Breiðholtsblaðið - 01.02.2006, Side 6
Í næstu viku stendur Þjónustu-
miðstöð Breiðholts ásamt félags-
starfinu í Gerðubergi og Árskóg-
um, Félagi eldri borgara og Félagi
áhugafólks um íþróttir aldraðra
að viðamikilli og fjölbreyttri
menningarhátíð eldri borgara í
Breiðholtinu. Yfir fimmtíu atriði
verða á dagskrá hátíðarinnar sem
fer fram víðs vegar um Breiðholt-
ið. Breiðholtshátíðin - menningar-
hátíð eldri borgara 2006 er þó
ekki aðeins fyrir þá sem eru
komnir á eftirlaunaaldur. Eins og
sjá má í dagskránni er fjöldi dag-
skráratriða þar sem börn og ung-
lingar koma við sögu. Þessi stað-
reynd endurspeglar merkilegt og
framsækið félagsstarf eldri borg-
ara í hverfinu sem vert er að gefa
betur gaum.
Hvers vegna kynslóðirnar
saman?
Þráinn Hafsteinsson, frístunda-
ráðgjafi segir í spjalli við Breið-
holtsblaðið að kjarnafjölskyldan
hafi verið allsráðandi fjölskyldu-
form á undanförnum áratugum
með foreldra og börn sem grunn-
einingu. Samneyti barna við eldra
fólk hafi því minnkað verulega
vegna þessa. Þess vegna hafi á
undanförnum árum verið gerðar
vel heppnaðar tilraunir til að
auka þetta samneyti yngstu og
elstu kynslóðanna. Félagsstarfið í
Gerðubergi hafi t.d. frá árinu 2000
stöðugt aukið samstarf sitt við
grunnskóla og leikskóla og þar
með skapað grundvöll til að nem-
endur beggja skólastiga fái tæki-
færi til að hitta og umgangast
eldra fólk. „Það má segja að með
samstarfinu sé verið að nálgast á
ný stórfjölskylduformið þar sem
ömmur og afar tóku mun meiri
þátt í uppeldi ömmu- og afabarna
en nú er. Þau atriði sem eru á
dagskrá hátíðarinnar eru flest
fastaverkefni sem hafa verið að
þróast og gefa því góða mynd af
því starfi sem er í gangi til að
auka samskipti og samvinnu kyn-
slóðanna. Meðal þess sem ungir
og aldnir gera saman á Breið-
holtshátíð er að keppa í Boccia,
spila félagsvist, syngja, dansa og
leika tónlist saman og keppa í ís-
lensku og ekki síst að eldri borg-
arar segja leikskólabörnum sög-
ur. Í Breiðholtinu hefur verið unn-
ið frumkvöðlastarf á þessu sviði
sem hefur haft afar jákvæð áhrif á
samfélagið.
Af hverju málþing?
Þráinn var inntur eftir því af
hverju sé verið að efna til sér-
staks málþings. Hann segir að
skoða þurfi fortíðina reglulega,
taka stöðuna í dag og gera tillög-
ur um hvernig skuli haldið inn í
framtíðina. „Málþing Breiðholts-
hátíðarinnar hefur einmitt þenn-
an tilgang. Fjöldi reynslumikilla
einstaklinga sem hafa unnið að
málefnum eldri borgara á undan-
förnum árum og áratugum munu
hafa framsögu. Hvernig byrjaði
félagsstarf aldraðra og hvernig
hefur það þróast til dagsins í dag?
Er samfélagið að búa eldri borg-
urum viðunandi aðstæður. Er
eitthvað í samfélaginu og framtíð-
inni sem kallar á breyttar aðferðir
og nýja hugmyndafræði til að
mæta okkar vel menntuðu heims-
borgurum sem eldri borgarar eru
að verða upp til hópa? Skipuleggj-
endur hátíðarinnar vonast til að á
málþinginu komi fram ferskar
hugmyndir sem hægt verður að
nýta til að styrkja samfélagið og
gera það vænlegar fyrir unga sem
aldna.“
Eiga íþróttir erindi til
eldri borgara og af hverju
íþróttahátíð?
Íþróttahátíð Félags áhugafólks
um íþróttir aldraðar verður hald-
in í fimmtánda sinn en nú í fyrsta
skipti sem stór og mikill þáttur í
Breiðholtshátíðinni. Þráinn segir
að íþróttahátíðin sé ein af grunn-
stoðum Breiðholtshátíðarinnar.
„Á dögum kyrrsetu og alsnægta
er mikilvægara en nokkru sinni
fyrr að stunda reglulega hreyf-
ingu og áreynslu og eru aldraðir
þar ekki undanskyldir. Fjöldi
íþróttahópa eldri borgara eru
starfandi víðsvegar um Reykjavík
og úti um land. Margir þeirra
sýna afrakstur æfinga sinna á há-
tíðinni og eru öðrum góð fyrir-
mynd og hvatning til að sinna
líkamlegu atgervi. Að umgangast
fólk og hafa samskipti á upp-
byggilegum nótum við eldri sem
yngri nærir og eflir sálina. Að
hreyfa sig reglulega og halda lík-
amanum í góðri þjálfun þó á efri
ár sé komið er grundvöllur þess
að geta notið góðs félagsskapar
og tekið þátt í samfélaginu.“
Fjöltefli og kvöldhátíð
Friðrik Ólafsson, fyrsti stór-
meistari Íslendinga í skák, mun
tefla fjöltefli við eldri borgara í Ár-
skógum föstudaginn 24. febrúar.
Fjölteflið er opin fyrir alla áhuga-
menn um skák og er mikill fengur
í að hafa fengið Friðrik til liðs við
sig af þessu tilefni. Einnig má geta
um sérstaka hátíðadagskrá sem
verður í samkomusal Hólabrekku-
skóla að kvöldi laugardags 25.
febrúar. Þar frumflytur Gerðu-
bergskórinn nýtt Breiðholtslag
eftir Þorvald Jónsson við texta
Helga Seljan auk margra annarra
atriða en hátíðadagskráin endar á
dansleik þar sem Vinabandið
mun leika fyrir dansi. Þráinn
Hafsteinsson segir að Breiðholts-
hátíðin - menningarhátíð eldri
borgara sýna svo ekki verið um
villst fjölbreytnina og kraftinn
sem býr í eldra fólkinu, segir
Þráinn Hafsteinsson, frístunda-
ráðgjafi í Breiðholti.
FEBRÚAR 20066 Breiðholtsblaðið
Rúmlega 96% gesta Borgar-
bókasafns Reykjavíkurborgar
eru ánægðir með þjónustu þess.
Þetta kemur fram í niðurstöðum
símakönnunar sem IMG Gallup
gerði í nóvember á liðnu ári.
Könnunin náði til 1400 manna
úrtaks, sem tekið var úr þjóð-
skrá og er á aldrinum 16 til 80
ára þannig að afstaða barna sem
nota þjónustu safnsins mikið
kemur ekki fram. Sjö söfn auk
bókabíls heyra nú undir starf-
semi Borgarbókasafns Reykja-
víkurborgar. Rúmlega 60% að-
spurðra kváðust hafa heimsótt
safnið síðustu 12 mánuðina fyrir
könnunina. Gestafjöldi þess á
liðnu ári var um 622 þúsund og
útlán um 1.1 milljón eintaka.
Af öðrum söfnum sem könnun-
in náði til kváðust 92.1% vera
ánægð með starfsemi Listasafns
Reykjavíkur en 41.8% þeirra sem
spurðir voru höfðu heimsótt það
á undanförnum 12 mánuðum.
Gestafjöldi Listasafnsins var lið-
lega 155 á liðnu ári. Sambærileg
fjöldi aðspurðra var ánægður
með Árbæjarsafn en um 50 þús-
und manns heimsótti það á liðnu
ári. Um 85% gesta menningarmið-
stöðvarinnar Gerðubergs var
ánægður með starfsemi hennar
en um 130 þúsund manns komu
þangað á liðnu ári. Aðsóknin
jókst mest að Ljósmyndasafni
Reykjavíkur sem tuttugufaldaðist
á árinu. Ljósmyndasafnið er nú til
húsa í Grófarhúsinu við Tryggva-
götu, sama húsi og aðalsafn Borg-
arbókasafnsins. Auk flutnings
Ljósmyndasafnsins þangað hefur
verið tekin upp ný sýningar- og
þjónustustefna. Liðlega 80% að-
spurðra kváðust ánægðir með
þjónustu ljósmyndasafnsins.
Borgarskjalasafnið fékk fæsta
gesti á árinu og var ánægju með
starfsemi þess að finna hjá um
69% svarenda.
Ánægja með
borgarsöfnin
Yngri og eldri starfi meira saman
Vinabandið sem mun leika fyrir dansi á hátíðadagskrá Breiðholtshá-
tíðarinnar.
16” pizza
með allt að 4 álegg
2l gos á
99 kr.
með öllum
pizzum
Gerðubergssafn 20 ára
Gerðubergssafn verður 20
ára laugardaginn 4. mars næst
komandi. Af því tilefni verður
efnt til sérstakrar afmælishátíð-
ar í safninu á afmælisdaginn.
Þar verður boðið upp á afrískan
trumbuslátt, barnasöng á ýms-
um tungum og brúðuleikritið
Sólarsögu svo nokkuð sé nefnt
og hefst dagskráin kl.14.
Ýmislegt fleira verður á dag-
skrá í afmælismánuðinum og
má þar m.a. nefna getraun,
bútasaumssýningu og pakka-
leik.
Gerðubergssafn hefur frá
fyrsta degi verið mikið notað af
íbúum hverfisins. Um 300 gestir
koma þangað á hverjum degi í
ýmsum erindagjörðum. Á fyrstu
árum safnsins voru íbúar hverfis-
ins að stórum hluta ungar fjöl-
skyldur með börn og safnið var á
stundum eins og félagsmiðstöð.
Íbúasamsetning hefur breyst á
þessum árum, fólkið hefur elst
og yngst aftur. Fleira fólk af er-
lendum uppruna býr í Breiðholt-
inu en í flestum öðrum hverfum
borgarinnar. Sú samsetning íbúa
hefur vakið áhuga í Gerðubergs-
safni og í tilefni afmælisins hefur
verið ákveðið að beina sjónum
að þessu fjölbreytta mannlífi.
Félagsstarf í Árskógum
í samstarf við skólana
Nú hefur verið komið á sam-
starfi á milli unga og eldra
fólksins í Breiðholti nánar til-
tekið í Félags- og þjónustumið-
stöðinni í Árskógum. Þar er
mikið og öflugt félagsstarf í
gangi þar sem allir eru vel-
komnir til að taka þátt og
vinna að alls kyns handverki
ásamt því að vera í hreyfingu
eins og t.d. boccia, leikfimi,
keilu, golfi, spila félagsvist og
bingó og margt fleira er í boði.
En betur má ef duga skal og er
þetta liður í því að gera starfið
í Árskógum enn betra og ekki
er hægt að segja annað en það
fari vel af stað.
Leikskólinn Seljaborg er sá
leikskóli sem er kominn í sam-
starf og hafa börnin og starfs-
menn þegar komið í heimsóknir
í Árskóga þar sem vel var tekið
á móti þeim. Ekki var annað að
sjá en þeim hafi fundist gaman,
enda frábærir krakkar og starfs-
mann þar á ferð. Ölduselsskóli
er einnig á leið í samstarf en
þegar þetta er skrifað hafa ekki
enn orðið gagnkvæmar heim-
sóknir. Reyndar er búið að
ákveða kvöldvöku í mars í Ár-
skógum ásamt því sem
Ölduselsskóli ætlar að bjóða
fólki úr Árskógum á sýningu hjá
sér. Þannig að það er ekki ann-
að en hægt að hlakka til þessa
samstarfs við þessa skóla í
hverfinu.