Breiðholtsblaðið - 01.01.2006, Blaðsíða 15
Meistaraflokkur ÍR í knatt-
spyrnu hefur nú hafið undirbún-
ing undir leiktímabilið næsta
sumar af fullum krafti. Æft er í
Breiðholtinu og Egilshöll, minnst
5 daga vikunnar auk leikja. Auk
þátttöku í Reykjavíkurmóti og
Deildarbikarkeppni KSÍ nú í vet-
ur er stefnt á að fara með liðið í
æfingaferð til Hollands í apríl, til
að undirbúa liðið enn betur und-
ir átök sumarsins.
Breytingar hafa orðið á liðinu.
Farnir eru Valur Úlfarsson sem fór
aftur til Víkings og Engilbert Frið-
finnsson lagði skóna á hilluna. Í
stað þeirra hafa Guðfinnur
Ómarsson og Erlingur Jack Guð-
mundsson komið frá Þrótti og
Brynjólfur Bjarnason snúið aftur
heim í Mjóddina eftir veru hjá Aft-
ureldingu og Selfossi. Að auki
hafa 8 leikmenn framlengt samn-
inga sína við félagið um 2 ár.
Liðið stefnir hátt í sumar, eftir
ákveðna uppbyggingu liðsins og
umgjarðar þess síðastliðin tvö ár
er nú markið sett á toppbaráttu
deildarinnar. Með tilkomu fyrr-
greindra reynslubolta og aukinni
leikreynslu ungu leikmannanna
hjá félaginu eru ÍR-ingar bjartsýn-
ir á það að liðið sé nú tilbúið að
setja alvöru mark sitt á 2.deildina.
Á næsta ári verður 2.deildin
sannkölluð landsbyggðardeild,
með 2 lið á Norðurlandi og 3 á
Austurlandi. Í vetur hefur verið
unnið markvisst að því að treysta
undirstöður liðsins og fjölga í
hópi þeirra sem að staðið hafa
þétt við bakið á leikmönnum og
þjálfara. Sannleikurinn er að
margar hendur geta leyst erfitt
verk og það er von allra ÍR-inga að
enn fleiri komi til verksins nú á
vordögum.
Skíðadeild ÍR fór með
12 manna hóp á aldrinum
13 - 15 ára í æfingaferð til
Geilo Noregi dagana 26
des til 8 janúar, æft var
við bestu aðstæður bæði í
braut og tækniæfingar var
skíðað að meðaltali 35 km
á dag, tekið var þátt í hér-
aðsmóti síðasta daginn í
ferðinni og stóðu
ÍR-ingar sig vel í keppni,
var ferðin góður grunnur
að komandi æfingavetur
og eins og staðan er í dag
stefnir í góðan skíðavetur.
Æfingar eru byrjaðar á
fullu, upplýsingar eru
á símsvara deildarinnar
878-1770
JANÚAR 2006 15Breiðholtsblaðið
Fréttir
Íþróttafélag Reykjavíkur
Skógarseli 12 • Sími 587 7080
Myndsími: 587 7081
Tölvupóstur: iradal@isholf.is
Við hæfi þótti að halda upp-
skeruhátíð jafn frábærs árs sem
2005 var, á árinu sjálfu og setja
þannig tóninn fyrir árið 2006. Ein-
nig þótti við hæfi að halda upp-
skeruhátíðina í nýju Höllinni okk-
ar í Laugardalnum, aðstöðunni
sem á eftir að valda miklum þátta-
skilum í starfi og afrekum frjálsí-
þróttadeild ÍR og frjálsum á Ís-
landi í heild. Þjálfurum deildar-
innar voru einnig veittar viður-
kenningar fyrir sitt framlag og
hlutu þeir hlaupadagbókina 2006,
bók sem þjálfari skokkklúbbsins,
Gunnar Páll Jóakimsson skrifar
og gefur út á hverju ári. Sjálfboða-
liði ársins, Felix Sigurðsson fékk
einnig viðurkenningu.
Eftirtaldir íþróttamenn hlutu
viðurkenningar:
Frjálsíþróttakona ársins hjá ÍR
2005:
Kristín Birna Ólafsdóttir.
Frjálsíþróttakarl ársins hjá ÍR
2005:
Einar Karl Hjartarson.
Bestu unglingarnir
Brynjar Gunnarsson,
fjölþraut, grindahlaup.
Þóra Kristín Pálsdóttir,
fjölþraut, grindahlaup.
Efnilegasti unglingurinn
Einar Daði Lárusson,
grindahlaup, spretthlaup.
Mestu framfarir í unglingaflokk-
um
Arna Ómarsdóttir, köst
Hulda Þorsteinsdóttir, stökk.
Besta ástundun í unglingaflokk-
um
Kristjana Ósk Kristjánsdóttir,
spretthlaup, stökk.
Sara Björk Lárusdóttir, millivega-
lengdir, 400m
Einar Karl Hjartarson, hástökk.
Stökkvari ársins
Jóhanna Ingadóttir,
langstökk, þrístökk.
Hlaupari ársins
Fríða Rún Þórðardóttir, millivega-
lengdir, langhlaup.
Kastari ársins
Guðleif Harðardóttir, sleggjukast.
Eldri iðkandi ársins
Fríða Rún Þórðardóttir, millivega-
lengdir-, langhlaup.
Uppskeruhátíð Frjálsíþróttadeildar ÍR
Í lok desember fóru fram þrjú
kvöldmót í höllinni og keppti fjöldi
ÍR-inga á þeim mótum. Þau Einar
Daði Lárusson grindahlaupari og
Hulda Þorsteinsdóttir stangar-
stökkvari hafa verið iðin við að
setja met og margbætt aldursflokka-
metin í sínum greinum á þessum
mótum.
Haustleikar ÍR fóru fram 10. des-
ember, sem er heldur seinna en
vanalega, en mótið var fyrsta mótið
sem haldið er í nýju Laugardalshöll-
inni. Rúmlega 300 keppendur á aldr-
inum 5-16 ára tóku þátt, þar af 80 ÍR-
ingar. Það var því í nógu að snúast
þennan dag hjá keppendum. Þátt-
takendur, starfsmenn og áhorfend-
ur eru allir sammála um að stemm-
ingin hafi verið einstök og átti hún
sjálfsagt sinn þátt í því að sjö ný Ís-
landsmet í unglingaflokkum voru
slegin en tveir ÍR-ingar komu þar
við sögu.
Brynjar Gunnarsson, ÍR, bætti eig-
ið sveinamet í 60m grindahlaupi um
5/100 úr sek. þegar hann hljóp á
8,42 sek. Hulda Þorsteinsdóttir, ÍR,
bætti telpnametið í stangarstökki,
þegar hún stökk yfir 2,75 metra, en
gamla metið var 2,72 metrar.
Heildarúrslit frá Haustleikum ÍR
má finna undir www.fri.is/mótafor-
rit/haustleikarÍR
Gamlárshlaup ÍR
Gamlárshlaup ÍR sem státar af
því, ásamt Sumardags fyrsta hlaupi
ÍR, að vera einn af elstu íþróttavið-
burðum sem fram fara á Íslandi, var
haldið í 30. sinn á Gamlársdag. Á
þessum tímamótum var þátttöku-
met slegið en alls 440 keppendur
hlupu kílómetrana 10.
Þetta er gífurleg aukning frá síð-
ustu árum en þá hafa á bilinu 200-
250 keppendur tekið þátt. ÍR-ingar
áttu að sjálfsögðu keppendur í efstu
sætunum eins og svo oft áður.
Fyrstur ÍR-inga í mark var Burkni
Helgason sem varð í 4. sæti á tíman-
um 35.00 mín og er þetta hans besti
árangur í þessu hlaupi í mörg ár.
Næstur á eftir Burkna kom Valur
Þórisson á tímanum 35.19 mín.
Martha Ernstsdóttir sigraði í
kvennaflokki eins og svo oft áður en
hún hljóp á tímanum 36.33 mín og
kom hún 13. í mark. Af fyrstu 30 í
mark áttu ÍR og
ÍR-skokk sex aðra keppendur Haf-
steinn Óskarsson 16. sæti, Sigurjón
Sigbjörnsson 17. sæti, Örnólfur
Oddsson 19. sæti, Guðmann Elísson
23. sæti, Sigurður Þórarinsson 25.
sæti og Ólafur Ingþórsson 29. sæti.
Reykjavíkurmeistaramótið
innanhúss
Helgina 14. - 15. fór Reykjavíkur-
meistaramótið innanhúss fram í
Laugardalshöllinni og voru ÍR-ingar
áberandi þar sem og á öðrum mót-
um. Á mótinu kepptu 283 einstak-
lingar, þar af átti ÍR 107 keppendur
og af 218 verðlaunasætum átti ÍR
78, Fjölnir kom næst með 30 verð-
launasæti, FH 21 og önnur lið færri.
ÍR-ingar áttu 20 Reykjavíkurmeist-
ara í 24 greinum en að auki komst
fjöldinn allur á verðlaunapall í öðru
og þriðja sæti. Nánari úrslit má
finna á heimasíðu FRÍ
www.fri.is/mótaforrit 2006 Reykja-
víkurleikar
Margt á döfinni hjá
Frjálsíþróttadeildinni
Æfingar hjá frjálsíþróttadeildinni
eru hafnar eftir jóla og áramótafrí
og er mikill fjöldi iðkenda sem sækir
þær. Boðið er upp á æfingar fyrir
alla aldurshópa allt frá 6 -8 ára flok-
ki og upp í flokk heldri iðkenda. Æf-
ingar 6-8 ára barna eru nýlunda og
eru þær á þriðjudögum og föstu-
dögum frá kl. 16:30 til 17:30. Mikil
ánægja ríkir með þessar æfingar en
æfingatíminn skiptist í upphitun,
teygjuæfingar, tækniæfingar, lang-
stökk, grindahlaup og spretthlaup.
Einnig er hópurinn farinn að prófa
hástökk. Umsögn móður og fyrrum
frjálsíþróttakonu: „Mjög vel skipu-
lagðar æfingar í alla staði og auðséð
að þjálfarinn hefur reynslu og þekk-
ingu í sínu fagi. Tvær til þrjár mis-
munandi greinar æfðar í hverjum
tíma auk tækniæfinga sem sniðnar
eru að getu þessa aldurshóps. Þan-
nig að einbeitingin er 100% allan
tímann og allir hafa gaman af bæði
íþróttamaðurinn, þjálfarinn og for-
eldrið“. Auður Björk Þórðardóttir.
Æfingatímar allra flokka eru til-
greindir annarsstaðar í blaðinu.
Stórmót ÍR
Helgina 28. til 29. janúar fer Stór-
mót ÍR fram en þar er keppt í fjölda
greina í öllum aldursflokkum allt frá
öldungaflokki niður í 8 ára og yngri.
Keppni Stórmótsins stendur frá 10-
15:30 á laugardeginum en að því
loknu fer fram vígslumót Laugar-
dalshallarinnar en það verður 2 klst
langt mót sem sjónvarpað verður
beint. Keppt er í völdum greinum
og er stefnt að því að allt besta
frjálsíþróttafólk landsins keppi á
móti boðsgestum erlendis frá. Á
sunnudeginum keppa yngstu
íþróttamennirnir og stendur sú
keppni frá kl 10 - 16:00. Allir eru vel-
komnir að fylgjast með þessum
mótum sem sýna í hnotskurn það
frjálsíþróttastarf sem fram fer á Ís-
landi.
Góður árangur
á mótum
Æfingaferð til Geilo
Frá undirritun samnings 14. janúar sl. Á myndinni eru frá vinstri: Efri
röð: Bragi Björnsson form. Mfl.ráðs, Brynjólfur Bjarnason, Arnar Þór
Valsson, Magnús Þór Jónsson þjálfari. Neðri röð: Erlingur Jack Guð-
mundsson, Guðfinnur Ómarsson, Elvar Guðjónsson.
Í fyrra komust færri á þorra-
blót en vildu
Óhemjugóð dagskrá
Þorramatarveisla !
Halli Reynis !
Leynigestur !
Minni karla og kvenna !
Svitabandið spilar fyrir
dansi.........!
Ég skemmti þér !
Þú skemmtir mér !
Verð 3500.-
Miðasala í ÍR heimilinu
26.janúar kl. 17 - 19 og hjá
Braga í Leiksport, í síma 557-
5020 eða með tölvupóst raf-
stef@simnet.is, síðasta lagi
26.janúar
Þorrablót ÍR
28. janúar, kl.19.00 haldið í
ÍR heimilinu Skógarsel
Meistaraflokkurinn stefnir hátt í sumar
Byrjendanámskeið hjá Taekwon-
do deild ÍR hófust þann 9. jan. fyrir
fullorðna og börn átta til 12 ára.
Ekki er orðið of seint að byrja því
tekið verður á móti nýjum iðkend-
um út janúar eða meðan húsrúm
leyfir.
Mikill kraftur er í starfi Taekwon-
do deildarinnar um þessar mundir
og iðkendum fjölgar stöðugt. Taek-
wondo er spennandi, skemmtileg
og fjölbreytt íþrótt þar sem flestir
geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Íþróttin hentar bæði körlum og
konum á öllum aldri.
Taekwondo er kóresk bardaga-
list sem varð formlega til um miðja
20. öldina en byggir á þekkingu og
hefðum sem hafa verið hundruð og
jafnvel þúsundir ára að þróast.
Taekwondo er ólympísk íþrótt sem
er í stöðugum vexti um allan heim í
dag. Taekwondo er skemmtilegt og
gefandi áhugamál sem hjálpar þér
að temja þér heilbrigðan lífsstíl.
Í haust opnaði Taekwondo deild-
in nýja og glæsilega heimasíðu sem
er hönnuð og forrituð af danska
h u g b ú n a ð a r f y r i r t æ k i n u
Eidola.com. Á síðunni má finna all-
ar upplýsingar um Taekwondo og
starf deildarinnar, fréttir af starfinu,
flottar myndir, spjall og margt
fleira. Einnig bjóðum við upp á sér-
staka krakkasíðu þar sem krakkar
og foreldrar geta fundið ýmsar
gagnlegar upplýsingar.
Slóðin á síðuna er: www.irta-
ekwondo.net
Æfingatímar hjá byrjendum eru
eftirfarandi:
Börn:
Mánudaga kl. 18.00-18.50
Fimmtudaga kl. 18.00-18.50
Fullorðnir:
Mánudaga kl. 19.00-20.30
Miðvikudaga kl. 19.00-20.30
Fimmtudaga kl. 19.00-20.30
Laugardaga kl. 13.00-14.30
Glaðir ÍRingar með Kristni Björnssyni skíðakappa í Noregi
f.v. Haukur Magnús, Rakel, Glódís, Steingerður, Bjarki, Tinna Rut, Daði,
Sara, Helga fremri röð Kristinn Björnsson og Grímur þjálfari, Ragnar vantar
á myndina.
Byrjendanámskeiðin hafin