Breiðholtsblaðið - 01.04.2006, Page 12
Frambjóðendur Samfylkingar-
innar til borgarstjórnar hafa að
undanförnu farið um Breiðholt og
hitt íbúana að máli. Við byrjuðum
á því að ræða við fólk í grunnskól-
um, leikskólum, verslunarkjörnum
og í félags- og íþróttastarfi. Við
eigum eftir að fara á ýmsa staði,
en það sem okkur er efst í huga á
þessari stundu er hversu mikil
kraftur og atorka er í því fólki sem
við höfum hitt. Það er almennt
ánægt með hverfið sitt, en hefur
þó mjög ákveðnar skoðanir á því
hvað megi betur gera. Við viljum
þakka öllum sem við höfum hitt
fyrir að gefa okkur stund með sér.
Viðbætur við skólana
Skólastarfið er mjög gott í hverf-
inu og margir skólanna hafa mark-
að sér sérstöðu fyrir góða og
stundum sérhæfða þjónustu, auk
þess sem skólar hafa fengið verð-
laun fyrir framúrskarandi starf.
Fjöldi skólabarna hefur þróast
með mismunandi hætti. Þótt rúmt
sé um börnin á einum stað er slíku
ekki að heilsa á öðrum. Nú hefur
verið ákveðið að byggja við
Ölduselsskóla. Haldinn var fjöl-
mennur fundur með foreldrum og
skólafólki miðvikudaginn 5. apríl
sl. Og var fagnað mjög þeirri
ákvörðun borgaryfirvalda að hefj-
ast handa strax á þessu ári. Mötu-
neytisaðstaða verður í nýjum fjöl-
nota sal, og nýjum kennslurýmum
verður bætt við, þar á meðal rými
fyrir tónlistarnám. Við Seljaskóla
hefur verið tekinn grunnur að við-
byggingu sem skjótt mun rísa. Ein-
nig er brýnt að huga að viðbygg-
ingu við Breiðholtsskóla sem er
næstur á forgangslista og á að
hefjast handa með forsögn á
þessu ári. Í Fellaskóla er nú verið
að gera upp gamla Fellahelli og
verður þar sköpunarsmiðja
grunnskólanna, sem er nýmæli
Reykjavík.
Það vakti athygli okkar á ferð
um hverfið hversu mikil breyting
hefur orðið í Fellaskóla á tiltölu-
lega skömmum tíma. Þar hefur
börnum af erlendum uppruna
fjölgað verulega á síðustu misser-
um. Þótt börnin séu fljót að læra
íslensku kallar þetta vitaskuld á
ný vinnubrögð og hefur skólinn
tekið á þessum málum af mikilli
festu. Þá getum við nefnt, að það
vakti athygli okkar sem ekki erum
að vinna í skólamálum að jafnaði,
hvernig skólarnir hafa þjónað vel
nemendum með fötlun af ýmsu
tagi.
Umferðaröryggið er gott,
en lengi má gott bæta
Við höfum orðið þess áskynja
að íbúar vilja bæta umferðarör-
yggi í hverfinu, einkum nálægt
skólum. Það á meðal annars við
um Skógarsel þar sem börn úr
Ölduselsskóla þurfa að fara í
íþróttatíma í ÍR-heimilinu. Svipað
gildir um Norðurfell við Fellaskóla.
Þrátt fyrir aðgerðir þarf enn úr að
bæta. Hér má minna á að í aðal-
skipulagi Reykjavíkur er gert ráð
fyrir göngubrú yfir Breiðholts-
braut skammt austan gatnamót-
anna við
Norðurfell.
Við munum
fylgja því
eftir að tryg-
gja öryggi
g a n g a n d i
vegfarenda
sem þar
þurfa að
fara yfir,
sem og ann-
ars staðar.
Skíðabrekkan í
Vatnsendahverfi
Búið er að samþykkja í viðkom-
andi nefndum borgarinnar, að
frumkvæði Samfylkingarinnar, að
þessi brekka verði lagfærð þannig
að hún verði lengd og gerð bratt-
ari í efri endann. Samfylkingin
mun fylgja því eftir að þessi lag-
færing komist til framkvæmda á
næsta kjörtímabili.
Breiðholtið er ríkt
Bæði ungir og aldnir geta fundið
athafnaþrá sinni farveg í Breið-
holtinu. Unga fólkið er margt í
íþróttafélögunum ÍR, Leikni og
Ægi, í skátastarfi eða kirkjustarfi.
Aðstaðan til íþróttaiðkunar er að
mörgu leyti góð, hún hefur farið
batnandi, en sumt þarf að bæta
nokkuð. Við höfum sett stefnuna á
nýtt íþróttahús fyrir ÍR. Gervigras-
völlur er að rísa á svæði félagsins
og á Leiknissvæðinu hefur vallar-
aðstaðan farið batnandi. Þar þarf
hins vegar að bæta húsnæðisað-
stöðuna fyrir félagið. Og það hefur
líka verið tekin stefnan á það.
Sundlaugin við Austurberg er
fjölsótt. Flestir aldurshópar hafa
margt við að vera. Í Árskógum get-
ur fólk komið saman til ýmissa fé-
lagsstarfa og það sama gildir um
gott starf í Gerðubergi, en þar
fengum við m.a. að hlýða á fjöl-
mennan kór eldri borgara. Þá má
ekki gleyma verslunar- og þjón-
ustukjörnunum í Hólagarði og
Mjódd. Þar þarf að tryggja áfram
góða uppbyggingu, meðal annars
með góðu aðgengi allra sem þang-
að þurfa að leita.
Við höfum því fengið að hlusta á
margt á ferðum okkar um Breið-
holtið að udanförnu. Við höfum
heyrt að fólki finnst gott að búa í
Breiðholti og í því er kraftur og
þor. En við höfum líka fengið að
heyra hverju fólk vill helst breyta.
Nokkur atriði höfum við nefnt hér,
en munum á næstunni vinna frek-
ar úr þeim óskum og ábendingum
sem fram hafa komið og kynna
Breiðhyltingum fljótlega þau
stefnumál sem við viljum setja á
oddinn fyrir hverfið.
Þeir frambjóðendur sem farið
hafa um hverfið eru Dagur B. Egg-
ertsson, Steinunn Valdís Óskars-
dóttir, Stefán Jón Hafstein, Björk
Vilhelmsdóttir, Oddný Sturludótt-
ir, Dofri Hermannsson, Stefán Jó-
hann Stefánsson, Gunnar H.
Gunnarsson og Ingimundur Pét-
ursson. Fjórir frambjóðendanna
búa í Breiðholti, þau Björk, Stefán
Jóhann, Gunnar H. og Ingimundur.
APRÍL 200612 Breiðholtsblaðið
Samfylkingin hlustar
á Breiðhyltinga
Stefán Jóhann Stefánsson skrifar:
Stefán Jóhann
Stefánsson.
Þann 23. mars sl. var kvöld-
vaka í Félags- og þjónustumið-
stöð Árskógum 4. Kvöldvaka að
þessum toga hafði ekki verið
haldin þar áður þannig að nú
fannst stjórnendum og öðrum
kominn tími til þess að gera eitt-
hvað „nýtt“ og gefa þar með
fólki tækifæri á að koma saman
og skemmta sér við hin ýmsu
skemmtiatriði ásamt því að
spjalla.
Þetta er einn liðurinn í því að
hvetja fólk til þess að koma og
hittast fyrir utan reglubundið fé-
lagsstarf. Góð mæting var á
þessa skemmtun en alls voru
þarna komnir saman um 75
manns á ýmsum aldri, allt frá
fermingarbörnum til fólks á tí-
ræðisaldri. Margt var gert sér til
gamans og má nefna atriði frá
fermingarbörnum úr Seljakirkju,
krakkar úr Ölduselsskóla voru
með tískusýningu en þau klædd-
ust fötum af eldra fólki, upplest-
ur, söngatriði, myndasýning af fé-
lagsstarfinu o.fl. Gaman var að
sjá hversu krakkarnir sem tóku
þátt í þessari skemmtun höfðu
gaman af og verður leitað til
þeirra ef þess þarf og eru þau
alltaf tilbúin eins og þau orðuðu
það. Ekki hafði „eldra fólkið“
síður gaman af því að fá ungviðið
til þess að skemmta sér.
Ekki var að heyra annað á
þeim sem þarna mættu að þetta
hefði verið mjög gaman og er tal-
að um að þetta þurfi að vera
reglulega í framtíðinni, sem það
að sjálfsögðu verður.
Ungir og aldnir ná vel saman í félagstarfi
Kvöldvaka í Árskógum
Drykkjarjógúrt er svo til fitulaus máltíð
sem inniheldur heilnæmar trefjar.
Hún er fljótlegur og gómsætur kostur
þegar þú hefur varla tíma til að borða
og sparar þér eldamennsku og uppvask.
Fljótleg máltíð í flösku