Breiðholtsblaðið - 01.02.2006, Qupperneq 10
Kærleikssamtökin eru að hefja
námskeiðshald fyrir börn,
unglinga og fullorðna og verða
námskeiðin haldin í Gerðubergi.
Unglingastarf og bæna- og hug-
leiðsluhópur ásamt námskeiðinu
„Meðvitund“ sem er fyrir full-
orðna hefjast þann 1. mars.
Barnastarf fyrir 10 til 12 ára
mun einnig hefjast aftur í mars
en hlé hefur verið á því síðan
fyrir jól.
Barnanámskeiðin byggjast eink-
um upp á jóga, öndunaræfingum
og slökun. Einnig er fjallað um
ýmis vandamál sem komið geta
upp í lífi barna og þeim kennt að
takast á við þau. Má þar nefna að-
steðjandi sorg af ýmsum sökum,
einelti og fleira. Starf með full-
orðnum byggist upp á hugleiðslu
og heilun en einnig er ætlunin að
efna til jógakennslu fyrir fullorðna
síðar. Sigurlaug Ingólfsdóttir,
stofnandi Kærleikssamtakanna
segir hugmyndina að þeim um
tveggja ára gamla og hafi hún
unnið að því að útfæra hana og
undirbúa námskeiðshald að und-
anförnum. Hún segir markmið
samtakanna einkum að aðstoða
fólk við að verða meðvitaðra um
sjálft sig. Læra að þekkja sjálfan
sig og gera sér þannig betur grein
fyrir hvernig bregðast megi við
utanaðkomandi aðstæðum. Eins
og nafnið bendi til þá sé það
markmið samtakanna að nota
kærleikann og jákvætt hugarfar til
þess að aðstoða fólk við að
bregðast við því sem á vegi þess
verður. Sem dæmi megi nefna
hvernig unnt sé að nota hug-
leiðslu til þess að bregðast við
kvíða en það sé vísindalega sann-
að að hugleiðsla komi fólki að
gagni við slíkar aðstæðir auk þess
að draga úr kvíða. Skráning er
hafin í síma 821 6174 og í gegnum
sigurlaug@ccw.is.
FEBRÚAR 200610 Breiðholtsblaðið
Blómlegt í
kvennaboltanum
Afar blómlegt starf er nú í
kvennaboltanum hjá Leikni og
flokkarnir að stækka. Nýstofn-
aður 6. flokkur dafnar vel og
stelpurnar í 4. flokki stefna til
Svíþjóðar í sumar til að taka
þátt í Gothia Cup mótiðnu sem
er stærsta knattspyrnumót
heims.
Við viljum þó sjá enn fleiri
stelpur á æfingum hjá okkur en
æfingatöflur má finna á
www.leiknir.com. Æfingar 5.
flokks stúlkna, sem eru fæddar
1994 og 1995 eru nú í fullum
gangi og býður þjálfari þeirra,
Sævar Ólafsson stelpurnar vel-
komnar á æfingar en þær eru
sem hér segir: Mánudaga á
Leiknisvelli kl. 15:30, fimmtudaga
á Leiknisvelli kl. 16:00 og föstu-
daga í Íþróttahúsinu við Fella-
skóla kl. 17:00. Hægt er að ná í
Sævar þjálfara í síma 698 7509.
Frír krakkabolti á
laugardögum
Þá má geta þess að allir krakk-
ar á forskólaaldri geta nú tekið
fram skóna og leikið listir sínar í
leikjum tengdum íþróttum og þá
einkum knattspyrnu. Garðar
Gunnar Ásgeirsson íþróttafræð-
ingur frá ÍKHÍ, íþróttakennari og
þjálfari hjá Leikni til fjölda ára er
þá með æfingar fyrir alla duglega
krakka sem eru ekki komin á ald-
ur í grunnskóla. Æfingarnar fara
fram í Íþróttahúsi Fellaskóla og
eru á Laugardagsmorgnum kl
11.00. Engin æfingagjöld eru inn-
heimt í flokknum og frekari upp-
lýsingar má fá í símum 557 8050
og 869 7794.
Sigrún Björgvinsdóttir sýnir
26 myndverk í Boganum í
Gerðubergi um þessar mundir.
Sigrún er Austfirðingur í húð og
hár, fædd á Hrafnkelsstöðum í
Fljótsdal en ólst upp á Víðilæk í
Skriðdal. Að loknu stúdentsprófi
frá Menntaskólanum á Lauga-
vatni tók hún að sér kennslu við
Alþýðuskólann á Eiðum en
stundað einnig kennslu við
grunnskóla um árabil. Sigrún
hefur auk þess starfað sem
blaðamaður, m.a. sem frétta-
maður DV á Austurlandi og rit-
höfundur. Þrjár bækur hafa
komið út eftir hana auk smá-
sagna og ljóða.
Myndlist Sigrúnar má rekja um
áratug aftur í tímann eftir að hún
komst í kynni við þæfingu ullar á
handverksnámskeiði sem Mynd-
listar- og handíðaskólinn stóð fyr-
ir á Hallormsstað. Eftir það fór
hún að nýta þæfinguna sem
grunn að myndsköpun. Sýningin
ber heitið „Ort í ull“, sem er rétt-
nefni því öll eiga verkin það sam-
eiginlegt að vera unnin úr þæfðri
ull. Myndefni sitt sækir Sigrún
einkum í íslenskt landslag og nátt-
úru og spinnur myndsköpunina
fram í ullinni. Hún beitir litum af
kunnáttu og teflir gjarnan saman
andstæðum í verkunum. Land og
vatn mætast, fjallsbrúnir bera við
himinn og skógurinn er henni líka
mikil uppspretta myndrænna
hugleiðinga enda hefur hún feng-
ist við skógrækt í gegnum tíðina. Í
sumum mynda hennar gætir
áhrifa kyrralífs, blóm spretta úr
potti en í öðrum bera fyrir verur
á flugi líkt og fuglar himinsins hafi
tekið sér nýja liti og jafnvel lögun
á flugi til framandi staða. Nokkrir
klukkustrengir eru á meðal verka
hennar á sýningunni, einnig gerð-
ir úr þæfðri ull, og þar gætir
áhrifa fljúgandi hugsunar með
sterkum hætti. Sýning Sigrúnar er
athyglisverð. Ekki síst fyrir það
efnisval sem hún nýtir við gerð
verka sinna en einnig fyrir skýra
myndsýn og ákaflega agað hand-
bragð. Þess má geta að allir
myndarammar eru sérunnir úr
íslensku lerki. Auk myndverkanna
26 eru á sýningunni sjöl sem
Sigrún hefur unnið úr þæfðri ull
og einnig kynning á ritstörfum
hennar. Sýningu Sigrúnar Björg-
vinsdóttur lýkur 19. mars.
Yrkir í ull
Gróa Salvarsdóttir, Sigríður Salvarsdóttir og listakonan Sigrún Björg-
vinsdóttir við opnum sýningar Sigrúnar 27. janúar.
Eitt verka Sigrúnar á sýningunni
í Gerðubergi.
Stund á milli stríða á æfingu í kvennaboltanum hjá Leikni
Glens og gaman
á árshátíð
Árshátíð Leiknis 2006 verður
haldin í glæsilegum veislusal
Hjartaheilla, sama stað og loka-
hófið var haldið, laugardags-
kvöldið 25. febrúar. Dagskrá árs-
hátíðarinnar verður glæsilegri
en áður hefur þekkst.
Búast má við miklu glensi og
gríni og er óhætt er að lofa fyrir-
taks skemmtun en skemmtiatrið-
in verða á heimsmælikvarða sam-
kvæmt upplýsingum frá Leiknis-
mönnum. Bjarni töframaður kem-
ur á staðinn og töfra gesti fram og
til baka. Pakkauppboðið verður á
sínum stað og þar má búast við
hreint mögnuðum hlutum til
kaups.
Allt Leiknisfólk er hvatt til taka
þetta kvöld frá hið snarasta því
ljóst er að gamanið verður meira
ef fólk mun fjölmenna. Því hvetj-
um við þig til að mæta og draga
fleiri með. Nánari upplýsingar um
árshátíðina er að finna á
www.leiknir.com og skráning á
árshátíðina fer fram á ars-
hatid@leiknir.is
Kærleikssamtökin
að hefja námskeiðshald