Vesturbæjarblaðið - 01.03.2007, Síða 13
13VesturbæjarblaðiðMARS 2007
Hvað merkir „að hafa ekki grænan grun” um eitthvað? Hvers vegna skortir grænku
í máltækið? Einhvers staðar las ég
um að grænn litur væri oft notað-
ur til áherslu í máli og að hér sé
líklega einnig um að ræða stuðlun,
gr - gr, grænn - grunur. En þá hefði
líka mátt segja: Ég hef ekki gráan
grun um þetta eða hitt. Græni litur-
inn er líka notaður um þann sem
er „alveg grænn” í merkingunni að
hann viti lítið sem ekkert. Til við-
bótar má svo nefna orðið „græn-
jaxl” um viðvaning og vísar orðið
til óþroskaðs bers.
Öll græn
Og nú á þessum síðustu tímum
vilja allir vera grænir! Hvað er eig-
inlega að gerast? Hvers vegna er
litur grænjaxlanna og hins græna
gruns orðinn svona vinsæll?
Jú, svarið liggur víst í því að
kosningar eru í vændum og nú
telja allir sig eiga erindi inn á
grænu svæðin til að vernda þau
eða nýta á skynsamlegan hátt.
Vinstri grænir, eða vinstri græn ef
við viljum tala máli beggja kynja,
hafa aukið fylgi sitt í skoðanakönn-
unum og nú er farið að tala um
hægri græna. Þó hef ég hvergi
heyrt talað um hægri græn. Það er
eins og eintómir karlar séu hægra
megin við miðju.
Vorið er á næsta leyti og þá
grænkar allt og grær. En svo kem-
ur haust þegar „grasið visnar og
blómin fölna” eins og Jesaja spá-
maður orðar það. Hvað verður þá
um flokkana sem nú grænka hver
í kappi við annan fyrir kosningar?
Fölna þeir líka og fella blöð? Eða
verða þeir sígrænir sem greniskóg-
ur?
Blikur á lofti
En eitt er víst að raddir vísinda-
manna um hlýnun andrúmslofts-
ins af mannavöldum eru farnar
að hafa áhrif á almenning og
stjórnmálamenn í okkar heims-
hluta. Meira að segja er Bush for-
seti farinn að tala um aðgerðir til
að draga úr mengun. Já, hann er
kannski ekki alveg eins grænn og
margur hélt. Já, tungumálið er
margslungið og verður seint tæmt
meðan það grær og dafnar.
Umhverfisvænir menn, karlar og
konur, hafa verið kallaðir græningj-
ar hér á landi. Eru duldir fordóm-
ar í þeirri orðnotkun á íslensku?
Höfum við hingað til litið niður á
þau sem vilja vernda náttúruna?
Er það að breytast?
Og með hvaða hætti viljum við
vernda landið okkar? Viljum við
fjölga grænum svæðum? Þá þurf-
um við að rækta landið upp og þar
með gera stærri hluta landsins að
„manngerðu” svæði. Eða viljum
við hafa það ósnortið að mestu
og láta náttúruna eina, veður og
vinda, frost og funa, fara höndum
um landið? Hvað með aukna skóg-
rækt? Viljum við breyta ásjónu
þessa lands sem býr yfir undur-
fögrum auðnum og víðáttum sem
eru með allt öðrum blæ en flest
landsvæði t.d. á meginlandi Evr-
ópu? Höfum við kannski ekkert val
og neyðumst til að planta trjám
um allt til að vinna gegn mengun?
Hefur þú grænan grun?
Hér eru margar spurningar sett-
ar fram og ég hef varla grænan
grun um hvernig á að svara þeim
öllum. En eitt er víst, við verðum
að auka græna litinn í lífinu, ef við
ætlum að gefa komandi kynslóð-
um tækifæri til að neyta og njóta
þess sem jörðin iðjagræn getur
boðið uppá. Þurfum við ef til vill
að endurvinna allt hjá okkur, alla
hugsun, í tengslum við það sem
við kennum við grænan lit?
Hverfandi jöklar, hækkandi
sjávarmál, vaxandi eyðimerkur,
gruggugri sjór og mengaðra and-
rúmsloft. Er þetta það sem koma
skal? Eða er það á okkar valdi
að taka höndum saman og snúa
þróuninni við? Eða erum við of
miklir grænjaxlar til að svo megi
verða? Eða erum við kannski að
verða nógu græn í hugsun til að
svo geti orðið? Mér finnst ég hafa,
örlítinn, grænan grun um, að hið
síðarnefnda sé að gerast smátt
og smátt. Og hafi ég rétt fyrir mér
þá geta komandi kynslóðir tekið
undir trúarjátninguna í 23. sálmi
Davíðs konungs eins og mörg okk-
ar gera nú: Á grænum grundum
lætur hann mig hvílast, leiðir mig
að vötnum þar sem ég má næðis
njóta.
Grænn grunur
Eina kaffihús
Vesturbæjarins
í Saltfélaginu
Te & kaffi, sem er kaffibar í Salt-
félaginu á Grandanum, og eina
kaffihúsið sem er í Vesturbænum,
opnaði í nóvemberbyrjun 2006,
um leið og annar verslunarrekst-
ur hófst í húsinu. Benedikt Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri Kaffi
Heims, sem rekur 4 kaffihús undir
nafinu Te & kaffi, segir að frá 1.
mars sl. hafi kaffihúsið opnað kl.
07.30 að morgni og þannig þjóni
það þeim sem vilja fá nýtt, bragð-
gott og hressandi kaffi áður en
haldið er til vinnu, í skóla eða eitt-
hvað annað. Opið er til kl. 18.00 á
daginn en um helgar verður opið
frá 11.00 til 17.00 á laugardögum
og frá 12.00 til 16.00 á sunnudög-
um.
“Að sjálfsögðu er svo hægt
að fá kökur, samlokur o.fl. með
besta kaffinu! Ritstjóra Vesturbæj-
arblaðsins var boðið í bollann
“Expresso Macchiato”, og það
verður að segjast eins og er að
kaffið var frábært. Segja má að hjá
Te & kaffi sé boðið minna kaffi, en
betra að gæðum!
Við barborðið hjá Te & kaffi. Benedikt Sigurðsson framkvæmdastjóri
og Matthildur Ingvadóttir kaffibarþjónn.