Breiðholtsblaðið - 01.03.2006, Blaðsíða 1
Eldri borgarar þurfa og eiga
að vera virkir þjófélagsþegnar
svo lengi sem heilsa þeirra
leyfir. Eldir borgarar eiga ein-
nig að hafa tækifæri til þess
að njóta þjónustu og aðhlynn-
ingar þegar að þeim tímamót-
um kemur í lífi hvers og eins
að hann þarfnast þess. Þetta
var megin niðurstaða mál-
þings um félagsstarf og félags-
þjónustu eldri borgara sem
efnt var til í Gerðubergi 24.
febrúar sl. Málþingið var
haldið í tengslum við Breið-
holts-menningarhátíð eldri
borgara síðustu helgina í febr-
úar. Steinunn Valdís Óskars-
dóttir, borgarstjóri ávarpaði
málþingið og Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, var
á meðal áheyrenda.
Sjö framsöguerindi voru
haldin á málþinginu. Guðrún
Jónsdóttir, stjórnandi félags-
starfs í Gerðubergi, rakti sögu
þess allt frá byrjun og sagði frá
því hvernig eldra fólki hefði
lærst að nýta sér þetta starf.
Kristján Sigurmundsson, for-
stöðumaður félagsmiðstöðvar-
innar Árskóa, sagði frá félags-
starfinu þar og Margrét Mar-
geirsdóttir, formaður Félags
eldri borgara í Reykjavík kynnti
og ræddi starfsemi þess félags.
Björk Vilhelmsdóttir og Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, borg-
arfulltrúar fluttu erindi þar
sem þau veltu fyrir sér framtíð-
arsýn í málefnum eldri borgara
og Guðrún Þórsdóttir, skóla-
stjóri Vinnuskóla Reykjavíkur-
borgar fjallaði m.a. um nauð-
syn tengsla hinna eldri og
yngri í samfélaginu og leiðir að
því markmiði. Þá rætti Arndís
Magnúsdóttir, sem er um ní-
rætt og er virkur þátttakandi í
félagsstarfi eldri borgara um
kynni sín og reynslu af félags-
starfinu.
3. tbl. 13. árg.
MARS 2006Dreift frítt í öll hús í Breiðholtinu
ÚTSALA Á
FOLALDAKJÖTI
Gildir um helgina
■ bls. 4
Viðtal Sigurlaugu
G. Ingólfsdóttur
Opið virka daga 9-18:30 og laugardaga 10-14
Mjódd
■ bls. 14 og 15
Íþróttir
Lyfjaval.is • Sími 577 1160
Frá málþinginu í Gerðubergi. Frá vinstri Ragnar Þorsteinsson, forstöðumaður Þjónustumiðstöðvar
Reykjavíkurborgar í Breiðholti, Elísabet Bjarklind Þórisdóttir, forstöðumaður Gerðubergs, Margrét
Margeirsdóttir, formaður Félags eldri borgara í Reykjavík, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri og
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Eldri borgarar þurfa að vera virkir