Breiðholtsblaðið - 01.04.2006, Qupperneq 1
Um 280 milljónum króna verður
varið til nýbygginga og endurbóta
á Ölduselsskóla í Breiðholti sam-
kvæmt þriggja ára áætlun borgar-
stjórnar Reykjavíkurborgar. Um 90
milljónum króna verður varið til
verksins á þessu ári og áformað er
að byggingaframkvæmdir hefjist
með haustinu. Þetta kom m.a. fram
í máli Stefáns Jóns Hafstein, for-
manns menntaráðs Reykjavíkur-
borgar, á fjölmennum foreldra-
fundi í Ölduselsskóla sl. miðviku-
dagskvöld.
Nokkurrar óánægju hefur gætt á
meðal foreldra barna í Ölduselsskóla
vegna þess sem þeir telja seinagang
vegna nauðsynlegra framkvæmda við
skólann. Nú er kennt í sjö lausum
kennslustofum en gert er ráð fyrir sex
kennslustofum í fyrirhugaðri nýbygg-
ingu auk fjölnotahúsnæðis sem hýst
geti mötuneyti fyrir skólann og einnig
aðstöðu fyrir yngri börn til hreyfing-
ar. Ekkert mötuneyti er í Öldusels-
skóla en á undanförnum árum hefur
verið unnið að því að koma upp
mötuneytum í grunnskólum borgar-
innar. Stefán Jón Hafstein sagði að
valin hafi verið sú leið hjá Reykjavík-
urborg að koma upp mötuneytum í
skólunum í stað þess að kaupa mat
annarsstaðar frá. Hann sagði rétt að
Ölduselsskóli væri með síðustu skól-
unum þar sem þessari þjónustu yrði
komið á fót en það ætti nokkra sam-
leið með þeim byggingaframkvæmd-
um sem þörf væri fyrir og ákveðið að
ráðast í. Stefán Jón sagði að fram-
kvæmdum við skólann yrði að sjálfs-
sögðu lokið þótt ekki væri búið að
merkja alla framkvæmdaupphæðina
inn í fjárhagsáætlun og einnig að
vissulega reyndi á þann verktaka sem
tæki verkið að sér að taka tillit til þess
starfs sem fram færi í skólanum.
4. tbl. 13. árg.
APRÍL 2006Dreift frítt í öll hús í Breiðholtinu
Borganes gr i l lk jöt
20% afslát tur
■ bls. 4-5
Viðtal við feðgana
Hólmgeir og Einar
Opið virka daga 9-18:30 og laugardaga 10-14
Mjódd
■ bls. 14 og 15
Íþróttir
Lyfjaval.is • Sími 577 1160
Fulltrúar foreldrafélags Ölduselsskóla ásamt Rúnari Gunnarssyni frá Reykjavíkurborg og Stefáni Jóni
Hafstein borgarfullrúa. Frá vinstri: Rúnar Gunnarsson, Valgerður Jóhannesdóttir, Jóhannes Vilhjálmsson,
Markús H. Guðmundsson, Sigurður Þórarinsson, Stefán Jón Hafstein, María Björk Ívarsdóttir, Aðalheiður
Diego Hjálmarsdóttir, Óskar Bergsson og Gissur Pétursson.
Nýjar skólastofur og fjölnotasalur
við Ölduselsskóla