Breiðholtsblaðið - 01.01.2006, Blaðsíða 14
JANÚAR 200614 Breiðholtsblaðið
Um áramótin kom í ljós að af
108 íþróttamönnum í Úrvalshóp
FRÍ átti frjálsíþróttadeild ÍR 26
keppendur eða 23.1%, en ÍR hefur
aldrei fyrr átt svo marga í þessum
hópi. Þegar litið er á Afrekshóp
FRÍ þá á ÍR 4 af 18 íþróttamönnum
eða 22.2%. Þetta er frábær árang-
ur hjá deildinni og á hún flesta
iðkendur af öllum félögum á land-
inu í hvorum hóp.
Styrkveitingar Íþrótta-
og Ólympíusambands
Íslands
Íþrótta- og Ólympíusamband Ís-
lands tilkynnti föstudaginn 9. des-
ember hverjir hefðu hlotið styrki
Afrekssjóðs fyrir árið 2006. Í þess-
um hópi voru ÍR-ingarnir Þóra
Kristín Pálsdóttir og Brynjar
Gunnarsson sem hlutu styrk úr
sjóðum ungra og framúrskarandi
efnilegra unglinga ásamt fjórum
öðrum unglingum. Hlutu þau
hvort um sig 100.000 kr sem
munu koma að góðum notum við
æfingar og undirbúning fyrir árið
2006. Þetta er mikil viðurkenning
fyrir þessa ungu íþróttamenn og
á án efa eftir að koma sér vel á ár-
inu 2006 þar sem mörg verkefni
og þar af leiðandi mikill undirbún-
ingur er framundan.
Frjálsíþróttadeildin óskar þeim
Þóru Kristínu og Brynjari til ham-
ingju með þennan styrk sem sýn-
ir að tekið er eftir framistöðu
þeirra og vonir bundnar við þau í
framtíðinni.
Jólamót Ægis
Jólamót Sundfélagsins Ægis
var haldið í nýju sundhöllinni í
Laugardalnum sunnudaginn
18. desember sl. en yfir 100
Ægiringar tóku þátt í mótinu
ásamt gestum frá Borgarnesi og
Akranesi.
Auk keppenda voru yfir 30
sundmenn úr bleikjum, sundhópi
yngstu Ægiringanna sem sýndu
getu sína í hléi við mikinn fögnuð
áhorfenda og var það aldeilis frá-
bær skemmtun. Árangur dagsins
var einnig frábær og margir sund-
menn voru að bæta sig. Þó nokkr-
ir náðu lágmarkstímum inn á Ald-
ursflokkameistaramót Íslands.
Reynt var við nokkur Íslandsmet
og var sett stúlknamet í 4 x 50
metra flugsundi og var tími boð-
sundsveitarinnar 2.05.34.
Mótið var í alla staði hið
skemmtilegasta og var glæsilegur
lokapunktur á starfi sundfélagsins
á síðasta ári en nú er nýtt sundár
hafið og æfingar hafnar á fullu.
Einhver pláss eru laus í yngri
flokkum félagsins og að sjálfsögðu
byrja nýir byrjendahópar á árinu.
Hægt er að fá allar upplýsingar
hjá yfirþjálfara félagsins í síma
8990617 eða á heimasíðu þess,
www.aegir.is
Eftirtöld verðlaun voru veitt fyr-
ir þrjú stigahæstu sund í hverjum
aldursflokki:
Hnátur 10 ára og yngri
1. sæti Eygló Ósk Gústafsdóttir,
2. sæti Guðrún Kristín Jóhannesdóttir.
3. sæti Íris Emma Gunnarsdóttir.
Hnokkar 10 ára og yngri
1. sæti Ægir Benediktsson.
2. sæti Bergþór Mahlmann.
3. sæti Páll Ágúst Þórarinsson.
Meyjur 11 til 12 ára
1. sæti Karen Sif Vilhjálmsdóttir.
2. sæti Anna Dís Arnarsdóttir.
3. sæti Karen Jóhannsdóttir.
Sveinar 11-12 ára
1. sæti Kristján J. Potenciano.
2. sæti Anton Sveinn McKee.
3. sæti Siggi Dan Kristjánsson.
Telpur 13-14 ára
1. sæti Olga Sigurðardóttir
2. sæti Jóhanna Hildur Hansen.
3. sæti Íris Ósk Kristófersdóttir.
Drengir 13-14 ára
1. sæti Kristinn Jaferian.
2. sæti Sigurður Egill Sigurðsson.
3. sæti Oddur Goði Jóhannsson.
Kvennaflokkur 15 ára og eldri
1. sæti Jóhanna Gerða Gústafsdóttir.
2. sæti Guðrún Vaka Steingrímsdóttir.
3. sæti Auður Sif Jónsdóttir.
Karlaflokkur 15 ára og eldri
1. sæti Jakob Jóhann Sveinsson.
2. sæti Árni Már Árnason.
3. sæti Baldur Snær Jónsson.
Íslandsmeistaramótið í
25 metra laug
Íslandsmeistaramótið í 25
metra laug var haldið í Laugar-
dalslauginni helgina 18. til 20. nóv-
ember og var árangur Sundfélags-
ins Ægis þar afburða góður. Ægir-
ingar unnu til helmings allra Gull-
verðlauna á mótinu eða tuttugu
talsins, nítján silfur og fjórtán
brons en þetta segir meira en
margt annað um styrk liðsins.
Ægiringar settu tvö Íslandsmet
á mótinu. Anja Ríkey Jakobsdótt-
ur setti Íslandsmet í 100 metra
baksundi á tímanum 1.02.81 en
hún átti sjálf fyrra metið sem var
1.02.94, og Jakob Jóhann Sveins-
son setti einnig glæsilegt Íslands-
met í 50 metra bringusundi á tím-
anum 28.
Lokahóf Sundsambands Íslands fór fram í lok Íslandsmeistaramótsins
í 25 m. laug og þar voru Ægiringarnir Jakob Jóhann Sveinsson og
Anja Ríkey Jakobsdóttir kjörnir sundmenn ársins 2005.
Stúlknasveit Ægis setti nýtt Íslenskt stúlknamet í 4 x 50 metra
flugsundi á Jólamóti Ægis. Nýja metið er 2.05.34 Sveitina skipuðu
Snæfríður Jóhannsdóttir, Jóhanna Gerða Gústafsdóttir, Ólöf Lára
Halldórsdóttir og Auður Sif Jónsdóttir.
Ljósm. JAK
Anna Kristinsdóttir býður sig
fram í fyrsta sæti í prófkjöri fram-
sóknarmanna fyrir framboð til
borgarstjórnarkosninga í Reykja-
vík um komandi helgi. Anna hefur
setið í borgarstjórn sem annar
fulltrúi framsóknarmanna innan
Reykjavíkurlistans um fjögurra
ára skeið. Hún hefur gegnt for-
mennsku í ÍTR undanfarin ár og
því látið íþrótta- og æskulýðsmál
sig miklu varða í Breiðholtinu
sem annarsstaðar í borginni.
Komið að uppbyggingu
ÍR svæðisins
Anna hefur átt samskipti við fé-
lögin í Breiðholtinu ÍR og Leikni
og segir að ÍR-inga hafi lagt mikla
áherslu á að fá bætta aðstöðu í
Breiðholtinu, m.a. með því að
nýtt íþróttahús verði reist fyrir
hverfið. Sannleikurinn sé sá að
menn hafa verið sammála um
nauðsyn þess en hins vegar ekki
komið sér saman um í hversu
stóra framkvæmd þyrfti að ráðast
og það sé einkum ástæða þess að
málið sé ekki komið lengra. „Ég er
hins vegar alveg sammála því að
nú sé komið að því að leggja fjár-
magn í uppbyggingu á svæði fé-
lagsins. Við höfum lagt til að 150
milljónum króna verði varið til
þess að koma upp gerfigrasvelli á
svæðinu sem verði lokið við á
þessu ári. Síðan hef ég lagt til við
gerð þriggja ára framkvæmdaá-
ætlunar borgarinnar að settar
verði 800 milljónir á árunum 2007
til 2009 til þess að koma upp
íþróttahúsi á svæði ÍR og sýnist
að hægt verði að taka fyrstu
skóflustungu að nýju húsi félags-
ins á 100 ára afmæli þess árið
2007.
Bæta þarf aðstöðu
Leiknis
Anna víkur einnig að málefnum
Leiknis og þeirri sérstöku félags-
legu stöðu sem félagið hefur í
Breiðholtinu. Hún segir þá skorta
nánast alla félagsaðstöðu. Þeir
hafi eingöngu yfir að ráða litlu
húsi, nánast skúr sem ekki haldi
vatni né vindum og sé allsendis
ófullnægjandi fyrir það starf sem
þeir eru að vinna. „Við höfum ver-
ið að skoða málefni Leiknis og
hvað sé unnt að gera til þess að
bæta aðstöðu þeirra vegna þess
að þeir eru að vinna að öflugu
starfi í Efra
Breiðholt -
inu.“ Hún
segir félagið
starfa í fjöl-
menningar-
legu um-
hverfi. Þar
búi fólk af
ýmsum upp-
runa og
þjóðernum
og þekki mis
mikil til
íþróttastarfs og gildi íþrótta. Því
þurfi að kynna þessa menningu
og þetta starf og gildi þess fyrir
fólki af erlendum uppruna og gefa
því kost á að tileinka sér það og
taka þátt í því og þar leiki íþrótta-
félögin stórt hlutverk. Íþrótta og
tómstundaráð hefur lagt félaginu
lið við styrkveitingu ársins 2006
vegna sérstakrar stöðu þess, enn
það leysir ekki aðstöðumál félags-
ins. Við munum á næstu vikum
fara yfir aðstöðumálin frekar og
leita leiða til að leysa þau til
lengri tíma.
Um 100 milljónir í
þátttökugjöld
Anna segir að ÍTR hafi sett fram
í áætlun áranna 2007 til 2009 að
lagðar verði fram 100 milljónir til
greiðslu þátttökugjalda barna og
unglinga í íþrótta og æskulýðs-
starfi. Þessar greiðslur séu aðeins
fyrstu skrefin í þá átt að gera öll-
um börnum og ungmennum í
borginni kleift að taka þátt í frí-
stundastarfi.
Verkefni eru óendanleg
Hún segir óendanleg verkefni
innan íþrótta- og tómstundamál-
anna. Alltaf séu að koma upp mál
sem þurfi að sinna og kröfur sam-
félagsins fari stöðugt vaxandi í
þessum efnum. Þó þessi mála-
flokkur kosti samfélagið fjármuni
þá sé raunverulega aldrei of mik-
ið gert til þess að efla íþrótta- og
æskulýðsstarf á meðal ung-
menna. Íþróttastarfið hafi mikið
uppeldislegt gildi auk þess að
vera eitthvert virkasta forvarnar-
starfið að öðru ólöstuðu. Því megi
alveg líta svo á að samfélagið fái
til baka í einhverju formi þá fjár-
muni sem varið til þess að efla
íþrótta- og tómstundastarf.
Anna Kristinsdóttir.
Verkefnin eru
óendanleg
ÍR frjálsíþróttadeild:
Mikil viðurkenning
PR
EN
TSMI‹JAN
NES
ÖLL ALMENN PRENTUN
SÍMI 561 1594
895 8298
HRÓLFSSKÁLAVÖR 14
NETFANG: NES@ISHOLF.IS