Breiðholtsblaðið - 01.10.2006, Blaðsíða 22
22 Breiðholtsblaðið OKTÓBER 2006
Góður árangur á VÍS móti
Um síðastu helgi fór VÍS-sund-
mót Ægis fram í Laugardalslaug.
Mótið gekk vel fyrir sig þrátt fyr-
ir að um smá tæknileg vandamál
væri að ræða.
Árangur Ægiringa var mjög góð-
ur á mótinu. Yngri krakkarnir eru
að standa sig frábærlega og mik-
ið um stórbættan árangur. Þau
eldri voru að synda við sína bestu
tíma og nokkuð bættur árangur
sást einnig hjá þeim. Kvennasveit
Ægis setti gott Íslandsmet í 4x50
metra flugsundi en gamla metið
átti sveit ÍA. Kolbrún Ýr Kristjáns-
dóttir setti Ægismet í 50 metra
flugsundi en gamla metið átti
Bryndís Ólafsdóttir.
Kvennasveitin en hana skipuðu þær: Ásbjörg Gústafnsdóttir, Kolbrún
Ýr Kristjánsdóttir, Anja Ríkey Jakobsen, og Auður Jónsdóttir.
borgarblod.is
Leiknir
Óli Halldór Sigurjónsson hefur
verið ráðinn til þess að þjálfa
meistaraflokk Leiknis. Þar með
er leit að nýjum þjálfara lokið
en hægt er að staðfesta að list-
inn af þeim þjálfurum sem komu
til greina var ansi langur, Óli
var þó alltaf einn af þeim efstu
á óskalistanum en nauðsynlegt
þótti að skoða markaðinn vel.
Margir þjálfarar voru voru
skoðaðir en að lokum taldi meist-
araflokksráð Óla besta kostinn
og er það með mikilli ánægju að
beggja hálfu að hann tekur nú að
sér þjálfun meistaraflokksins. Óli
var viðloðandi meistaraflokkinn á
sl. sumri. Hann aðstoðaði Garðar,
sem lét af störfum eftir sumarið,
og Jóa aðstoðarþjálfara. Óli hefur
líka þjálfað 2. og 3. flokka Leikn-
is en hann er 33 ára gamall og
var einmitt aðstoðarmaður Gæa
árið 2004. Óli spilaði með Leikni
á árum áður en meistaraflokksráð
hlakkar mikið til að vinna með
þessum sanna Leiknismanni.
Óli Halldór þjálfar meistara-
flokkinn
Varnarmaðurinn Freyr Alex-
andersson sem er betur þekkt-
ur sem Freysi hefur skrifað
undir samning við breiðholts-
félagið Leikni í Reykjavík.
Jeppinn einsog hann kýs
að kalla sig, einn allra manna,
hefur undanfarinn ár verið
mikilvægur hluti af öflugri
vörn Leiknismanna.
Freyr með Leikni
Ríkarður Ríkarðsson Ægiring-
ur og Ólympíufari varð Norð-
urlandameistari í 50 metra
flugsundi, 100 metra skrið-
sundi, 100 metra flugsundi og
í 50 metra skriðsundi á Norð-
urlandamóti Garpa sem haldið
var í Danmörku nýlega en hann
syndir í flokknum 25 til 29 ára.
Ríkarður setti einnig Íslandsmet
í 50 metra og 100 metra flug-
sundi og 50 metra skriðsundi.
Boðsundsveit Ægis sýndi ein-
nig góða takta. Hún sigraði bæði
í 4x50 metra skriðsundi og 4x50
metra fjórsundi í aldursflokkum
100 til 119 ára, sem er saman-
lagður aldur, og voru lang fyrstir.
Þeir fóru 4x50 metra skriðsund
á 1:48.55 og 4x50 metra fjórsund
á 2:02.04. Þeir voru reyndar eina
sveitin í sínum aldurflokki en
náðu engu að síður góðum tíma
sem í keppni við aðrar sveitir
væri.
Ríkarður Norðurlandameistari
Sundfélagið Ægir
Það fer vel á því að Þjónustu-
miðstöð Breiðholts hefur hafið
átak undir kjörorðinu Betra Breið-
holt, enda var það eitt af mark-
miðunum með stofnun þjónustu-
miðstöðvanna fyrir rúmu ári að
bæta þjónustu og mannlíf í hverf-
um borgarinnar. Liður í þessu er
Breiðholtsdagurinn, sem er nýaf-
staðinn með góðri þátttöku fólks
á öllum aldri og endurspeglar
hann þann mikla félagsauð sem
í hverfinu býr. Það hefur sýnt sig
að íbúar eru mjög ánægðir með
starfsemi Þjónustumiðstöðvarinn-
ar.
Hverfisráðið er vettvang-
ur fyrir íbúana
Nýkjörið hverfisráð er tekið til
starfa og má binda miklar von-
ir að það verði vettvangur fyrir
umræðu á meðal hverfisbúa og
farvegur fyrir óskir þeirra til borg-
arinnar, m.a. um bætta aðstöðu
og þjónustu. Ráðið er skipað
þremur fulltrúum úr hverfinu sem
kjörnir eru af borgarstjórn. Hér
í Breiðholti hefur skort almenn
íbúasamtök og það var því einkar
ánægjulegt þegar þau voru stofn-
uð í haust og má búast við því að
náið samstarf takist með þeim og
hverfisráðinu.
Á fundum hverfisráðsins undan-
farið hefur verið fjallað um ýmis
mál, svo sem sjá má í fundargerð-
um (á www.rvk.is). Rætt hefur ver-
ið við skólastjórnendur, lögreglu
og stjórnendur hverfisbækistöðv-
ar og viðræður við leikskólastjórn-
endur og fleiri eru á dagskrá. Ráð-
ið fær til umsagnar áformaðar
skipulagsbreytingar í hverfinu og
á síðasta fundi ráðsins tók það
undir áhyggjur íbúa um aukna
umferð vegna áformaðra nýbygg-
inga nálægt Seljaskóla. Ráðið
fagnaði á hinn bóginn skipulags-
breytingum sem ætlað er að bæta
aðstöðu íþróttafélagsins Leiknis.
Íþróttaaðstaðan fer
batnandi
Það er ánægjulegt að sjá aðstöð-
una batna hjá íþróttafélögum í
hverfinu, eins og gervigrasvöllur-
inn hjá ÍR er dæmi um. Það er
framkvæmd sem Reykjavíkurlist-
inn stendur fyrir, auk þess sem
hann setti 800 milljónir króna til
íþróttahúss fyrir ÍR á þriggja ára
áætlun og 100 milljónir króna í
niðurgreiðslu á æfingagjöldum
og þátttökugjöldum til íþróttafé-
laga og annars tómstundastarfs.
Nýjar hugmyndir um skipulag á
ÍR-svæðinu
eru einnig
spennandi
fyrir félag-
ið, en það
fagnar 100
ára afmæli á
næsta ári.
Megn
andstaða
gegn
spilasal í
Mjódd
Þegar margt jákvætt er í gangi
vekur sérstaka eftirtekt að margir
íbúar hverfisins eru sáróánægð-
ir með áform um að koma fyrir
svokölluðum spilasal í Mjódd. Það
virðist fátt geta hindrað þetta, en
hafin hefur verið undirskriftasöfn-
un meðal íbúa gegn þessu. Það er
ótrúlegt að menntastofnanir, og
ýmsir sem annars vilja stuðla að
jákvæðri uppbyggingu í samfélag-
inu skuli enn treysta á tekjur frá
svona starfsemi. Af þessu tilefni
hef ég óskað eftir því að kynntar
verði í hverfisráðinu upplýsing-
ar um fjölda spilafíkla sem leitað
hafa sér aðstoðar í borginni á und-
anförnum árum.
Skólarnir eru lykilstofn-
anir samfélagsins
Á þeim fundum sem haldnir
hafa verið hér í hverfinu í haust
hef ég skynjað enn betur en áður
mikilvægi grunnskólanna og
leikskólanna í hverfinu. Þeir eru
ekki bara menntastofnanir, held-
ur eru þeir einnig farvegur fyrir
alla þá félagslegu strauma sem
liðast um samfélagið. Það frum-
kvæði sem skólarnir hafa sýnt í
því að ýta undir foreldrastarf verð-
ur seint ofmetið. Starf af því tagi,
hvort heldur er í svokölluðu for-
eldrarölti til að hafa eftirlit með
unglingum, eða starf foreldra hjá
íþróttafélögunum og öðrum félög-
um eru einnig stór partur af þeim
jákvæða félagsauði sem í hverfinu
býr. Það er því margt jákvætt í
gangi hér í hverfinu og mikilvægt
að íbúarnir vinni stöðugt að því
með borgaryfirvöldum að gera
gott Breiðholt enn betra.
Stefán Jóhann Stefánsson vara-
borgarfulltrúi, fulltrúi í hverfisráði
Breiðholts og formaður Hverfafé-
lags Samfylkingarinnar í Breið-
holti.
Stefán Jóhann
Stefánsson.
Betra Breiðholt
Stefán Jóhann Stefánsson skrifar:
„Við megum ekki missa
sjónar á því að velferðar-
kerfið á að vera fyrir þá
sem þurfa á aðstoð
að halda en ekki
hina sem nóg hafa.“
- Sigríður Andersen
www.sigridurandersen.is
Prófkjör sjálfstæðismanna
í Reykjavík,
27. og 28. október.
Kosningaskrifstofa stuðningsmanna Sigríðar
Andersen er í Landssímahúsinu við Austurvöll.
Síminn er 561 4567. Alltaf heitt á könnunni.