Breiðholtsblaðið - 01.08.2006, Qupperneq 3
ÁGÚST 2006 3Breiðholtsblaðið
Um 400 íbúar í Breiðholti
tóku þátt í fegrunarátaki Reykja-
víkurborgar sem fram fór 22.
júlí sl. Margir voru mættir um
kl. 11.oo þegar vinna við átakið
hófst og voru sjálfboðaliðar að
bætast í hópinn allan daginn.
Starfsmenn Reykjavíkurborgar
höfðu undirbúið daginn og út-
hlutað verkefnum til íbúanna.
Vinnudeginum lauk síðan með
grillveislu, skemmtiatriðum og
sundi á milli kl. 16 og17.00.
Þótt svo margir kæmu að átak-
inu á vegum Reykjavíkurborgar
og mættu til starfa þá notuðu
mjög margir íbúar í Breiðholti
daginn til þess að laga til í görð-
um sínum og umhverfs hýbýli
sín. Af þeim sökum vann mikill
fjöldi fólks að umhverfis- og fegr-
unarmálum þennan dag en óger-
legt er að áætla þann fjölda sem
tók til hendinni á heimalóðum.
Borgarfulltrúar og starfsmenn
borgarinnar létu sitt ekki eftir
liggja og mættu til leiks strax um
morguninn og störfuðu með íbú-
unum lengi dags. Í bækistöðinni
við Breiðholtslaug voru á meðan
annarra Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son, borgarstjóri og borgarfull-
trúana Gísli Marteinn Baldurs-
son, Sif Sigfúsdóttir, Jórunn Frí-
mannsdóttir og varaborgarfull-
trúinn Sóley Tómasdóttur. Í
bækistöðinni við Hólmasel var
Björn Ingi Hrafnsson, formaður
borgarráðs, mættur ásamt Jakob
Hrafnssyni bróður sínum til að
skipuleggja ásamt Gunnsteini
Olgeirssyni frá garðyrkju Reykja-
víkurborgar og við Breiðholts-
skóla höfðu þeir Ragnar Þor-
steinsson, framkvæmdastjóri
Þjónustumiðstöðvarinnar í Breið-
holti, og Vilhjálmur Grímsson
auga með framkvæmdum.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarstjóri kvaðst ánægður
með þennan fyrsta dag í
fegrunarátaki Reykjavíkurborgar.
Hann sagði að ekki hægt að þola
sóðaskap og hvatti húseigendur
og eigendur fyrirtækja til að
snyrta í kringum sig. Hann sagði
fólki líða betur í fallegu umhverfi
og það ætti því að sjá sóma sinn í
því að taka til á lóðum sínum.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri mætti til leiks í fegrunarátrak-
ið ásamt Guðrúnu Kristjánsdóttur konu sinni. Á milli þeirra á
myndinni er Laufey Zophoníasdóttir. Laufey er 72 ára íbúi í
Breiðholtinu. Hún lét ekki sitt eftir liggja og starfaði allan daginn að
fegrunarmálunum.
Um 400 manns í fegrunarátaki