvar stöndum við og
hvert stefnum við? Nokkur fram-
söguerindi verða flutt og síðan
verða pallborðsumræður. Í
tengslum við málþingið er stefnt
að því að setja af stað samstarfs-
verkefni í Breiðholtinu sem hefur
að markmiði að rjúfa einangrun
eldri borgara. Unnið er að undir-
búningi verkefnisins og þess
vænst að allir aðilar í hverfinu
sem hafa með málefni eldri borg-
ara að gera nái að stilla saman
strengi sína til að bæta þjónustu
við aldraða og efla möguleika
eldra fólks til samskipta og félags-
legs samneytis. Fyrir hádegi á
föstudeginum fara eldri borgarar
í Breiðholti í heimsókn á fjölda
leikskóla í hverfinu til að segja
leikskólabörnunum sögur. Með
þessu framlagi vilja eldri borgarar
sýna frumkvæði að meiri sam-
gangi kynslóðanna. Um hádegis-
bil á föstudeginum er stefnt að
öðru verkefni í sama tilgangi þeg-
ar stafsetningarkeppni grunn-
skólabarna og eldri borgara fer
fram sem Mörður Árnason, rit-
stjóri íslensku orðabókarinnar
mun stjórna. Þá munu grunn-
skólabörn heimsækja hjúkrunar-
heimili í Breiðholti og syngja fyrir
heimilisfólkið. Friðrik Ólafsson,
fyrsti stórmeistari Íslendinga mun
tefla fjöltefli við eldri skákmenn í
samkomusal Árskóga á föstudeg-
inum og að setningarathöfn og
málþingi loknu verða opnaðar
sýningar í Gerðubergi og í Ár-
skógum á handverki og listmun-
um sem eldri borgarar í Breið-
holti hafa unnið á undanförnum
árum.
Íþróttahátíð, Breiðholts-
lagið og skemmtidagskrá
á laugardegi
Hin árlega íþróttahátíð Félags
áhugafólks um íþróttir aldraðra
fer fram í íþróttahúsinu við Aust-
urberg eftir hádegi á föstudaginn.
Þar mun fjöldi íþróttahópa eldri
borgara sýna dans, leikfimi og
aðrar íþróttir. Á íþróttahátíðinni
verður sérstök dagskrá til heið-
urs Birni Jakobssyni fyrsta skóla-
stjóra Íþróttakennaraskólans á
Laugarvatni. Í lok íþróttahátíðar-
innar verður svo fjöldasöngur þar
sem m.a. verður frumflutt sér-
stakt Breiðholtslag en bæði lag og
texti voru samin sérstaklega
vegna hátíðarinnar. Hlé verður
gert seinni part laugardags en síð-
an verður mikil kvölddagskrá
með skemmtiatriðum. Meðal
dagskráratriða verður línudans,
kórsöngur, tónlistarflutningur,
rímur, gamanmál, hagyrðinga-
uppákoma og dansleikur í lokin.
Á kvölddagskránni er stefnt að
því að veita heiðursviðurkenning-
ar einstaklingum og eða hópum í
Breiðholti sem hafa stundað fé-
lagsstarfið af kostgæfni eða haft
frumkvæði til eflingar félagsstarf-
inu á einhvern hátt síðustu árin.
Helgistundir í öllum
kirkjum Breiðholts á
sunnudegi
Breiðholtshátíðinni líkur svo á
sunnudeginum 26. febrúar með
helgistundum í öllum kirkjum
Breiðholts sem með einum eða
öðrum hætti verða tileinkaðar
eldri borgurum.
Víðtækt samstarf um
undirbúning
Markmið Breiðholtshátíðarinn-
ar- menningarhátíðar eldri borg-
ara er að skapa vettvang fyrir
eldri borgara í Breiðholti og víðar
að til að koma saman, sýna verk
sín, list, handverk, íþróttir, rit-
verk, ræða málefni eldri borgara
og skemmta sér saman. Að undir-
búningi standa fjöldi stofnana og
félaga í Breiðholti og víðar um
borgina. Undirbúningsnefnd
skipa: Guðrún Jónsdóttir, Gerðu-
bergi, félagsstarf, Kristján Sigur-
mundsson, Árskógum, félags- og
þjónustumiðstöð, Helgi Seljan, Fé-
lagi eldri borgara í Reykjavík,
Guðrún Nielsen, Félagi áhugafólks
um íþróttir aldraðra og Þráinn
Hafsteinsson frá Þjónustumið-
stöð Breiðholts. Gera má ráð fyrir
að fjöld hópa eldri borgara víðs-
vegar að úr borginni og frá fjölda
staða utan af landi taki þátt í há-
tíðinni. Breiðholtsbúar eru hvatt-
ir til að taka þátt og sýna í verki
þann kraft sem býr í samfélaginu í
Breiðholti.
JANÚAR 2006 5Breiðholtsblaðið
Þráinn Hafsteinsson frístundaráðgjafi skrifar:
Menningarhátíð eldri borgara
í Breiðholti
Eldri og yngri borgarar taka í spil í Beiðholtinu.
Nýtt Breiðholtslag verður
kynnt á menningarhátíð eldri
borgara í Breiðholti í lok febrú-
ar. Lagið er eftir Breiðholtsbú-
ann Þorvald Jónsson en texti
eftir Helga Seljan fyrrum alþing-
ismann.
Gerðubergskórinn mun frum-
flytja lagið á hátíðinni en kór-
inn hefur starfað í 20 ár um
þessar mundir og er hluti af
fjölþættu félagsstarfi sem unn-
ið er í Gerðubergi. Lagið er
hugsað sem einskonar þjóð-
söngur Breiðholtsins, hverfinu
er hælt á hvert reipi í textanum
sem líður áfram undir austfirsk
ættuðum tónum Þorvaldar sem
sjálfur er Austfirðingur.
Nýtt Breiðholtslag
kynnt á menningarhátíð