Breiðholtsblaðið - 01.10.2006, Blaðsíða 16
Á liðnu sumri efndi Þjónustu-
miðstöð Breiðholts til ljósmynda-
samkeppni meðal íbúa í hverfinu
undir nafninu Betra Breiðholt,
mannlíf og umhverfi. Alls bárust
255 myndir í keppnina og voru
verðlaun afhent fyrir bestu fimm
myndirnar á Breiðholtsdaginn
30. september s.l.
Hinn kunni ljósmyndari Páll Stef-
ánsson var dómari samkeppninn-
ar. Myndir sem fengu fyrstu, önn-
ur og fimmtu verðlaun tók Sigrún
Þorvarðardóttir. Mynd Matthíasar
Ægissonar hlaut þriðju verðlaun
og mynd Báru Dísar Benediktsdótt-
ur hlaut fjórðu verðlaun. Verðlaun-
in í keppninni voru ljósmyndavör-
ur frá Myndvali í Mjódd. Verðlauna-
myndirnar í keppninni birtast hér.
16 Breiðholtsblaðið OKTÓBER 2006
Skemmtilegt í Breiðholt varð í fyrsta sætisæti. Ljósmyndari er Sigrún Þorvarðardóttir.
255 myndir í ljósmyndakeppni
Skýjafar við Breiðholtskirkju varð í öðru sæti. Ljósmyndari er Sigrún
Þorvarðardóttir.
Fótbolti í Breiðholti varð í þriðja sæti. Ljósmyndari er Matthías Ægisson.
Sigurbjörg Júlíusdóttir er
bókavörður á Borgarbókasaf-
ninu í Gerðubergi. Hún er líka
mikill lestrarhestur.
Ég er alin upp við bóklestur
frá unga aldri. Það á því vel við
mig að vinna á bókasafni. Ég er
í leshring, við erum 9 konur sem
höfum gaman af glæpasögum. Við
hittumst einu sinni í mánuði og
tölum um bækur og skiptumst á
skoðunum .
Bókin sem ég var að lesa núna
er á þeim nótum. Hún heitir
The two minute rule, höfundur
er Robert Crais. Bankaræningja
er sleppt úr fangelsi eftir 10 ára
betunarvist. Sama daginn frét-
tir hann að sonur hans sem var
lögreglumaður hefur verið myr-
tur. Hann fer að rannsaka málið
og vitaskuld með alla á móti sér.
Þarna er öllu snúið við því glæpon
er að rannsaka lögregluna. Mjög
skemmtileg saga.
Ég var líka að lesa mjög góða
bók sem heitir Leyndardómur
býflugnanna. Ég las hana í einum
dúr, ég gat ekki hætt. Sagan gerist
um 1960 og er þroskasaga ungrar
stúlku og líka saga réttindabar-
áttu blökkumanna á þeim árum.
Það er langt síðan ég hef lesið bók
sem mér finnst eins góð. Ég mæli
virkilega með henni.
Nýlega las ég bók eftir Anitu
Shreve sem heitir The light in
snow. Hún er líka mjög góð. Hún
er um mann sem þarf að takast á
við nýjar aðstæður í lífinu. Hann
er arkitekt í New York og missir
konu og unga dóttur í bílslysi.
Hann treystir sér ekki til að takast
á við hversdagslífið og flytur
með 12 ára dóttur sína í smábæ
þar sem þau búa afskekkt. Bókin
fjallar um það hvernig þeim geng-
ur að takast á við þessar breyttu
aðstæður. Síðan gerist atburður
sem breytir öllu ….
Nú í haust var bryddað uppá
þeirri nýjung í Gerðubergssa-
fni að vera með bókaspjall á mið-
vikudagskvöldum. Fyrsta mið-
vikudag í mánuði kl. 20 hittist fólk
á safninu og spjallar um bækur
yfir kaffisopa og konfekti. Næsta
spjall verður miðvikudaginn 1.
nóvember kl. 20 og eru allir vel-
komnir í lauflétt spjall um bækur.
Ég skora á Sigurjónu Sigurðar-
dóttur að segja frá bókum sem hún
hefur lesið í næsta Breiðholtsblaði.
Hvaða bók/bækur ertu að lesa?
Sigurbjörg Júlíusdóttir.