Vesturbæjarblaðið - 01.03.2007, Blaðsíða 7
Hinn 8. apríl 2002 lagði Kjart-
an Magnússon borgarfulltrúi
fram bókun í samgöngunefnd
Reykjavíkur þar sem þeim til-
mælum var beint til gatnamála-
stjóra að ráðist verði í nauðsyn-
legt úrbætur á bakgötu þeirri
sem er á milli Ásvallagötu og
Hringbrautar. Æskilegt væri að
lokið væri við að malbika göt-
una, enda er hún mikið notuð
af íbúum. Í rigningum verður
gatan að svaði og takmarkar það
mjög notkunarmöguleika íbúa
og gangandi vegfarenda á þess-
um slóðum.
Kjartan segist hafa fengið marg-
ar kvartanir frá íbúum vegna
þessa en umrædd gata (stundum
kölluð Ervallagata) væri inni á lóð
fjölbýlishússins og því kæmi það
ekki borginni við. Kjartan segist
samt ekki viss um að það sé rétt
og því þurfi að skoða málið enda
séu sambærilegir göngustígar í
hverfinu (öskutunnugötur) malbik-
aðir. Ómalbikaða gatan sem hér
um ræðir, er bakvið Ásvallagötu.
Nokkru austar, við annan hluta
Ásvallagötu er önnur slík gata,
þ.e. milli Blómvallagötu og Ljós-
vallagötu og er hún malbikuð og
öll hin snyrtilegasta. Bakgata við
Framnesveg er einnig malbikuð
gata. Kjartan telur rétt að kanna
hvort Reykjavíkurborg hafi ekki
komið að malbikun umræddra
bakgatna á sínum tíma og því eigi
að láta það sama gilda um götuna
milli Ásvallagötu og Hringbrautar.
Eina moldargata
Reykjavíkur?
Teitur Atlason býr á Ásvalla-
götu 27 og segist kunna ákaflega
vel við sig þar. Teitur segir að bak-
garðurinn sé frábær, sé gjarnan
kallaður “bakkó” og hefur verði
kallaður það frá upphafi vega.
“Nágrannnar mínir hafa stund-
um lagt bílunum sínum í þessum
bakgarði og það er vel. Þessi litli
hluti sem hægt er að keyra bifreið-
um eftir er ómalbikaður og hefur
verið svo frá öndverðu. Mér dett-
ur einna helst í hug að þetta sé
“gatan sem gleymdist” hjá borgar-
verkfræðingi því að þegar rignir
(sem gerist stundum) þá myndast
stærðarinnar drullupollar þarna
sem vegfarendur þurfa að skauta
framhjá til þess að blotna ekki.
Þetta er líka allt gott og blessað.
Undir eðlilegum kringunstæðum
finnst mér ekkert mál að stika yfir
drullupoll eða tvo, en málið er
alvarlegra en svo. Pollarnir eru
orðnir svo stórir að fólksbifreið-
ar eiga í erfiðleikum með að aka
um “götuna sem gleymdist”. Ég er
nýorðin pabbi og það er hálf fynd-
ið að aka barnavagni um þessa
gleymdu götu. Þetta var krúttlegt
fyrstu 60 árin en núna er þetta
hætt að vera krúttlegt,” segir Teit-
ur Atlason.
Mér hefur verið tjáð að þetta sé
lóð sem tilheyri fjölbýlishúsi við
Hringbraut og því sé ekkert hægt
að gera, en má þá ekki skikka eig-
endurna til að gera eitthvað í mál-
inu? Það mætti komast að sann-
leiksgildi málsins og fá botn í mál-
ið um leið og að hækka botnin á
drullupollunum hvimleiðu. Helst
vildi ég sá snyrtilega hellulögn
og leiktæki fyrir krakka þarna en
þetta er sennilega eina moldargat-
an í Reykjavík í íbúðahverfi,” segir
Teitur Atlason.
7VesturbæjarblaðiðMARS 2007
“Ervallagata,” eða götuslóðin milli Ásvallagötu og Hringbrautar. Verð-
ur hann malbikaður í ár?
Ber Reykjavíkurborg að malbika
öskutunnugötur í Vesturbænum?
Næsta þriðjudag, 13. mars,
verða Vesturbæjarsamtök suður
stofnuð í þjónustumiðstöðinni
Vesturgarði við Hjarðarhaga,
og hefst fundurinn kl. 20.00. Að
sögn Guðrúnar Þóru Hjaltadótt-
ur kennara og næringaráðgjafa,
sem hefur haft veg og vanda að
undirbúningi að stofnun þessa
félags, eru mörk þess svæðis
sem félagið á að ná yfir dregin
um Hringbraut og Njarðargötu,
þannig að m.a. er Litli-Skerjafjörð-
ur innan þeirra marka. Hér er
verið að stofna hagsmunasam-
tök íbúa þessa svæðis, og því full
ástæða til að hvetja fólk til að
mæta á fundinn og tjá sig, m.a.
um það hvað það vill að svona
félag beiti sér fyrir. Væntanlega
er af nógu að taka.
Hægt er að ná í Guðrúnu Þóru
í síma 847-9118.
Vesturbæjarsamtök suður
stofnuð næsta þriðjudag!
Fisk
isló
ð
Gra
nda
gar
ður
MýrargataÁna
nau
st
Við erum hér!
Arnar GuðborgDagný
Rakel KongaSilla
SALON REYKJAVÍK
Grandagarði 9 • Reykjavík • S. 568 5305
salon@salon.is
Vertu velkomin(n)!
Við erum flutt
út á Granda!
Hárgreiðslustofan Salon Reykjavík hefur
flutt sig um set úr Glæsibæ út á Grandagarð 5,
gegnt gamla Ellingsen húsinu.
Grandagarði 5 • Reykjavík • S. 568 5305