Breiðholtsblaðið - 01.04.2006, Blaðsíða 15
Á 99 ára afmæli Íþróttafélags
Reykjavíkur laugardaginn 11.
mars sl. hélt skíðadeild ÍR Mikla
- Reykjavíkurmeistaramót 9 til
12 ára krakka í Bláfjöllum og
tóku hátt í 100 krakkar þátt í
mótinu. Aðstæður í fjalli voru
frekar erfiðar því snjóað hafði
verulega um nóttina og skyggni
var frekar lélegt.
Snjór er eitthvað sem við höf-
um ekki haft nóg af þennan vetur-
inn og vonandi er þessi snjór
komin til að vera eitthvað áfram.
En mótið tókst í alla staði vel og
voru allir krakkar að standa sig
með sóma. ÍR-krakkar voru þar
fremst í flokki, voru öll á verð-
launapalli og óskum við þeim til
hamingju. Eldri krakkarnir í skíða-
deildinni 13 til 16 ára eru búin að
taka þátt í mótum úti á landi og
hafa verið að standa sig mjög vel,
eru sannir ÍR-ingar. Stjórn skíða-
deildar ÍR þakkar öllum krökkum
þátttöku og þakkar öllum sem
voru að aðstoða við mótið. Hægt
er að skoða myndir og annað
fróðlegt um skíðadeildina
inn á heimasíðu okkar.
http://www.irsida.is/skidi/.
Myndin er af hluta verðlaunahafa í yngri flokknum.
APRÍL 2006 15Breiðholtsblaðið
Fréttir
Íþróttafélag Reykjavíkur
Skógarseli 12 • Sími 587 7080
Myndsími: 587 7081
Tölvupóstur: iradal@isholf.is
Fimm pör úr dansdeild ÍR tóku þátt í stóru alþjóðlegu móti í Tralee á Ír-
landi í lok febrúar og er mótið talið eitt af stóru mótunum í heiminum.
Segja má að vel hafi gengið því að börnin komu hlaðin verðlaunum
heim og vöktu þau mikla athygli í dansheiminum. Dansdeildin átti pör
inni í úrslitum í öllum keppnunum sem þau tóku þátt í. Þetta eru
krakkar á aldrinum 7 til 11 ára og eiga þau svo sannarlega framtíðina
fyrir sér.
Upplyfting hefur átt sér stað á
skemmtilegu íþrótta- og leikja-
námskeiði sem ÍR stendur fyrir.
Námskeiðin eru bæði fyrir stelp-
ur og stráka fædd á árunum
1996 til 2000 og er farið í fullt af
leikjum, s.s. ratleiki og skemmti-
lega útileiki, einnig fá börnin að
fara í hinar ýmsu íþróttagreinar
sem þjálfarar í viðkomandi
grein munu koma að.
Innan ÍR eru níu íþróttagreinar
svo af nógu er að taka. Með
þessu stuðlum við að fjölbreyttri
hreyfingu fyrir börnin. Farið
verður í sund, í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinn og í keilu í
Mjódd. Þess fyrir utan er um-
hverfi ÍR stórbrotið og margt
hægt að gera í gönguferðum.
Námskeiðin eru í boði allan dag-
inn, frá kl.09:00 til 16:00, eða hálf-
an dag fyrir þá sem þess óska.
Börnin hafa jafnframt kost á að
vera í gæslu frá 8:00 til 09:00 og
frá 16:00 til 17:00 dagana sem
þau eru á námskeiðinu og er ekki
greitt sérstaklega fyrir það. Um
vikunámskeið er að ræða og hefj-
ast þau strax að loknum skóla í
júní.
Fjörfiskar í frjálsum og
fótbolta
Nýjung í starfi ÍR í ár er að
bjóða upp á námskeið þar sem
börn fá tækifæri til að iðka bæði
fótbolta og frjálsar íþróttir í
bland við ýmsa leiki og útiveru.
Um hálfsdagsnámskeið er að
ræða, ætlað börnum fædd árið
1993 til 2000. Börnin verða að
hluta til saman en einnig verður
þeim skipt upp í smærri hópa eft-
ir aldri og getu. ÍR er með úrvals-
fólk á þessu sviði sem mun kenna
öll helstu tækniatriði beggja
íþróttagreinanna og leggja áher-
slu á að börnin fái sem mest út úr
námskeiðunum. Námskeiðin eru
sniðin að æfingatöflum deildanna
tveggja. Þekktir einstaklingar
koma í heimsókn og öllum er
veitt viðurkenning að námskeiði
loknu. Aðstaðan til þessarar
íþróttaiðkunar er mjög góð við
félagsheimili ÍR að Skógarseli og
nánasta umhverfi er ævintýra-
legt. Börnin fá að upplifa íþrótt-
irnar sem hreina skemmtun í
góðum félagsskap þar sem allir
standa jafnir.
Fagaðilar sjá um þessi nám-
skeið, íþróttafræðingar með
reynslu af kennslu og þjálfun.
Einnig koma að námskeiðunum
einstaklingar sem bera hag barn-
anna og þessara tveggja nám-
skeiða fyrir brjósti. Skráning á
„Fjörkálfar í frjálsum og fótbolta“
og „Íþrótta- og leikjanámskeið ÍR“
hefst mánudaginn 8. maí og fer
hún alfarið fram í gegnum skrif-
stofu ÍR á 2. hæð félagsheimilis-
ins. Af þátttökugjaldi er veittur
systkinaaflsáttur. Einnig er gefinn
afsláttur þeim sem óska eftir
fleiri en einni viku. Hægt er að
greiða á ýmsa vegu, en greiða
þarf strax í upphafi námskeiðs. Ef
greitt er með kreditkorti er nóg
að hringja. Tölvupóstur hjá
Elsu sem sér um innheimtu er
irafgr@simnet.is.
Nánari upplýsingar um nám-
skeiðin er hægt að finna á heima-
síðu ÍR www.irsida.is og hjá
Sigrúnu Grétu, íþróttafulltrúa í
síma 587-7080.
Íþróttir og leikir og fjörfiskar
í frjálsum og fótbolta
Tveir ÍR-ingar af þremur íslensk-
um keppendum kepptu á Heims-
meistaramóti öldunga í frjálsum
íþróttum innanhúss sem fram fór
fram í Linz í Austurríki 15. til 20.
mars. Þetta voru þau Fríða Rún
Þórðardóttir, sem keppti í 800
metra, 1500 metra og 3000 metra
hlaupi og Stefán Hallgrímsson sem
keppti í fimmtarþraut.
Stefán varð heimsmeistari í flokki
55 til 59 ára og hafði hann um 300
stiga forskot á þann sem varð í öðru
sæti. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Stefán stendur á verðlaunapallinum
í fjölþraut en á síðasta ári varð hann
annar á heimsmeistaramótinu utan-
húss í ágúst og í fyrsta sæti á Evr-
ópumeistaramótinu innanhúss auk
þess sem hann hefur unnið fjölda
heims-, Evrópu og norðurlandatitla í
gegnum tíðina.
Fríða Rún keppti í flokki 35 til 40
ára og varð hún í þriðja sæti í 3000
metra hlaupi, fimmta sæti í 1500
metra hlaupi og sjöunda sæti í 800
metra sem var aukagrein hjá henni.
Stefán heimsmeistari
AluCup, fyrirtækjamót frjálsí-
þróttadeildar ÍR í frjálsíþróttum
fór fram í fyrsta sinn í nýju Laug-
ardalshöllinni þann fyrsta apríl.
Um 240 keppendur frá 30 fyrir-
tækjum háðu drengilega og spenn-
andi keppni og var keppnishark-
an mikil og ekkert síðri en hjá
yngra frjálsíþróttafólkinu sem í
þetta sinn mældi og tók tíma hjá
þeim fullorðnu.
Alcan var styrktaraðili mótsins
sem stóð frá kl. 13 til 18 og var
Rannveig Rist sjálf á staðnum og
veitti verðlaun og hvatti keppendur
til dáða. Börn og fjölskyldur kepp-
enda fengu eitthvað fyrir sinn snúð
en til að mynda mætti Solla Stirða í
heimsókn auk þess sem boðið var
upp á hollar veitingar á meðan á
mótintu stóð. Markmiðið með mót-
inu var fjölþætt og var það hugsað
sem fjölskylduvæn heilsurækt
starfsmanna fyrirtækjanna, jafn-
framt því að vekja athygli á frjáls-
um íþróttum á Íslandi og hinni frá-
bæru aðstöðu sem búið er að
byggja í Laugardalnum.
Ljóst er að AluCup er komið til
að vera með áframhaldandi stuðn-
ingi Alcan og vonandi enn meiri
þátttöku íslenskra og erlendra fyrir-
tækja á næsta ári. Sjá má úrslit
mótsins á www.fri.is / mótaforrit
(lengst til vinstri á síðunni) en þar
má sjá nöfn nokkurra fyrrum lands-
liðsmanna og -kvenna auk núver-
andi og fyrrverandi Íslandsmethafa
í ýmsum greinum auk fjölda framá-
manna í íslensku þjóðlífi.
Um 240 keppu á AluCup
Hið árlega marsmaraþon Fé-
lags maraþonhlaupara var hald-
ið laugardaginn 25. mars. Keppt
var í hálfu- og heilu maraþoni og
voru keppendur alls 94.
Fremstur ÍR-inga og annar í
hlaupinu varð Valur Þórsson sem
hljóp 21 km. á 1:19.52 klst. Sigur-
jón Sigurbjörnsson varð í fimmta
sæti á 1:24.27 klst. Sigurður Þórar-
insson varð 7. á 1:26.39 mín. og
Birgir Sveinsson 19. á 1:34.21 klst.
Bryndís Ernstsdóttir varð fyrst
kvenna og 11. af öllum í mark á
tímanum 1:29.31 klst. Sigurbjörg
Eðvarðsdóttir varð 33. og Remi
Spilliaert 37. Heildarúrslit má sjá á
www.hlaup.is
Valur fremstur ÍR-inga í maraþoni
ÍR-PLS urðu deildarmeistarar í
fyrstu deild karla eftir æsispenn-
andi lokaumferð fimmtudags-
kvöldið 30. mars.
ÍR-PLS hlutu 307 stig í deildinni
en KR-A, sem urðu í öðru sæti hlutu
305 stig. Réðust úrslit í síðasta
ramma í leik ÍR-PLS og Lærlinga. Í
undanúrslitum mætast því ÍR-PLS
og ÍR-KLS annars vegar og hins
vegar KR-A og KFR-Lærlingar.
ÍR-PLS deildarmeistarar
Sjöundi flokkur karla hjá ÍR
hélt knattspyrnumót laugardag-
inn 4. mars sl. í Austurbergi. Er
þetta í þriðja sinn á jafnmörgum
árum sem þetta mót er haldið en
mótið er haldið í tvennum til-
gangi. Annars vegar að gefa
strákunum kost á því að spila á
móti sem er skipulagt af þeim og
foreldrum þeirra og hins vegar
til þess að safna peningum fyrir
Skagamótið sem þessi flokkur
fer á ár hvert.
Fjögur félög tóku þátt í mótinu
og mismörg lið voru frá hvoru en
alls voru um 120 keppendur frá
liðum: FH, Hauka, UMFÁ og ÍR.
Þetta mót var líkt hinum tveimur
þ.e. tókst í alla staði mjög vel
enda foreldrar flokksins búnir að
leggja sitt af mörkum til þess að
allt gengi upp og bæði keppendur
sem og aðrir færu sáttir heim og
hefðu upplifað góðan dag. Rétt er
að geta þess að nokkur fyrirtæki
styrktu mótið myndarlega og má
nefna Sunnumörk, Egil Skalla-
grímsson og Káess í því sam-
bandi. Nú þegar er foreldraráð
flokksins ásamt foreldrum búnir
að ákveða að halda mót í sumar
þar sem strákarnir fá möguleika á
því að spila á sínum heimavelli,
en þessi flokkur fær aldrei neina
leiki á sínum heimaslóðum allt
sumarið. Það eru félög búin að
sýna áhuga á því að koma til okk-
ar en mót þetta verður haldið
einn laugardag sem endar með
mikilli grillveislu. Nánar verður
fjallað um þetta mót þegar nær
dregur.
Bestu þakkir fá allir þeir sem á
einn eða annan hátt komu nálagt
skipulagningu eða öðru á þessu
skemmtilega móti
Foreldraráð, foreldrar og kepp-
endur 7. fl. ÍR
Sunnumarkamarka mót 7. flokks
Nær 100 krakkar á
Mikla - Reykjavíkurmeistarmótinu
Frá dansdeild ÍR:
Frábær árangur á
dansmóti á Írlandi
Íþróttanámskeið 2006