Breiðholtsblaðið - 01.04.2006, Qupperneq 10
APRÍL 200610 Breiðholtsblaðið
Yfir 200 nemendur tóku þátt í
stærðfræðikeppni FB sem fram
fór í mars sl., en þetta er í 9.
sinn sem skólinn heldur slíka
keppni. Árangurinn í ár er með
þeim bestu í sögu keppninnar.
Þátttakendur eru nemendur úr
8., 9. og 10. bekk grunnskólanna í
Breiðholti og nú bar svo við að
allir skólarnir 5 áttu verðlauna-
hafa í einu af þremur efstu sætun-
um í flokkunum þremur.
Keppnin hlaut í ár styrk
Menntaráðs Reykjavíkurborgar
og allir keppendur í 5 efstu sæt-
unum í hverjum árgangi fengu
vegleg verðlaun í boði Glitnis,
Heimilistækja og VÍS.
Úrslit á mótinu urðu annars sem
hér segir:
10. bekkur
1. Tanja Rós Ívarsdóttir,
Ölduselsskóla
2. Jón Arnar Tómasson,
Seljaskóla
3. Viktoria Alexeeva,
Fellaskóla
4. Hannes Daði Haraldsson,
Breiðholtsskóla
5. Sighvatur Örn Sigþórsson,
Seljaskóla
9. bekkur
1. Árni Indriðason,
Breiðholtsskóla
2. Kristinn Hrafn Þórarinsson,
Ölduselsskóla
3. Hafliði Örn Ólafsson,
Hólabrekkuskóla
4. Karl R. Martinsson,
Breiðholtsskóla
5. Sigríður Stefanía Hlynsdóttir,
Ölduselsskóla
8. bekkur
1. Þorsteinn Halldórsson,
Hólabrekkuskóla
2. Dísa E. Ríkharðsdóttir,
Ölduselsskóla
3. Eva Dröfn Benjamínsdóttir,
Ölduselsskóla
4. Berta Hreinsdóttir,
Breiðholtsskóla
5. Ívar Kristinn Jasonarson,
Hólabrekkuskóla
Verðlaunahafar í stærðfræðikeppni FB ásamt Kristínu Arnalds,
skólameistara FB.
Góður árangur
í stærðfræði-
keppni FB
Reykjavíkurborg stendur nú
fyrir vitundarvakningu í umhverf-
ismálum með áherslu á um-
gengni. Markmiðið er að ná at-
hygli, vekja áhuga borgarbúa á
valkostum í umhverfismálum og
hafa áhrif á umgengni. Tryggjum
okkur öllum fallegt og heilnæmt
umhverfi. Það munar engu fyrir
okkur, það munar öllu fyrir um-
hverfið.
Áherslur í
umhverfismálum
Mikil umræða hefur verið um
umhverfismál í Reykjavík í vetur.
Helstu umræðuefnin hafa verið
um samgöngur, neyslumál, úti-
vist, umgengni, nagladekk og
svifryk. Vitundarvakning Reykja-
víkurborgar hófst í september
2005 og snerist þá um valkosti í
samgöngumálum en þá birtust
m.a. tölur um að 60% ökuferða í
borginni eru innan við þrjár kíló-
metra. Annar þáttur vitundar-
vakningar snerist um neyslumál
þar sem áherslan var á gæði og
hollustu, meðvituð innkaup, fjöl-
nota umbúðir og efni úr hringrás
náttúrunnar. Þriðji þátturinn var
samráð við borgarbúa um áhersl-
ur í umhverfismálum og bárust
um 900 hugmyndir frá borgarbú-
um sem notaðar eru við endur-
skoðun á umhverfisstefnu Reykja-
víkurborgar.
Leiðarljós verkefnisins er að
tryggja borgarbúum fallegt og
heilnæmt umhverfi. Umhverfi
okkar allra hefur mikilvægu hlut-
verki að gegna þegar litið er til
lífsgæða. Öll viljum við alast upp
og lifa í umhverfi sem við erum
sátt við. Við viljum að börnunum
okkar séu búnar þær aðstæður
að þau alist upp í umhverfi sem
er fallegt, öruggt og heilnæmt.
Umgengni er vítt hugtak og
gagnvart öðrum tengist hún lóð-
inni, götunni, hverfinu og borg-
inni í heild. Öllum er heimilt að
fara um borgina og njóta hennar,
en góð umgengni gerir hverja
ferð vænlegri. Umgengni kemur
ævinlega við sögu: Heima, í skól-
anum, vinnunni, bifreiðinni, garð-
inum.
Hverfið mitt
Í Breiðholti eigum við að virkja
okkur sjálf til að hafa jákvæð áhrif
á umhverfið. Í hverfinu eru víða
falleg opin svæði með náttúruleg-
um gróðri og fallegum trjám.
Möguleiki til útivistar, gönguferða
og hjólreiða er góður. Elliðaárdal-
urinn sem er eitt besta útivistar-
svæði borgarinnar liggur við bæj-
ardyrnar. Það er á ábyrgð okkar
allra að ganga vel um hverfið okk-
ar og ala börnin upp í því að það
munar um framlag hvers og eins
þegar kemur að náttúruvernd.
Öruggt og heilnæmt umhverfi
ásamt góðri þjónustu við fjöl-
skyldur eru veigamestu atriði í
hugum íbúa þegar kemur að því
að meta hverfið sem þeir búa í.
Víða í Breiðholti er skipulag
byggðar og gatna á þann hátt að
gangandi og hjólandi eru nokkuð
öryggir fyrir akandi umferð. Þó
má finna slysahættur sem rekja
má til umgengnis okkar og hirðu-
leysis. Slysahætta getur myndast
vegna bílhræja, s.s. vegna brot-
inna rúða og þess að börn nota
bílana til að leika sér í. Óheimilt
er með öllu að skilja eftir núm-
erslausa bíla og bílgarma á götum
og bifreiðastæðum borgarinnar.
Framkvæmdasvið Reykjavíkur-
borgar tekur við ábendingum um
númerslausa bíla og gefur eigend-
um vikufrest til að fjarlægja öku-
tækið.
Því miður þykir mörgum enn
sjálfsagt mál að henda frá sér á
víðavangi sígarettustubbum,
tyggjóklessum og einnota umbúð-
um. Okkur dettur ekki í hug að
gera þetta innan veggja heimilis
okkar og hvers vegna ættum við
því að fleygja þessu ruslu frá okk-
ur á víðavangi. Þarna þurfum við
að virkja hvert annað með sam-
eiginlegri hugsun um að það
muni engu fyrir okkur að henda
rusli í ruslatunnur en það muni
öllu fyrir umhverfið.
Fullorðnir verða að ganga á
undan og sýna gott fordæmi í um-
gengni sem og öðrum athöfnum
daglegs lífs. Ræða þarf við börn-
in og unglingana um gildi heil-
næms umhverfis og sýna með
samtakamætti að sóðaskapur,
veggjakrot og annar óþrifnaður er
ekki hluti af því umhverfi sem við
kjósum okkur.
Hvatt er til umræðu um um-
gengni og umhverfismál innan
skólanna, íþróttafélaga og alls
staðar þar sem börn og unglingar
koma saman í skipulögðu starfi.
Vorhreinsun
Vorhreinsun í görðum hefst eft-
ir sumardaginn fyrsta. Frá 21.- 30.
apríl eru borgarbúar hvattir til að
taka til hendinni í sínu nánasta
umhverfi. Starfsmenn Fram-
kvæmdasviðs verða á ferðinni og
munu fjarlægja garðaúrgang og
greinaafklippur sem sett hefur
verið út fyrir lóðamörk. Jafnframt
eru borgarbúar, stofnanir og fyr-
irtæki hvött til að efna til sameig-
inlegra hreinsunardaga til að
skapa stemmingu hjá sínu fólki
fyrir þessum málum. Ég skora á
íbúa, félagasamtök, fyrirtæki og
stofnanir í Breiðholti að taka
höndum saman um að virkja okk-
ur öll í að standa vörð um um-
gengni í hverfinu okkar, því það
munar engu fyrir okkur en það
munar öllu fyrir umhverfið !
Fallegt og heilnæmt umhverfi
Ragnar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri
Þjónustumiðstöðvar Breiðholts skrifar:
Ragnar Þorsteinsson.