Vesturbæjarblaðið - 01.03.2007, Blaðsíða 5
5VesturbæjarblaðiðMARS 2007
Ráðstefna um verndun Skerja-
fjarðar var haldin í íþróttahúsinu
á Álftanesi 2. mars sl. en þátt í
henni tóku fulltrúar allra þeirra
sex sveitarfélaga sem land eiga
að Skerjafirði auk fulltrúa frá
Umhverfisstofnun. Sveitarfélög-
in eru Reykjavík, Seltjarnarnes,
Kópavogur, Garðabær, Hafnar-
fjörður og Áltanes. Ráðstefnan
hófst með ávarpi forseta Íslands,
hr. Ólafs Ragnars Grímssonar.
Ýmsir aðilar sem hafa sér-
þekkingu á málinu voru meðal
þátttakenda, en meðal umræðu-
efna var hið fjölskrúðuga fuglalíf
og búsvæðavernd Skerjafjarðar,
vákort af Skerjafirði, fráveitumál,
útivist- og göngustíganet svæðis-
ins, siglingar og náttúru- og menn-
ingarmiðstöð á Álftanesi. Loks
tjáðu nokkrir forsvarsmenn sveit-
arfélaga sig um framtíðarsýn og
stefnumörkun þeirra sex sveitarfé-
laga sem land eiga að Skerjafirði,
þ.á.m. Sigurður Ingi Skarphéðins-
son frá Orkuveitu Reykjavíkur sem
ræddi um fráveitumál í Skerjafirði
og Þráinn Hauksson landslagsarki-
tekt sem ræddi um útivistar- og
göngustíganet svæðisins. Einnig
lögðu garðykjustjórar Reykjavíkur
og Kópavogs, þeir Þórólfur Jóns-
son og Friðrik Baldursson fram
þarft innlegg í umræðuna.
Umræða um verndun svæðisins
hófst árið 2003 með þingsálykt-
unartillögu þáverandi umhverfis-
ráðherra, Sivjar Friðleifsdóttur.
Í greinargerð með þingsályktun-
artillögunni segir að á svæðinu
hafi viðdvöl tvær farfuglategundir,
margæs og rauðbrystingur sem
Ísland beri alþjóðlega ábyrgð á
samkvæmt Bernarsamningnum
og fleiri alþjóðlegum samþykkt-
um. Við Skerjafjörð er möguleiki
að byggja upp útivistarsvæði sem
er jafn áhugavert og Heiðmörk,
en gerólíkt. Þar er t.d. hægt að
setja upp útsýnisstaði við varp-
lönd, hjóla- og reiðstíga með sjón-
um, auk þess sem þetta er mjög
skemmtilegt svæði til að sigla á
litlum fleytum.
Undirstaða afar
mikilvægs fuglalífs
Markmiðið með friðlýsingu
Skerjafjarðarsvæðisins er að
vernda lífríki á strönd, í fjöru
og grunnsævi. Svæðið er undir-
staða afar mikilvægs fuglalífs
allan ársins hring og er mikilvæg-
ur viðkomustaður farfugla sem
hafa þar viðdvöl á leið sinni til
og frá norðlægum varpslóðum.
Í heild sinni hefur svæðið alþjóð-
legt verndargildi vegna fuglalífs-
ins, sérstaklega með tilliti til rauð-
byrstings og margæsar en svæðið
er einn mikilvægasti viðkomustað-
ur þeirra á landinu. Fjörur og leir-
ur svæðisins eru lífríkar, þar eru
miklar þangfjörur og grunnsævi er
með auðugu botndýralífi. Einnig
er svæðið mikilvægt vegna mar-
hálms en plantan hefurtakmark-
aða útbreiðslu á landinu og er ein
aðalfæða margæsarinnar.
Markmið friðlýsingar er að
vernda útvistargildi svæðisins
en aðgengi að svæðinu er gott og
strandlengjan er vinsæl til útivist-
ar og fjörðurinn til skemmtisigl-
inga. Í hugmyndum um búsvæða-
vernd í Skerjafirði og ströndinni
frá Langeyrarmölum í Hafnarfirði
að Bygggörðum á Seltjarnarnesi
er m.a. tillit tekið til Reykjavíkur-
flugvallar og smábátahafnar á Sel-
tjarnarnesi.
Um nokkurt skeið hefur verið
unnið að hugmyndinni um menn-
ingar- og náttúrufræðisetur á
Álftanesi. Áformað er að reisa sér-
stæða og metnaðarfulla byggingu
með alþjóðlegu yfirbragði sem
vígð yrði árið 2009. Menningar-
og náttúrufræðisetur gæti orðið
miðstöð friðaðs strandsvæðis við
Skerjafjörð og byði uppá aðstöðu
fyrir náttúruvísindamenn til rann-
sókna.
Í lok ráðstefnunnar var sam-
þykkt sameiginleg yfirlýsing allra
bæjarstjóra sveitarfélaganna sjö
sem að ráðstefnunni komu en
þar var ákveðið að skoða á vett-
vangi Sambands sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu (SSH) kosti
þess að vernda náttúrufar Skerja-
fjarðar og nágrennis. Vinnan mun
taka mið af Náttúruverndaráætlun
2004-2008 sem umhverfisráðherra
lagði fyrir og Alþingi samþykkti í
þingsályktun um á 130. löggjafar-
þingi 2003/2004.
Í vinnu sveitarfélaganna verður
tekið mið af sérstöðu svæðisins
með tilliti til lífríkis, jarðmyndana,
útivistar og menningarminja, en
jafnframt þarf að taka mið af aðal-
skipulagi sveitarfélaganna hvað
varðar t.d. hafnaraðstöðu og bygg-
ingarhverfi sem þegar hafa verið
skipulögð innan fyrirhugaðs vernd-
arsvæðis eða fyrirætlanir eru uppi
um að rísi þar, segir í upphafi yfir-
lýsingarinnar.
Síðan segir: “Það er von okkar
að vinnan leiði til þess að til fram-
tíðar verði staðinn vörður um sér-
stöðu svæðisins. Sérstaða svæð-
isins er m.a. fjöbreytt fuglalíf sem
þrífst á svæðinu allan ársins hring
og hefur alþjóðlegt verndargildi.
Svæðið gegnir mikilvægu hlutverki
varðandi skuldbindingu Íslend-
inga um verndun svæða fyrir fugla
sem staldra við á farleiðum sínum
yfir Ísland vor og haust, því eins
og kunnugt er safnast mikill fjöldi
margæsa og rauðbrystinga sam-
an á svæðinu og safna orku til að
ljúka flugi sínu á milli vetrarstöðva
og varpstöðva. Einnig er svæðið
afar vinsælt til útivistar og mikið
notað af íbúum höfuðborgarsvæð-
isins, enda hefur þegar verið lagt
gott stígakerfi meðfram ströndinni
á stórum hluta svæðisins.
Við munum á vettvangi SSH
ræða um verklag við áframhald-
andi vinnu í samráði við Umhverf-
isstofnun. Það er trú okkar að góð
sátt geti náðst um framtíð svæðis-
ins og þær umgengnisreglur sem
við eiga.”
Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, ávarpaði ráðstefnuna.
Markmiðið með friðlýsingu Skerjafjarðarsvæðisins
er að vernda lífríki á strönd, í fjöru og grunnsævi
G
O
T
T
F
Ó
LK