Breiðholtsblaðið - 01.01.2006, Side 6
JANÚAR 20066 Breiðholtsblaðið
Gerðuberg
Vetrarstarfið í fullum gangi
Starfsemi Gerðubergs er farin
af stað á nýju ári. Fyrsta ritþing-
ið var haldið laugardaginn 21.
janúar þar sem Thor Vilhjálms-
son rithöfundur sat fyrir svörum
hjá bókmenntafræðingunum
Halldóri Guðmundssyni, sem
stýrði ritþinginu og Ástráði Ey-
steinssyni auk Sigurðar Pálsson-
ar rithöfundar. Ritþing Gerðu-
bergs eiga sér orðið 10 ára sögu
en þeim er einkum ætlað að
gefa innsýn í samtímamenningu
og fólki gefið kost á að kynnast
viðhorfum, áhrifavöldum og lífs-
hlaupi einstakra listamanna.
Auk ritþinganna hefur Gerðu-
berg staðið fyrir sjónþingum þar
sem fjallað hefur verið um
myndlistarmenn á sambærileg-
an hátt, verk þeirra verið kynnt
og viðhorf þeirra og lífshlaup
rædd í spjalli listfræðinga og
myndlistarmanna.
Sigrún Björnsdóttir opnar
myndlistarsýningu í Boganum í
Gerðubergi 27. janúar og stendur
sýning hennar til 12. mars. Sigrún
sýnir myndir úr þæfðri ull inn-
rammaðar í lerki með berkinum
á. Sigrún er Austfirðingur og hef-
ur bæði stundað myndlist og rit-
störf um dagana auk kennslu-
starfa og að halda heimili fyrir
föður sinn og systkini til fjölda
ára.
Söngur og sund á sunnudegi
með Ingveldi Ýr Jónsdóttur hefst
að nýju sunnudaginn 12. febrúar
en sunnudagssöngurinn hefur
notið mikilla vinsælda. Sunnu-
dagssöngurinn og sundið hefst kl.
13. á sunnudögum í Gerðubergi
þar sem Ingveldur Ýr leiðir söng
þar sem sungin eru lög eftir ýmsa
innlenda höfunda. Hver sunnu-
dagur er tileinkaður einum tón-
höfundi. Eftir sönginn er síðan
farið í Breiðholtslaugina sem er
nánast handan götunnar og fólk
fær sér sundsprett og slakar á í
heitu pottunum.
Verkefni Gerðubergs um kyn-
slóðirnar saman er einnig hafið á
nýju ári og komu nemendur í
Seljaskóla í fyrstu heimsóknina
26. janúar og 23. febrúar eru nem-
endur úr Fellsaskóla væntanlegir.
Félagsstarfið í Gerðubergi,
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur,
Hólabrekkuskóli og Ártúnsskóli
hafa gert með sér samning um
samstarf á komandi árum. Ár-
túnsskóli hefur nú unnið að verk-
efni sem nefndist „aldur og ævi-
skeið“ en það kallar á gagnvirk
samskipti nemenda og eldri borg-
ara. Verkefnið er m.a. unnið með
heimsóknum og þátttöku á báða
bóga. Ákveðið var að mynda sér-
stakan Ártúnshóp eldri borgara
til að taka þátt í verkefninu eftir
aðstæðum.
Sigurður Pálsson, Halldór Guðmundsson, Thor Vilhjálmsson og Ástráður Eysteinsson í Gerðubergi við
undirbúning ritþingsins.
Undanfarna mánuði hefur ver-
ið í undirbúningi að gera tilraun
með nágrannavörslu í einni
ákveðinni íbúagötu í Breiðholti.
Um er að ræða tilraunaverkefni
í eitt ár.
Í upphafi verður haldið
fræðslunámskeið um nágranna-
vörslu fyrir íbúa götunnar. Þar
verður m.a. fjallað um hvernig
þeir geta unnið saman að því að
gæta öryggis í götunni í samráði
við lögregluna og þjónustumið-
stöðina í hverfinu. Námskeiðið
verður kostað og haldið í Þjón-
ustumiðstöð Breiðholts og örygg-
isfyrirtækið Meton ehf. mun sjá
um fræðsluþáttinn á námskeiðinu
fyrir íbúana. Sett verða upp sér-
stök merki við enda viðkomandi
götu sem gefa til kynna að í göt-
unni sé virk nágrannavarsla.
Val á götu í Breiðholti til að
gera tilraunina í fer fram í byrjun
febrúar. Þeir íbúar sem áhuga
hafa á að taka þátt í slíkri tilraun
eru hvattir til að hafa samband
við Þráin Hafsteinsson, frístunda-
ráðgjafa í Þjónustumiðstöð Breið-
holts í Mjóddinni í síma 411 1300
eða á netfangið: thrainn.haf-
steinsson@reykjavik.is fyrir 31.
janúar.
Þráinn Hafsteinsson frístunda-
ráðgjafi
Nágrannavarsla
tilraunaverkefni að hefjast í Breiðholti
Tryggjum Breiðhylting
í 3–4 sætið
Virkjum velferðina
– til að auka jöfnuð í Reykjavík
– til að fólk geti búið við öryggi
– til að samfélagið njóti góðs af
– í þágu allra
– opið prófkjör 11.–13. febrúar
veljum
www.bjorkv.is