Breiðholtsblaðið - 01.08.2006, Síða 10
ÁGÚST 200610 Breiðholtsblaðið
Sundfélagið Ægir er bikar-
meistsari í þriðja sinn í röð og
Ægisfélagar settu tvö Íslandsmet
í sigurgöngu sinni í Bikarkeppni
SSÍ 2006. Ægir er þó ekkert að
vekja athygli á sér í fyrsta skipti
því félagið er með elstu íþrótta-
félögum hér á landi, stofnað
þann 1. maí árið 1927. Því verð-
ur ekki annað sagt en þetta
gróna félag hafi elst vel og Ægis-
menn nútímans engu síðri en
þeir garpar sem hófu sundíþrótt-
ina til vegs með félsgsstofnun
fyrir bráðum 80 árum. Breið-
holtsblaðið spjallaði við Gústaf
Adolf Skúlason, formann Ægis
og Eyleif Jóhannesson, þjálfara
félagsins af þessu tilefni.
Félagatalan þrefaldast
Hver er galdurinn að baki þeirr-
ar velgengni sem Ægiringar hafa
notið á mótum að undanförnu.
Gústaf segir að rekja megi þá
sögu um tvö ári aftur í tímann.
„Þá réðum við Eyleif Jóhannes-
son sem yfirþjálfara félagsins og
hann er nú að ljúka öðru sundári
sínu. Jafnframt ráðningu Eyleifs
lögðum við mikla áhersu á að efla
yngri flokkana í sundinu. Við for-
um af stað með auglýsingaher-
ferð. Við fórum í skólana og
kynntum það starf sem við vorum
að bjóða. Þetta kynningarstarf
hlaut góðar undirtektir og nokkrir
eldri sundmenn gengu einnig til
liðs við eldri flokka félagsins. Við
fengum til liðs við okkur fólk af
öllu höfuðborgarsvæðinu og jafn-
vel utan af landi. Síðan hefur það
verið meginmarkmið okkar að
byggja félagið upp og félagatalan
hefur nær því þrefaldast á þess-
um tveimur árum sem liðin eru
frá því við hófum þetta átak.“
Gústaf segir að þrátt fyrir góðan
gang í elstu hópum félagsins
þessu tvö ár sé mikill áhugi fyrir
hendi á að byggja yngri flokkana
betur upp. „Við erum að sjá góð-
an árangur og erum mjög ánægð
með þá þróun vegna þess að upp-
bygging yngri flokka er mikilvæg
fyrir öll íþróttafélög.“
Ungverjar, Frakkar, Rúss-
ar og Egyptar
Gústaf segir að ekki sé nóg að
hafa einn aðila sem vinni ötullega
að málum sem þessum heldur
hafi ellefu þjálfarar komið að
störfum hjá félaginu á síðasta
sundári. „Við höfum verið heppin
að þessu leyti að til okkar hefur
komið bæði gott og vel menntað
fólk. Þar er bæði um íþróttakenn-
ara að ræða og einnig aðra sem
eiga það sameiginlegt að hafa
mikinn áhuga og metnað fyrir
sínu starfi. Við höfum haft þjálf-
ara frá Rússlandi, frá Egyptalandi,
Frakkandi og Ungverjalandi en
aðall okkar er að við erum með ís-
lenskan yfirþjálfara.“ En er fólk
frá þessum löngum gott sund-
fólk? Hér grípur Eyleifur Jóhann-
esson inni og svarar að bragði.
„Já - þessar þjóðir eiga gott sund-
fólk. Ekki síst Ungverjar sem eiga
sér ríka sundhefð ekkert síður en
við Íslendingar. Rússar eiga ein-
nig margt gott sunfólk og margar
fleiri þjóðir. Það er misskilningur
að Íslendingar séu alveg sér á báti
í þessum efnum vegna þess að
þeir eigi nóg af heitu vatni og mik-
ið af sundlaugum.“ Ungverski
þjálfrinn Zoltan Beláni er einnig
haldboltamaður. Hann hefur búið
hér um hríð og hefur spilað
marga leiki sem slíkur og varð
m.a. Íslandsmeistari með Fram
fyrr á þessu ári.
Lykillinn er gott fólk
Gústaf segir að Ægiringar hafi
einnig verið heppnir með annað
fólk og félagsstarf. „Þar koma
margir að. Bæði þeir sem starfa í
stjórn og einnig í foreldraráði.
Lykilinn að góðu starfi er að fá
gott fólk og að margir hjálpist að.
Að öðrum kosti næðist ekki sá ár-
angur sem við höfum náð.“ Gúst-
af hefur verið formaður Ægis í
nær þrjú ár og kveðst hafa helgað
sig þessu starfi eins og hann hafi
frekast getað með fullu öðru
starfi. En er hann þá kominn í
250% vinnu með starfi og áhuga-
máli. „Nei - það er ekki alveg svo
mikið en ég er eflaust í miklu
meira en 100% vinnu ef allt er
talið. Það fer allur frítíminn í þetta
og fjölskyldan stendur þétt sam-
an að baki þessu starfi.“ Það kem-
ur á óvart þegar Gústaf segist
ekki vera neinn sérstakur sund-
maður sjálfur. Svona hæfilega fær
um að fara í heita pottinn en
hann hefur skýringar á reiðum
höndum. Þær helgast af því að
dætur hans hafa stundað sund af
miklum krafti og oft þróast málin
á þá leið þegar börn og ungmenni
taka þátt í íþóttum þá koma for-
eldrarnir að félagsstarfinu sem
liggur að baki íþróttaiðkuninni.
Og það er ljóst að áhuginn er mik-
ill. „Við leggjum mjög mikla áher-
slu á að grunnstarfið með börn-
unum og ungmennunum sé bæði
mikið og gott. Ef okkur tekst að
efla það og viðhalda því þá verð-
ur félagið áfram ölfugt og félag-
arnir skila eins góðum árangri og
þeir eru að gera í dag. Ef félagið
endurnýjast ekki jafnt og þétt þá
deyr starfið fljótlega út og árang-
urinn hverfur. Það er alltaf hætta
á að bólur komi upp. Nokkrir öfl-
ugir árgangar sýni áhuga og láti
til sín taka en hverfi svo á braut.
Þá er erfiðara að ná þessu upp
aftur.“ Eyleifur bendir á að al-
gengt sé að sterkir árgangar komi
fram en síðan komi dautt tilmabil
þegar þeir hætti. Þess vegna sé
svo mikilvægt að hafa breiðan
grunn að baki félaginu. „Við þurf-
um að leggja áherslu á að félagið
myndi einn samhangandi þráð
alveg niður í yngstu hópana og
þannig að allir séu að vinna eftir
sama formi í stað þess að einum
sé kennt eitt og öðrum annað,“
segir Eyleifur og Gústaf bætir við
að sami rauði þráðurinn gangi í
gegnum allt félags- og þjálfunar-
starfið. Stefnumörkunin gangi allt
niður í byrjendahópa og alla leið
upp.
Fullbókuð námskeið og
biðlistar
Ægismenn ætla að efla þetta
starf frekar á komandi hausti.
Ætlunin er að bjóða upp á ung-
barnasund, sund fyrir tveggja ára
og tveggja til þriggja ára í nýju
innilauginni við Breiðholtslaug-
ina. Eyleifur segir markmiðið vera
að geta boðið eitthvað fyrir alla.
Barnasundið fyrir yngstu hópana
og einnig æfingar fyrir þá sem
vilja minnka við sig. Ægir hefur
staðið fyrir námskeiðum fyrir
börn frá fjögurra til sex ára að
undanförnu og segir Eyleifur þau
hafa gengið mjög vel og notið vin-
sælda. „Við höfum aldrei auglýst
þessi námskeið en engu að síður
eru biðlistar til þess að komast
að,“ segir Eyleifur og Gústaf bætir
við að Ægir hafi ekki haft nægjan-
legt laugapláss í innilauginni til
þess að anna allri eftirspurn
vegna yngstu hópanna. Þeir segja
Eyleifur Jóhannsson, yfirþjálfari Ægis og Gústaf Adolf Skúlason
formaður.
Formaður, yfirþjálfari og keppendur. Efri röð frá vinstri: Gústaf Adolf Hjaltason, Jón Símon Gíslason. Árni
Már Árnason, Oddur Örnólfsson, Kjartan Hrafnkelsson, Jakob Jóhann Sveinsson, Baldur Snær Jónsson og
Eyleifur Jóhannsson. Neðri röð frá vinstri: Ólöf Lára Halldórsdóttir, Jóhanna Gerða Gústafsdóttir, Auður
Sif Jónsdóttir, Snæfríður Jóhannsdóttir og Anja Ríkey Jakobsdóttir.
Keppendur, þjálfarar og formaður hampa bikarnum að móti loknu.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri í hópi sigurvegara Ægis.
Boðsundsveit Sundfélagsins Ægis setti nýtt stúlknamet í 4x100m fjór-
sundi. Sveitina skipuðu Snæfríður Jóhannsdóttir, Auður Sif Jónsdóttir,
Guðrún Vaka Steingrímsdóttir og Jóhanna Gerða Gústafsdóttir.
Félagatalan hefur þrefaldast