Breiðholtsblaðið - 01.02.2006, Blaðsíða 15
Júdódeild ÍR stendur fyrir
átaki og söfnun fyrir fleiri
júdódýnum. Iðkendum hefur
fjölgað mikið í deildinni og til að
mæta þeim þörfum enn frekar
viljum við fjölga dýnum og þar
með nýtilegum gólffleti fyrir iðk-
endur. Reynt verður að birta töl-
ur á heimasíðu okkar www.sim-
net.is/haddi/Judo/IrJudo.htm
eftir því sem upphæðir berast
Breiðhyltingar eru hvattir til að
taka þátt bæði í iðkun, eflingu og
vexti þessarar ungu deildar. Við
tökum á móti nýju fólki opnum
örmum og bjóðum öllum sem
áhuga hafa á að slást í hópinn fría
kynningartíma. Fyrstu æfingarnar
fara í viðkynningu og engin tekur
flugið fyrr en hann eða hún er
reiðubúinn að breiða út sína
vængi. Að gefnu tilefni er vísað til
þess með stolti að stelpurnar
standa sig með stakri prýði.
Íþróttin þekkir bara jöfnuð, því
allir koma jafnir inn á dýnurnar.
Íþróttaálfurinn og fleiri íbúar
Latabæjar hvetja til aukinnar
íþróttaiðkunar, auk þess að
neyta heilsusamlegrar fæðu,
hafa hlutina í röð og reglu, gæta
þess að fá góðan nætursvefn og
hirða tennurnar sínar vel.
Íþróttaálfurinn segir að allir
þurfi að hugsa vel um líkamann
sinn og til þess þurfum við að
hreyfa okkur minnst þrisvar
sinnum í viku í tuttugu til þrjátíu
mínútur í senn.
Þegar við hreyfum okkur jafn
oft og mikið höfum við meira út-
hald/þol. Aukið þol fáum við með
mjög fjölbreyttri hreyfingu t.d.
sundi, hlaupum, stökkum, ýmsum
boltagreinum, dansi, skíðum, bar-
dagaíþróttum og fleira og fleira.
Með þessum æfingum og miklu
fleiri fæst líka aukinn styrkur.
Íþróttaálfurinn styrkir vöðvana
sína t.d. með því að klifra upp í
loftskipið sitt, fara í armbeygjur,
standa á höndum, hoppa og
fleira. En það er ekki nóg að styrk-
ja vöðva og hafa gott þol, það
þarf líka að teygja á vöðvunum til
að verða liðugri. Það er ekki gott
að vera stirður eins og spýtukarl.
Allir krakkar ættu að vera dugleg-
ir að hreyfa sig eitthvað alla daga.
Það er hægt að gera með útileikj-
um og æfingum innan íþróttafé-
lags eins og ÍR.
Kristín Birna Ólafsdóttir, frjáls-
íþróttakona og Tryggvi Haralds-
son handknattleiksmaður voru
útnefnd Íþróttamenn ÍR 2005 og
fór útnefningin fram við athöfn í
ÍR heimilinu þriðjudaginn 24.
janúar s.l.
Kristín var besta sjöþrautar-
kona landsins á árinu 2005 og
keppti fyrir Íslands hönd í Evr-
ópubikarkeppni landsliða í fjöl-
þrautum. Þá var Kristín næst efst
á afrekaskrá Íslands í bæði 100 m.
og 400 m. grindahlaupi. Hún
keppti fyrir Íslands hönd í Evr-
ópubikarkeppni landsliða í boð-
hlaupum 4x100 m. og 4x400 m. og
í landsliði Íslands á Smáþjóðaleik-
unum þar sem hún varð nr. fjögur
í 100 m. grindahlaupi og nr. fimm
í 400 m hlaupi. Kristín Birna varð
Íslandsmeistari í 60 m. grinda-
hlaupi ungkvenna, og kvenna inn-
anhúss og Íslandsmeistari sjö-
þraut kvenna utanhúss. Hún var
burðarás í sterku kvennaliði ÍR
sem hreppti annað sæti í stiga-
keppni Meistaramóts Íslands ut-
anhúss og í Bikarkeppni FRÍ 1.
deild. Kristín Birna stundar nú
nám við San Diego háskóla í
Bandaríkjunum þar sem hún hef-
ur hlotið styrk til náms, æfinga og
keppni með frjálsíþróttaliði
skólans.
Tilbúinn að axla ábyrgð
Tryggvi Haraldsson er 24 ára
og hefur alla tíð spilað með ÍR í
handbolta en hann byrjaði að æfa
í 6. flokki. Hann kom inn í meist-
araflokkinn á 18 aldursári og hef-
ur síðastliðin 2 ár verið lykilleik-
maður í meistaraflokki ÍR. Hann
spilaði frábærlega leiktímabilið
2004 til 2005 fyrir ÍR og átti mjög
góðan leik þegar liðið varð bikar-
meistari í fyrsta skiptið í rúm 50
ár í febrúar síðastliðnum. Meist-
araflokkurinn komst síðan í und-
anúrslit á Íslandsmótinu. Tryggvi
hefur einnig byrjað vel á yfir-
standandi tímabili. Í byrjun sum-
ars þegar ljóst var að meistara-
flokkur ÍR myndi missa marga
leikmenn í atvinnumennsku til út-
landa sýndi Tryggvi hve hollur
hann er félaginu og gaf fyrstur
leikmanna svar til stjórnarmanna
og þjálfara félagsins um það að
hann myndi ekki fara þegar svona
miklar breytingar stæðu yfir.
Hann var tilbúinn að axla þá
ábyrgð að taka á móti yngri leik-
mönnum félagsins í meistara-
flokkinn og vera einn af „eldri“
leikmönnum sem yrðu í fara-
broddi fyrir uppbyggingu á nýju
liði. Þetta sýnir hve hann er heill í
hugsun og lætur hag félagsins
ofar öllu. Fyrir þetta hefur hann
öðlast virðingu á meðal yngri leik-
manna og er góð fyrirmynd innan
félagsins.
Tilnefning deilda til
Íþróttamaður ÍR 2005
Dansdeildin: Ragna Björk Bern-
burg og Alex Freyr Gunnarsson.
Frjálsíþróttadeildin: Kristín
Birna Ólafsdóttir og Einar Karl
Hjartarson.
H a n d k n a t t l e i k s d e i l d i n :
Tryggvi Haraldsson
Júdódeildin: Ásdís Margrét
Ólafsdóttir og Friðbjörn Ingvi
Leifsson.
Keiludeildin: Guðný Gunnars-
dóttir og Arnar Sæbergsson.
Knattspyrnudeildin: Úlfhildur
Ösp Indriðadóttir og Arnaldur
Smári Stefánsson.
Körfuknattleiksdeildin: Rakel
Margrét Viggósdóttir og Ólafur
Jónas Sigurðsson.
Skíðadeildin: Steingerður
Árnadóttir og Ragnar Valberg
Sigurjónsson.
Taekwondo deildin: Hulda
Rún Jónsdóttir og Kristján Daða-
son.
FEBRÚAR 2006 15Breiðholtsblaðið
Fréttir
Íþróttafélag Reykjavíkur
Skógarseli 12 • Sími 587 7080
Myndsími: 587 7081
Tölvupóstur: iradal@isholf.is
Kristín Birna og Tryggvi
íþróttamenn ÍR 2005
Ný heimasíða frjálsíþróttadeildarinnar var opnuð í lok janúar og
er markmiðið að þar megi fylgjast með starfsemi deildarinnar,
úrslitum og því sem framundan er hverju sinni.
Slóðin er www.irfrjalsar.com
Ný heimasíða
Eins og flestir vita er á hverju
keppnistímabili gert hlé á kepp-
ni í meistaraflokki karla og
kvenna vegna Evrópu og Heims-
meistarakeppni landsliða sem
eru haldin annað hvert ár. Til að
bregðast við þessari tveggja
mánaða pásu ákváðu leikmenn,
þjálfarar og stjórn mfl. ÍR að fara
í æfingaferð til Gran Canaría
sem er ein af Kanaríeyjunum sjö.
Ferðina fjármögnuðu leikmenn
sjálfir með sölu spilastokka,
happdrættismiða, bónuðu bíla
og héldu handboltaskóla auk
annarra verkefna sem til féllu.
Fjáröflunin gekk vel í alla staði
og náðist að safna fyrir ferðinni.
Miðvikudaginn 4. jan kl. 06:00
mættu 23 ferskir sveinar úr meist-
araflokki ÍR upp í ÍR heimili. Frá
ÍR heimilinu var tekin rúta til
Keflavíkur og var mat flestra
að erfitt væri að kveðja
veðraparadísina Ísland í heila sjö
sólarhringa. Veðurlýsingin fyrir
næstu daga var stormviðvörun!!!
Takk fyrir. Vélin okkar fór í loftið
stundvíslega kl. 09:00 og gekk
flugið eins og í sögu nema hjá
Lalla markverði sem þurfti að
þrífa eitthvað úr buxunum sínum
en þær voru víst ekkert svo hrein-
ar fyrir. Þegar við lentum í Las
Palmas kl 14:40 var logn og um
20°c hiti. Eftir að hafa endurheimt
allar töskur var haldið upp í rútu í
20 mínútna ferð á hótel Kaf Beach
Princess sem er 3. stjörnu íbúða-
hótel skammt frá miðkjarna Gran
Canaría eyjarinnar. (skammt frá
ensku ströndinni fyrir þá sem til
þekkja).
Leikmenn gistu þrír saman í
fjögurra manna herbergjum og
sáu þjálfararnir alfarið um röðun-
ina. Þeir ákváðu að fara þá leið að
blanda gömlum og mjög ungum
leikmönnum saman í herbergi,
svona nokkurskonar barnapöss-
unarstíll. Stíllinn kom mjög vel út
nema hjá einu herberginu sem
gat bara ekki með nokkru móti
vaknað í morgunmat í ferðinni.
Þeir reyndar liðu fyrir það að elsti
maður herbergisins var með
svefnsýkina, engin átti síma sem
og þeir voru með Halldór „bling“
yfir Vestmannaeying í herberg-
inu. Erfið blanda það.
Eftir að hafa kannað vistarverur
hótelsins var tekið létt útihlaup
til að hlaupa úr sér mestu ferða-
þreytuna og svo var farið í kvöld-
mat. Vistarverurnar voru allar
hinar bestu og maturinn til fyrir-
myndar fyrir utan það að við Ís-
lendingar eigum gríðarlega erfitt
með að taka þessa 2 til 3 klst í
matartíma líkt og Spanjólarnir
gera.
Íþróttahöllin sem við æfðum í
var í um 5 mínútna akstursfjar-
lægð frá hótelinu og var ekkert
undan henni að kvarta, ágætis
gólf og fín lyftingaaðstaða. Æfing-
arnar gengu allar mjög vel og var
eins og spænska loftið færi eitt-
hvað öðruvísi í menn en það ís-
lenska því betur var tekist á en
oft áður í vetur í Berginu, vonandi
það sem koma skal.
Til að brjóta upp hinar hefð-
bundnu æfingar setti þjálfarinn
upp leik milli ungra og eldri leik-
manna liðsins þar sem keppt var í
knattspyrnu á stórum velli og var
kynhneigðin lögð undir þar sem
þeir sem töpuðu myndu dansa
WMCY berir að ofan á einum af
„fáum“ hommastöðum bæjarins.
Öllum á óvart töpuðu ungir og
þurftu að mæta örlögum sínum.
Það var mál manna að ungir
þóttu standa sig mun betur á
sviðinu á Bláu Ostrunni en á
knattspyrnuvellinum og er á eng-
an hallað þegar sagt er að Guðni
hafi borið höfuð og herðar yfir
aðra dansara þetta kvöld.
Á laugardagskveldinu eftir
kvöldmat héldu leikmenn
skemmtikvöld á hótelinu, sér og
öðrum hótelgestum til skemmt-
unnar. Kvöldið var mjög einfalt í
skipulagningu, hvert herbergi átti
að koma með eitt atriði.
Systurnar heimsfrægu lentu
fyrir tilviljun í herbergi með
Benna og var þeirra að kveikja í
kvöldinu. Salurinn ærðist af hlátri
þegar Tryggvi, Haffi og Benni flut-
tu atriðið „heimboðið“ sem Tryg-
gvi bar reyndar hitann og þung-
ann af. Atriðin ráku svo hvert
annað og m.a. sem boðið var
uppá var veðmál um hver myndi
halda oftast/styðst á lofti, aflraun-
ir í boði Finnboga, 1000 fúlir
fimmaurar í boði herbergis 120
(bók á leiðinni?) og síðast en ekki
síst níðingsvísur sem hittu all
rækilega í mark. Kvöldinu var svo
lokað með því að Bergur flutti lag-
ið ÍR-óðurinn sem fékk mjög góða
dóma viðstaddra.
Ekki er hægt að skilja við þessa
ferð nema að minnast á veðrið
sem lék við okkur alla dagana fyr-
ir utan einn dag þar sem rigndi
eldi og brennisteini. Sól og sum-
arylur er það sem situr í minning-
unni og var einstaklega ljúft að
hvíla lúin bein á sundlaugarbakk-
anum með olíuna í vinstri og sím-
ann í hægri hlustandi á vini sína
ýmist fasta í skafli eða blóta því
að í enn eitt skiptið sé búið að
fresta þrettándanum vegna
veðurs.
Sjálfsagt eru margir sem spyrja
sig hvort ferð sem þessi borgi sig
fyrir íþróttafélög og hópa. Ég ef-
ast ekki eina mínútu. Fyrir liðin
hér heima sem ekki eru atvinnu-
mannalið er ferð sem þessi kjörið
tækifæri til að ná hópnum öllum
saman, æfa við góðar aðstæður,
borða topp fæði og hvíla lúin
bein. Sálin fær nokkra sólardaga
sem eiga eftir að verða gulls ígildi
þegar skammdegið fer að herja á
menn á nýjan leik. Fyrir utan alla
þessa þætti er skemmtanagildið í
því að vera á ferðalagi með
skemmtilegum hópi félaga með
sameiginlegt áhugamál gríðarlega
mikið og það eitt og sér gerir ferð
sem þessa ógleymanlega.
GRG.
Kanaríferð 4. til
11. janúar 2006
Kristín Birna Ólafsdóttir. Tryggvi Haraldsson.
ÍR Handboltaferð
Íþróttaálfurinn:
Hvetur alla til að hreyfa sig
Söfnun fyrir júdódýnum
Skíðadeild ÍR fór á dögunum í
æfingaferð á Sauðárkrók en
vegna snjóleysis í Reykjavík
koma hlé á æfingarnar þar um
mánaðarmótin janúar, febrúar.
Þegar veðurguðirnir stríða skíða-
fólki eins og undanfarnar vikur
þarf að flytja æfingar skíðadeild-
ar ÍR út á land eftir aðstæðum.
Nú eru mót vetrarins að komast
á fullt skrið og stefnir flest í að
þau verði norðan heiða til að
byrja með. Í mars fara svo a.m.k..
fjórir fulltrúar skíðadeildar á mót í
Evrópu, þ.e. tveir á mót í Króatíu í
byrjun mars og tveir á mót á Ítalíu
í lok mars.
Skíðadeildin á faraldsfæti