Breiðholtsblaðið - 01.05.2006, Síða 1
Vorið í Mjóddinni hófst 9. maí
með myndlistarsýningu leik-
skólabarna og mun sýningin
standa yfir í tvær vikur eða til
23. maí. Leikskólabörn fjöl-
menntu í Mjóddina þegar mynd-
listarsýningin var opnuð form-
lega í göngugötunni. Á meðal
þess sem boðið bar upp á var að
Ronja ræningjadóttir kom í
heimsókn og börnin fengu
íþróttanammi eða réttara sagt
ávexti að borða.
Ragnheiður Sigurðardóttir,
framkvæmdastjóri Mjóddarinnar,
sagði í samtali við Breiðholtsblað-
ið að sérstakir vordagar hafi stað-
ið yfir í Mjóddinni 10. til 13. maí.
Verslanir hafi fært vörur sínar út
á göngugötu og þannig myndað
sannkallaða götumarkaðs-
stemmningu og einnig boðið gest-
um upp á ýmis tilboð og frábær
kaup á vordögunum. Ragnheiður
segir fólk sækja sífellt meira og
meira í Mjóddina. Hún sé greini-
lega farin að festa sig í sessi sem
þjónustumiðstöð þótt það hafi
tekið sinn tíma í samkeppni við
aðra staði í borginni. Mjóddin hafi
m.a. þann kost að vera mjög mið-
svæðis á höfuðborgarsvæðinu og
einnig vel staðsett með tilliti til
samgangna. „Þótt þetta sé einkum
þjónustu- og miðbæjarkjarni fyrir
Breiðholtið þá liggur Mjóddin ein-
nig vel við samgöngum til austur
hluta Reykjavíkur, suður hluta
Kópavogs, Garðabæjar og Hafnar-
fjarðar. Ég verð greinilega vör við
þennan áhuga því sífellt eykst eft-
irspurnin eftir atvinnuhúsnæði
hér.“ Allt húsnæði á jarðhæð er
nú nýtt til verslunar- og þjónustu-
starfsemi en ýmis konar starfsemi
og þar á meðal heilbrigðisþjón-
usta fer fram á efri hæðum. Ragn-
heiður bendir sérstaklega á
heimahjúkrunina sem staðsett er
í Mjóddinni og segir að þar séu
um 100 manns að daglegum
störfum.
Fyrir nokkru fluttu nokkur fyrir-
tæki sig úr Mjóddinni og má þar
nefna höfuðstöðvar VÍSA, tölvu-
þjónustu Landsbankann og versl-
un ÁTVR. „Það er alltaf vont að
missa góða granna en það er mik-
il eftirspurn eftir þessu húsnæði
og ég vænti þess að það verði
fljótlega komið í notkun.“
5. tbl. 13. árg.
MAÍ 2006Dreift frítt í öll hús í Breiðholtinu
Útsala á kindakjöti
Fersk jarðaber
Frábært verð
■ bls. 4-5
Viðtal við
Sigurð Dagsson
Opið virka daga 9-18:30 og laugardaga 10-14
Mjódd
■ bls. 15
Íþróttir
Lyfjaval.is • Sími 577 1160
Leikskólabörn fjölmenntu í Mjóddina þegar myndlistarsýningin var opnuð formlega í göngugötunni.
Leikskólabörnin komu með vorið í Mjóddina