Breiðholtsblaðið - 01.10.2006, Qupperneq 6
6 Breiðholtsblaðið OKTÓBER 2006
Breiðholtsdagur að festa sig í sessi
Fjöldaþátttaka Breiðholts-
búa, virkni félagasamtaka og
stofnana og fjölbreytt dagskrá
einkenndi Breiðholtsdaginn
sem haldinn var í fjórða sinn í
göngugötunni í Mjódd laugar-
daginn 30. september s.l. Breið-
holtsdagurinn er því að festa
sig í sessi sem ein af stærri
hverfishátíðum í Reykjavík og
er þegar farinn að hafa jákvæð
áhrif til aukins samstarfs ein-
staklinga, félaga og stofnana í
hverfinu.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
borgarstjóri ávarpaði gesti og
tók á móti niðurstöðum grunn-
skólabarna frá Barnaþingi Breið-
holts sem haldið hafði verið fyrr
í vikunni. Leikskólabörn sungu
fjöldasöng, Gerðubergskórinn
söng, verðlaun vegna ljósmynda-
samkeppni voru afhent, söng-
hópur eldri borgara úr Árskóg-
um söng, ungir dansarar úr ÍR
sýndu frábæra takta á sviðinu.
Mikla athygli vakti atriði tveggja
stráka úr 10. bekk í Fellaskóla
sem sungu og spiluðu af mikilli
list og Idolstjarnan Snorri Snorra-
son sem ólst upp í Breiðholtinu
söng við góðar undirtektir. Fjöl-
þjóðlegur kvennakór kom fram í
fyrsta skipti og átti frábæra inn-
komu eftir aðeins þriggja vikna
undirbúningstíma.
Dagskráin endaði á Betra-
Breiðholtsskokkinu en Atlantsol-
ía greiddi ákveðna upphæð fyr-
ir hvern þátttakanda í skokkinu
sem renna mun til umsjónarfé-
lags einhverfra. Þrjár sýningar
voru opnaðar í göngugötunni á
Breiðholtsdaginn sem allar stóðu
yfir til næstu helgar. Í fyrsta lagi
myndir úr ljósmyndasamkeppn-
inni “Betra Breiðholt, mannlíf og
umhverfi”. Þá ljósmynda og list-
sýning leikskólabarna um þemað
“Hverfið mitt” og að endingu sýn-
ing á niðurstöðum frá Barnaþingi
Breiðholts þar sem fjallað var
um spurninguna: “Hvað getum
við gert fyrir hverfið okkar”.
Margmenni í göngugötunni í Mjódd á Breiðholtsdegi.
SKÓVERSLUN Í ÞÍNU NÁGRENNI
Stærðir 25-35 Verð kr: 4.795.-
Vandaðir skór á alla fjölskylduna í stærðum 16 - 50
SPÖNGINNI S: 587 0740MJÓDDINNI S: 557 1291
GÆÐA BARNASKÓR
GÆÐA HEILSUSKÓR
www.xena.is
LOÐFÓÐRUÐ STÍGVÉL
Stærðir 36 - 41
Stærðir 36 - 41
HÁGÆÐA HEILSUSKÓR
HÁGÆÐA HEILSUSKÓR
Stærðir 18 - 34 Stærðir 18 - 34
Með hverju keyptu pari fylgja
inniskór að eigin vali á barnið!
Stærðir 18 - 26
Mikið úrval af vönduðum
barnaskóm á góðu verði
Eldri borgarar sýna handverk á Breiðholtsdegi.
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
voru stofnuð fimmtudaginn 28.
september s.l. Um þrjátíu manns
mættu á stofnfund samtakanna
sem haldinn var í Menningarmið-
stöðinni Gerðubergi. Eftirtaldir
voru kosnir í fyrstu stjórn íbúasam-
takanna: Helgi Kristófersson, Bogi
Arnar Finnbogason, Elísabet Júlí-
usdóttir, Gunnar H. Gunnarsson,
Magnús Gunnarsson, Elín Huld
Hartmannsdóttir og Þorkell Ragn-
arsson. Varamenn í stjórn voru
kosnir: Guðrún Elva Arinbjarnar-
dóttir og Ingimundur Pétursson.
Skoðunarmenn ársreikninga voru
kosnir: Ricardo Villalobos og
Gunnlaug Gissurardóttir. Nýkjör-
in stjórn hefur þegar haldið tvo
stjórnarfundi. Á aðalfundinum
voru lög samtakanna samþykkt og
starfsáætlun fyrir fyrsta starfsárið.
Í starfsáætlun fyrsta starfsárs er
lögð áhersla á fjölgun bílastæða
þar sem þess er þörf í hverfinu.
Með því eina móti telja íbúasam-
tökin við að unnt verði að venja
bíleigendur af því að leggja bílum
á grasbletti meðfram götum og
spæna þá upp á vorin og haustin
sem mikið lýti er að. Fegrun skóla-
lóða er einnig á verkefnaskrá íbúa-
samtakanna því tæplega sé hægt
að ala upp virðingu skólabarna
fyrir umhverfi sínu ef skólalóðir
eru almennt nöturlega og óvistleg-
ar. Í þriðja lagi leggja íbúasamtökin
áherslu á endurbætur á almenn-
ingssamgöngum í hverfinu, m.a.
með því að bæta göngu- og reið-
hjólastíga, svo og hafa reglulegar
strætisvagnaferðir um hverfið,
einkum á álagstímum, sem mættu
gjarnan vera niðurgreiddar fyrir
skólafólk allt að tvítugsaldri og elli-
lífeyrisþega. Þá leggja hin nýstofn-
uðu íbúasamtök áherslu á endur-
bætur varðandi umferðaröryggi
og einnig á endurbætur á útivist-
arsvæðum og opnum svæðum í
Breiðholti.
Frá stofnfundi Búasamtaka Breiðholts.
Íbúasamtökin Betra
Breiðholt tekin til starfa