Vesturbæjarblaðið - 01.04.2007, Side 5
5VesturbæjarblaðiðAPRÍL 2007
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarstjóri, Þorsteinn Bergs-
son, framkvæmdastjóri Minja-
verndar og Þröstur Ólafsson
stjórnarformaður Minjaverndar
hafa undirritað samninga um
Aðalstræti 10 og leigusamning
um hluta þess húss.
Sem tákn um verklok endur-
uppbyggingarinnar festu borg-
arstjóri og stjórnarformaður
Minjaverndar upp skjöld þar
sem fram koma upplýsingar um
húsið. Gengið er frá samningn-
um á sama tíma og endurbygg-
ingu hússins er lokið en verkið
hófst haustið 2005.
Aðalstræti 10 var reist árið
1762, og er því elsta húsið í mið-
borg Reykjavíkur, en Viðeyjar-
stofa er elsta hús Reykjavíkur og
var reist árið 1755.
Í upphafi var Aðalstræti 10
notað sem klæðageymsla en síð-
ar jafnframt íbúð fyrir bókara
og bókhald Innréttinganna. Árið
1807 eignaðist Geir Vídalín bisk-
up húsið en árið 1823 keypti
konungur það að biskupi látn-
um. Meðal þeirra sem hafa átt
aðsetur í húsinu er Jón Sigurðs-
son forseti en bróðir hans Jens
bjó þar. Matthías Johannesen
faktor keypti húsið árið 1873 og
bjó þar þangað til því var breytt
í sölubúð árið 1889. Árið 1894
eignaðist Helgi Zoëga kaupmað-
ur húsið en kaupmennirnir Silli
og Valdi keyptu það árið 1926
og ráku þar verslun í áratugi.
Frá árinu 1984 hafa ýmsir veit-
ingastaðir og krár verið reknar í
húsinu. Reykjavíkurborg keypti
það árið 2001.
Á neðri hæð gamla hússins
mun Reykjavíkurborg verða með
aðstöðu til sýningarhalds þar
sem hægt verður að kynna sögu
hússins og götunnar. Að baki
gamla húsinu hefur verið byggt
nýtt steinhús, af svipaðri stærð
og lögun og það gamla, og húsin
tengd með glerskála. Þessi við-
bót eykur mjög á notkunar mögu-
leika staðarins. Hópur íslenskra
hönnuða og fjárfesta hafa tekið
höndum saman og stofnað fyrir-
tæki og hyggjast opna þar versl-
un til að selja íslenska hönnun-
arvöru. Markmiðið er að koma
á framfæri á einum stað í Reykja-
vík íslenskri hönnun í hæsta
gæðaflokki..
Endurgerð götumyndar Aðal-
strætis hófst árið 1998 með nið-
urtöku Ísafoldarhússins og upp-
byggingu þess að Aðalstræti 12.
Síðan hefur verið lokið við end-
urgerð Aðalstrætis 2 sem hýsir
meðal annars Höfuðborgarstofu
og endurgerð Aðalstrætis 16
sem hýsir Hótel Reykjavik Centr-
um.
Aðalstræti 10. Húsð var reist 1762, og er því 245 ára á þessu ári.
Uppbyggingu elsta húss
miðborgar Reykjavíkur lokið
Skrúður / Radisson SAS Hótel Saga / Sími: 525 9900 / www.skrudur.is
Fjölbreyttur og girnilegur Skrúður
Nýr matseðill
Fjölbreyttir og spennandi réttir. Komdu og njóttu góðrar stundar yfir góðum mat.
þemadagar á fimmtudögum
Á hverjum fimmtudegi komum við á óvart og gerum eitthvað alveg nýtt og forvitnilegt.
Brunch í hádeginu á sunnudögum
Frábært fyrir alla fjölskylduna. Frítt fyrir börn yngri en 6 ára, 50 % afsláttur fyrir börn 6 -12 ára.
P
IP
A
R
• S
ÍA
• 70
072
Samstarf leikskóla
og kirkju í
Vesturbænum
Laugardaginn 14. apríl standa
Nes- og Dómkirkja fyrir fræðslu-
degi í Safnaðaheimili Neskirkju
fyrir starfsfólk í leikskólum í
Vesturbænum. Öllu starfsfólki
á leikskólum í sóknunum tveim-
ur stendur til boða að taka þátt
í fræðsludeginum sem stendur
frá kl. 9:45 til kl. 13:00. Það eru
þeir Sigurvin Jónsson æskulýðs-
fulltrúi Neskirkju og sr. Þorvald-
ur Víðisson miðborgarprestur
Dómkirkjunnar sem hafa veg og
vanda af fræðsludeginum.
Tvö fræðsluerindi verða flutt,
sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir
flytur erindi sem ber yfirskriftina
„Það vex sem að er hlúð” og Halla
Jónsdóttir aðjúnkt við KHÍ flytur
erindi sem nefnist „Í sátt og sam-
lyndi”. Milli erindanna verður boð-
ið upp á léttan hádegisverð.
Kirkja og skóli hafa haldist í
hendur í árhundruð á Íslandi. Upp-
haf skólastarfs má rekja til kirkj-
unnar og þeirrar áherslu siðbótar-
manna að mikilvægt sé að kenna
öllum að lesa. Samstarfsþræðir
kirkju og skóla eru margir, einn
þeirra er samstarf um fræðslu.
Gjarnan koma leikskólar í heim-
sókn í kirkjuna í kringum jól eða
páska. Kirkjan tekur slíkum heim-
sóknum með gleði og tekur hlut-
verk sitt alvarlega um að fræða
um innihald stórhátíðanna.
Öllum leikskólum stend-
ur til boða heimsókn frá
kirkjunum
Nes- og Dómkirkja hafa einnig
boðið upp á mánaðarlegar heim-
sóknir um árabil, í þá leikskóla
sem það þiggja. Öllum leikskólum
í sóknunum stendur til boða að
fá æskulýðsfulltrúa í heimsókn
til sín, og er þeim erindum tekið
fagnandi í kirkjunum tveimur. Í
þeim heimsóknum eru gjarnan
sagðar frásögur af Jesú og börn-
unum kennd bænarvers, einnig
er sungið með krökkunum og
brúða kemur í heimsókn. Lagt er
upp með að heimsóknirnar séu
skemmtilegar og hefur verið gagn-
kvæm ánægja með það samstarf í
gegnum árin.
Fræðsludagurinn 14. apríl er lið-
ur í þessu samstarfi. Mikilvægt er
að hlúa vel að starfsfólki leikskól-
anna og öllu starfsumhverfi þess.
Erindi fræðsludagsins miða fyrst
og fremst að því markmiði. Það er
frábært að sjá og finna hversu dýr-
mætt starf er unnið á leikskólum
Vesturbæjar. Til hamingju með
það!