Breiðholtsblaðið - 01.08.2006, Blaðsíða 11
ÁGÚST 2006 11Breiðholtsblaðið
Heimasíða: www.borgarblod.is
Skólasetning Fellaskóla verður þriðjudaginn 22.
ágúst 2006. Nemendur mæti til skólasetningar í
hátíðarsal skólans:
8., 9. og 10. bekkir kl. 9.00
5., 6. og 7. bekkir kl. 10.00
2., 3. og 4. bekkir kl. 11.00
Nemendur 1. bekkjar verða sérstaklega boðaðir
með foreldrum sínum 22. og 23. ágúst.
Skólastjóri
Skólasetning
Fellaskóla
haustið 2006
Skólasetning verður í Hólabrekkuskóla
þriðjudaginn 22. ágúst.
Nemendur mæti í hátíðarsal skólans sem hér
segir:
8., 9. og 10. bekkur kl. 9.00
5., 6. og 7. bekkur kl. 10.00
2., 3. og 4. bekkur kl. 11.00
Nemendur í 1. bekk verða boðaðir sérstaklega
með foreldrum sínum 22. og 23. ágúst.
Skólastjóri
Skólasetning
Hólabrekkuskóla
haustið 2006
Nemendur mæti til skólasetningar 22. ágúst 2006
á sal skólans sem hér segir:
10. bekkur....................kl.9:00
9. bekkur......................kl.9:30
8. bekkur......................kl. 10:00
7. bekkur......................kl. 10:30
6. bekkur......................kl. 11:00
5. bekkur......................kl. 11:30
4. bekkur......................kl. 13:00
3.bekkur.......................kl. 13:30
2.bekkur.......................kl. 14:00
Nemendur í 1.bekk verða boðaðir í viðtöl með
foreldrum dagana 22. og 23. ágúst. Bréf þess
efnis hefur verið póstlagt.
Skólastjóri
Skólasetning 2006 -2007 þriðjudaginn 22. ágúst
Starfsfólk Breiðholtsskóla býður nemendur
velkomna til starfa á nýju skólaári.
Nemendur mæti til skólasetningar í anddyri
skólans sem hér segir:
2., 3. og 4. bekkur kl.: 13.00
5., 6. og 7. bekkur kl.: 14:00
8., 9. og 10. bekkur kl.: 15:00
Nemendur 1. bekkjar verða boðaðir í viðtöl með
foreldrum 22. og 23. ágúst.
Skólastjóri
Skólasetning
Ölduselsskóla
haustið 2006
Skólasetning
Breiðholtsskóla
haustið 2006
Skólasetning verður þriðjudaginn 22. ágúst
Nemendur mæti til skólasetningar sem hér segir:
10. bekkur . . . .kl. 9.00
9. bekkur . . . . .kl. 9.30
8. bekkur. . . . . kl. 10.00
7. bekkur . . . . .kl. 10.30
6. bekkur . . . . .kl. 11.00
5. bekkur . . ... .kl. 11.30
4. bekkur . . ... .kl. 13.00
3. bekkur ... . . .kl. 13.30
2. bekkur . ... . .kl. 14.00
Nemendur mæti í samkomuhús skólans.
Nemendur í 1. bekk verða boðaðir sérstaklega í
viðtöl með foreldrum.
Skólastjóri
Skólasetning
Seljaskóla
haustið 2006
að það vanti litlar kennslulaugar
og þessi mál hafi borið á góma
þar sem Ægiringar hafi mætt á
fundum með frambjóendum til
borgarstjórnar fyrir umliðnar
kosningar. „Við sjáum það sem
kjöraðstæður fyrir okkur ef byggt
yrði yfir Ölduselslaugina sem er
við Ölduselsskólann og hún gerð
að kennslu- og æfingalaug fyrir
Efra Breiðholtið og Seljahverfið.
Ég held að það sé hagkvæmasti
kosturinn í þeirri stöðu sem við
erum í dag til þess að bæta sund-
laugarýmið í þessum borgar-
hverfum.“ Gústaf segir að nýja
laugin niðri í Laugardal sé orðin
yfirfull og yfirsetin af æfingum- og
keppnisfólki og þótt sú laug sé
frábær þá sé ekki um kjörna að-
stöðu fyrir ungbarnasund né
sundkennslu að ræða. Eyleifur
segir það ósk foreldra að börnin
eigi sem stysta leið í sundið. Geti
jafnvel farið á hjóli eða gangandi
þegar þau stækka. Hann segir ein-
nig nauðsynlegt að börn geti farið
beint úr skólanum á æfingu og
með yfirbyggðri Ölduselslaug sé
hægt að bjóða slíka möguleika.
Þeir telja að þessar hugmyndir
falli vel að stefnu borgaryfirvalda
um að tengja skóla, listnám,
íþróttir og önnur störf barna og
mynda heilstæðan vinnudag
þeirra. Ölduselslaugin sé mið-
svæðis í stóru íbúðahverfi og í
námd við tvo stóra grunnskóla.
Þarna sé því um gott tækifæri að
ræða.
Fyrst er að venjast
vatninu
Gústaf segir nokkur brögð að
því að Íslendingar, sem eru bú-
settir erlendis komi með börn
hingað heim á sumrin til þess að
láta þau læra að synda þaðan
sem enga sundkennslu er að hafa.
En hvernig byrjar barn að læra að
synda. Eyleifur segir að í fyrstu
þurfi að venja þau við vatnið og
síðan komi að því að kenna þeim
fyrstu sundtökin. „Þetta byggist á
því að kenna þeim að vera örugg í
því umhverfi sem vatnið skapar.
Þetta er allt annar heimur en að
hreyfa sig á þurru landi. Mannin-
um er eðlilegt að draga sig saman
til þess að bjarga sér. Í vatninu er
því öfugt farið. Mannslíkaminn
verður að rétta úr sér og það get-
ur reynst sumum erfitt að ná tök-
um á þessum grunnforsendum
sundsins. Þegar börnunum fer að
líða vel í vatninu þá geta þau farið
að læra og þá er framhaldið
barnaleikur.