Breiðholtsblaðið - 01.02.2006, Blaðsíða 5
ingurinn og Héraðsbúinn var þá
orðinn rótgróinn Breiðhyltingur.
Vildu ekki hleypa
mér í nikkuna
En að tónlistinni sem er búinn
að fylgja Þorvaldi frá því hann
sem unglingur fór að stelast til
þess að grípa í harmoníkur
bræðra sinna eins og hann kemst
að orði.
„Þeir voru nú ekkert of hrifnir
af því að ég væri að snerta hljóð-
færin enda voru þeir eldri og
reyndari í þessu en ég sem þá var
bara strákpatti. Þeir spiluðu á
böllum en þetta breyttist þegar
ég gat farið að leysa þá af. Þá
mátti ég koma við hljóðfærin. Svo
eignaðist ég mína eigin harmon-
iku og spilaði á böllum fyrir aust-
an um árabil. Ég spilaði ýmist
einn eins og algengt var á þeim
tíma eða þá með fleirum. Ég
fékkst þó lítið við spilamennsk-
una um tíma. Hún datt svona upp
fyrir hjá mér í önnum dagsins.
Það vannst einfaldlega ekki tími
til þess að vinna að tónlistinni að
neinu gagni með búskap og ýms-
um öðrum störfum.“ Því var það
ekki fyrr en eftir að Þorvaldur
kom suður að hann byrjað að
spila á ný. „Ég var í nokkur ár í
hljómsveit sem hét Þristarnir og
spilaði um árabil á Gömlu döns-
unum í Lindarbæ á meðan það
var og hét. Eftir að því samstarfi
lauk stofnaði ég mína eigin hljóm-
sveit sem hét Tríó Þorvaldar og
Vordís. Þetta var nú eiginlega fjöl-
skylduband þar sem þetta voru
dóttir mín og tengdasonur. Svo
spilaði Ásgeir Sverrisson, blaða-
maður á Morgunblaðinu og nú rit-
stjóri Blaðsins, með mér um tíma
en hann er mjög góður gítarleik-
ari.“ Tríó Þorvaldar og Vordís
fóru víða og léku á dansleikjum út
um land. „Maður bætti vissulega
við landafræðiþekkinguna á þess-
um árum. Kynntist bæði landinu
og líka fólki á hinum og þessum
stöðum.“ Og hann er enn að. „Nei
- ég er alls ekki hættur að spila.
Eftir að ég hætti að vinna þá hef
ég mun betri tíma til þess að ein-
beita mér að þessu. Ég er að fást
við að semja og svo grípur maður
í nikkuna.“
Allnokkur kór ef allir
kæmu saman
„Þetta er svona fjölskylduiðn-
aður,“ heldur Þorvaldur áfram.
Margir afkomenda hans hafa erft
tónlistarhæfileikana og fjölskyldu-
bandið gaf út geisladisk á árinu
1995 sem ber nafnið Á heimsslóð.
Á þeim diski voru eingöngu frum-
samin lög eftir Þorvald sem auk
spilamennskunnar hefur fengist
við lagasmíð um langan tíma. „Ég
hef gert mikið að því að semja
bæði möguleg og ómöguleg lög,“
segir hann af hógværð en hann
hefur gefið út nokkra fleiri geisla-
diska. „Þessi fyrsti er þó sá eini
þeirra sem var tekin upp í alvöru
upptökustúdíói. Hinir hafa verið
teknir upp heima fyrir, svona í
heimilisstúdíói,“ eins og hann
kemst að orði. Þorvaldur vill ekki
tala um tónlistarfjölskyldu eða
söngfjölskyldu en viðurkennir þó
að tónlistin hafi alltaf verið hluti
af fjölskyldulífinu. Afkomendurnir
eru orðnir margir. Sjö börn og
þar af tvennir tvíburar, fjölda
barnabarna og barnabarnabörnin
eru þegar orðin fimm. Þetta væri
því allnokkur kór kæmu allir sam-
an. Hann segir að tónlistin haldi
fjölskyldunni öðru fremur saman.
Barnabörnin séu mörg mjög
áhugasöm um tónlist auk þess
sem mörg þeirra búa í Breiðholt-
inu þannig að samgangurinn er
nokkuð mikill og lagið oft tekið
saman. „Vandinn er orðinn sá að
við erum svo mörg að það er
varla til íbúð sem rúmar alla fjöl-
skylduna í einu,“ segir Þorvaldur
greinilega stoltur af afkomendum
sínum sem hafa tileinkað sér
áhugamál hans í ríkum mæli.
Hugmyndin frá Helga
Var Breiðholtslagið pantað? „Já
það má segja það. Ég held ég fari
rétt með að Helgi Seljan hafi
stungið upp á því hvort ég myndi
ekki vilja taka að mér að semja
lag sem mætti tileinka Breiðholt-
inu. Við þekkjumst ágætlega að
austan og hann vissi því vel um
að ég var að fást við lagasmíði. Ég
svaraði honum því til að ef ég
ætti að gera þetta þá yrði hann að
koma með textann þótt hann búi
ekki í Breiðholtinu en Helgi er
góður hagyrðingur eins og kunn-
ugt er. Hann tók því ágætlega en
tók sér síðan nokkurn tíma til
þess. Og þegar hann kom loksins
með kveðskapinn þá gat hann
þess að hann hefði sjaldan verið
jafn lengi að setja saman texta og
við þetta lag. Ég veit ekki hvort
hann vildi vanda svo vel til verks-
ins eða hvort honum hefur þótt
lagið erfitt viðfangs. En hann
leysti þetta með prýði eins og
hans var von og vísa þegar ljóða-
gerð er annars vegar.“ Þorvaldur
var með frumgerð lagsins með
sér á kasettu með söng dóttur
sinnar. Án þess að gefa of mikið
upp um innihald þess áður en
það verður frumflutt vaknaði sú
spurning hvort þar gætti aust-
firskra áhrifa. Þorvaldur hugsaði
sig um í nokkra stund og lauk við
kaffið sem Guðrún hafði útbúið
fyrir okkur. „Hlýtur það ekki að
vera. Hlýtur það ekki að koma af
sjálfur sér þegar höfundurinn er
fæddur og uppalinn fyrir austan í
stórbrotnu landslagi og mjög svo
breytilegu veðurfari. Náttúran
skapar sína tóna. Endurspegla
þeir ekki það sem við mennirnir
erum að gera.“ Breiðholtsbúar og
aðrir munu komast að hvað lag
og texti hafa að geyma þegar
Gerðubergskórinn frumflytur
Breiðholtslag Þorvaldar Jónsson-
ar við texta Helga Seljan í næstu
viku. ■
FEBRÚAR 2006 5Breiðholtsblaðið
Fjórir bræður með harmónikkur. Þorvaldur er lengst til vinstri en
fjórir af sex bræðrum frá Torfastöðum spiluðu á harmonikkur.
Myndin er tekin á ættarmóti á Torfastöðum.
L U S Ý N I N G I N hafin!
Allt það nýjasta í veisluskrauti,
serviettur, kerti, sálmabækur,
áletranir, föndur o.fl. o.fl..
-LÁTTU HEILLAST!
Stekkjarbakka 6 - Sími 540 3300
www.gardheimar.is - gardheimar@gardheimar.is
heimur heillandi
hluta og hugmynda