Vesturbæjarblaðið - 01.07.2007, Side 4
4 Vesturbæjarblaðið JÚLÍ 2007
Hanna Birna Kristjánsdóttir tók
við sem forseti borgarstjórnar
Reykjavíkur þegar meirihluti Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknarflokks
tók við völdum í borgarstjórn vor-
ið 2006. Hanna Birna er einnig
formaður skipulagsráðs.
Deiliskipulag að Keilugranda
1 hefur verið til umræðu og
afgreiðslu síðan á sl. vetri, og kom-
ið ítrekað til afgreiðslu hjá skipu-
lagsráði Reykjavíkurborgar. Íbúar
í næsta nágrenni hafa mótmælt
upphaflegum áformum um háhýsi
á svæðinu og hefur skipulagsráð
tekið tillit til margra þeirra ábenda
og krafna. Borgarráð hefur ákveðið
að breyta deiliskipulagi til þess að
byggja megi háhýsi að Keilugranda
1. Haft er eftir Hönnu Birnu sem
formanni skipulagsráðs að með til-
lögunni sé komið til móts við óskir
íbúa, en þeir fullyrða hins vegar
að aldrei hafi verið rætt við þá um
tillögurnar, en þeir viðurkenni fylli-
lega réttinn til að byggja á lóðinni.
Hanna Birna var spurð hver stað-
an væri nú? Verður nýtt deiliskipu-
lag auglýst á næstunni og hversu
háar verða byggingar þarna? Má
búast við að framkvæmdir hefjist
þarna á næsta vetri?
Hanna Birna segir það rétt að
í langan tíma hafi uppbyggingar-
áform verið til umræðu við Keilu-
granda 1. Þau uppbyggingaráform
hafa meðal annars tekið mið af því
sem hún telur vera sameiginleg-
an vilja borgaryfirvalda og íbúa
að mikilvægt sé að breyta þeim
aðstæðum sem fyrir eru á lóðinni
og gefa fólki tækifæri til að búa á
þessum eftirsótta stað.
“Fyrr á þessu ári var tillaga um
ákveðna uppbyggingu á lóðinni
send í hagsmunaaðilakynningu til
íbúa. Með því gafst íbúum á svæð-
inu tækifæri til að tjá sig um fyr-
irhugaða uppbyggingu, auk þess
sem fulltrúar íbúa á svæðinu fyl-
gdu þeim athugasemdum eftir á
sérstökum fundi sem ég hélt með
þeim um málið,” segir Hanna
Birna.
“Margar góðar athugasemdir
og ábendingar komu frá íbúum í
þessu ferli, en í framhaldi af því var
ný tillaga að breytingu á deiliskipu-
lagi lóðarinnar samþykkt til aug-
lýsingar í skipulagsráði. Sú tillaga
tekur mikið mið af þeim ábending-
um sem frá íbúum komu. Þannig er
uppbygging samkvæmt nýju tillög-
unni til að mynda háð því að fram-
kvæmdaraðili tryggi að engar breyt-
ingar verði á grunnvatnsstöðu á
svæðinu, hvorki á framkvæmda-
tíma né síðar, en áhyggjur vegna
þess voru áberandi í athugasemd-
um íbúa. Tillagan kemur einnig til
móts við óskir um minni nýtingu
á lóðinni með lækkun á nýtingar-
hlutfalli og með því að lækka bygg-
ingarinnar. Þannig er hæð húsana
sem næst standa íbúðabyggðinni
aðeins fjórar hæðir en fer mest
upp í níu hæðir við Eiðsgranda þar
sem áður hafði verið gert ráð fyr-
ir þrettán hæðum. Að auki hefur
byggingarreiturinn verið færður
innar á lóðina í samræmi við óskir
íbúa. Allt eru þetta breytingar á
fyrri tillögu sem taka mið af þeim
athugasemdum og ábendingum
sem komu frá íbúum í hagsmuna-
aðilakynningunni fyrr á árinu.
Staða málsins nú er að umrædd
tillaga hefur verið samþykkt í aug-
lýsingu og þá gefst íbúum og öðr-
um hagsmunaaðilum aftur tækifæri
til að tjá skoðanir sínar, sem að
sjálfsögðu verða skoðaðar og metn-
ar á vettvangi skipulagsráðs.
Ég ú t i loka a l l s ekk i a ð
gerðar verði einhverjar breyting-
ar á þeirri tillögu sem nú er í aug-
lýsingu, enda auglýsingatíminn
til þess ætlaður að fá enn frekari
viðbrögð úr umhverfinu, en ítreka
þó að ég tel tillöguna mæta ágæt-
lega því markmiði að byggja þarna
íbúðabyggð í góðu samhengi við
það sem fyrir er í þessum hluta
borgarinnar.
Nú þegar liggur fyrir úttekt vegna
umferðarmála á svæðinu og úttekt
vegna fyrirhugaðra framkvæmda,
auk þess sem verið að vinna að
athugun á hljóðvist á svæðinu,
þannig að það má ætla að skipu-
lagsráð geti lokið sinni yfirferð og
samþykkt deiliskipulag fyrir svæð-
ið á haustmánuðum. Í framhaldi af
því er ekki ólíklegt að einhverjar
framkvæmdir geti hafist á lóðinni
á þessu ári.”
Á Mýrargötu Slippasvæði
verða allt að 700 íbúðir
- Tvö svæði við Ánanaust eru
þyrnir í augum margra þar sem þau
virðast frekar vera geymslusvæði
fyrir rusl en ákjósanlegt bygginga-
svæði. Þetta eru svæðin sem í fyrsta
lagi afmarkast af Mýrargötu - Ána-
nausti - Vesturgötu og Seljavegi og
hins vegar af Vesturgötu - Ánanausti
- Holtsgötu og Seljavegi. Má búast
við að þarna verði deiliskipulagt á
næstunni, og ef svo er hvenær? Ef
þessi svæði eru hugsuð sem íbúða-
svæði, hversu margir íbúar gætu
hugsanlega búið þarna í framtíð-
inni?
“”Eins og íbúar í Vesturbæ
þekkja eru í undirbúningi talsverð-
ar breytingar á svæðinu í kringum
höfnina og gamla slippasvæðið.
Þannig var á síðasta kjörtímabili
ráðist í að vinna rammaskipulag að
svokölluðu Mýrargötu- og Slippa-
svæði sem gerir ráð fyrir því að
stórtæk atvinnustarfsemi á því
svæði geti vikið fyrir umfangs-
minni atvinnu- og hafnarstarfsemi
og fjölbreyttri íbúðabyggð. Þetta
verður mjög skemmtilegt svæði í
einstökum tengslum við hafið, vest-
urbæinn og miðborgina. Í vor tókst
að gera þessa uppbyggingu enn
meira aðlaðandi þegar borgin hafði
forgöngu um það að Allianz-húsið
fengi að standa áfram og hluti Dan-
íelslipps stæði áfram sem kjarni í
opnu safnasvæði við hafið.
Samhliða þessum áformum var í
síðustu viku samþykkt í skipulags-
ráði og borgarráði nýtt skipulag á
svokölluðum Nýlendureit, þar sem
áhersla er lögð á uppbyggingu í
anda þessa einstaka hluta vestur-
bæjarins m.a. með því að gera ráð
fyrir lóðum fyrir flutningshús. Mark-
vert er einnig í því deiliskipulagi að
kirkjubygging mun rísa á svæðinu,
auk þess sem mikil áhersla er lögð
á að fjölga og viðhalda grænum
reitum í umhverfinu. Í framhaldi
af athugasemdum íbúa var þetta
skipulag samþykkt með fyrirvara
um fjölgun bílastæða.
Þau svæði sem þú nefnir eru
hluti þessa skipulagssvæðis og
þarna er fyrirhuguð íbúðabyggð
í anda umræddra áforma. Það
er sannarlega rétt að hluti þessa
svæðis er í dag hvorki til mikillar
prýði né fyrirmyndar, en vonir borg-
aryfirvalda eru þær að uppbygging
á svæðinu hefjist sem fyrst og geti
tryggt stórbætt umhverfi fyrir nýja
íbúa og þá sem fyrir eru. Ekki hefur
þó verið tekin ákvörðun um að end-
urskoða heimildir á því svæði sem
Landhelgisgæslan stendur í dag við
Seljaveg, en gildandi skipulag gerir
þar ráð fyrir óbreyttu ástandi.
Þegar endanleg uppbygging alls
þessa svæðis liggur fyrir, þ.e alls
innan svæðisins sem hefur verið
skilgreint sem Mýrargata Slippa-
svæði má ætla að þarna muni
byggjast allt að 700 íbúðir, en þessi
fjöldi er háður því skilyrði að hluti
þeirra verði litlar hjúkrunaríbúðir
innan Héðinsreits.”
Óvíst hvort Gröndalshús
verður í miðborginni eða
á Árbæjarsafni
- Svokallað Gröndalshús, sem
Benedikt Gröndal skáld bjó lengst
af í, stendur á baklóð við Vesturgötu.
Uppi hafa verið hugmyndir um að
flytja húsið upp á Árbæjarsafn og
gera það upp þar sem eina af perl-
um safnsins. Nú eru uppi hugmyndir
um að flytja það á auða lóð í Grjóta-
þorpinu, þar sem nú er garður sem
íbúar nýta m.a. til samkomuhalds.
Ástæðan er m.a. sögð sú að til stan-
di að ánafna Rithöfundasambandi
Íslands húsið og gera það að eins
konar vinnustofu fyrir erlenda rit-
höfunda. Almenn andstaða virðist
vera við þessi áform af hálfu íbúa
Grjótaþorps, sem segja að að aldrei
hafi verið rætt við þá um þennan
flutning. Hefur þetta mál komið inn
á borð skipulagsráðs? Liggur fyrir
samþykkt innan meirihluta borgar-
stjórnar Reykjavíkur um að flytja
Gröndalshús í Grjótaþorpið?
“Það liggur ekki fyrir nein sam-
þykkt meirihlutans um að flytja
Gröndalshús í Grjótaþorpið. Hins
vegar liggur fyrir sameiginlegur vilji
allrar borgarstjórnar, bæði meiri-
hluta og minnihluta, um að það
hafi verið og sé mikilvægt að skoða
hvort hægt sé að finna húsinu stað
í miðborginni.
Gröndalshús er auðvitað, eins
og við þekkjum, mjög merkilegt og
einstakt hús í sögu Reykjavíkur. Í
kjölfar ákvörðunar frá síðasta kjör-
tímabili um uppbyggingu á þeim
reit sem það stendur nú þarf hús-
ið hins vegar að víkja af svæðinu,
en ákvörðun hafði verið tekin um
flytja húsið í Árbæjarsafn. Áður en
af þeim flutningi verður vildu borg-
aryfirvöld kanna það hvort einhver
möguleiki væri að finna húsinu lóð
í miðborg Reykjavíkur og leyfa íbú-
um þannig áfram að njóta tilvistar
þess og sögu í sínu upprunalega
umhverfi. Þetta var t.d rætt í borg-
arstjórn sl. vetur og um þá athugun
var mikil pólitísk samstaða. Nokkr-
ir staðir hafa verið nefndir í því
sambandi, og einn þeirra er Grjóta-
þorpið.
Hugmyndir um að skoða stað-
setningu hússins í Grjótaþorpi voru
t.d. kynntar á íbúafundi á svæðinu
sl. vetur, þar sem málið var kynnt
og íbúar komu með sínar ábending-
ar. Misjafnar skoðanir komu fram
á þeim fundi, þannig að í raun er
framtíðarstaðsetning Gröndals-
húss enn til umræðu og formleg
ákvörðun liggur ekki fyrir um það
hvort því verður fundinn staður
nálagt sínum upprunalega stað í
miðborginni eða hvort það verður,
í samræmi við fyrir áætlanir, flutt
í Árbæjarsafn,” segir Hanna Birna
Kristjánsdóttir forseti borgarstjórn-
ar og formaður skipulagsráðs.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, forseti borgarstjórnar Reykjavíkur og
formaður skipulagsráðs borgarinnar.
Sameiginlegur vilji allrar borgarstjórnar
að finna Gröndalshúsi stað í miðborginni
Ég útiloka alls ekki að gerðar verði einhverjar breyt-
ingar á þeirri tillögu sem nú er í auglýsingu um Keilu-
granda 1, enda auglýsingatíminn til þess ætlaður að
fá enn frekari viðbrögð úr umhverfinu, en ítreka þó
að ég tel tillöguna mæta ágætlega því markmiði að
byggja þarna íbúðabyggð í góðu samhengi við það
sem fyrir er í þessum hluta borgarinnar. Nú þegar
liggur fyrir úttekt vegna umferðarmála á svæðinu og
úttekt vegna fyrirhugaðra framkvæmda, auk þess
sem verið að vinna að athugun á hljóðvist á svæðinu.
N1 BÍLAÞJÓNUSTA SÆKTU UM VIÐSKIPTA- OGSAFNKORT Á WWW.N1.IS
ER BÍLLINN
KLÁR Í FRÍIÐ?
ALLT A
Ð
10% A
FSLÁTT
UR!
Safnko
rtshafa
r fá 3%
afslátt
í form
i punk
ta.
Viðskip
takorts
hafar f
á 7% a
fslátt,
auk 3%
í form
i Safnk
orts-
punkta
– sam
tals
10% af
slátt.
Láttu smyrja bílinn og athuga hjólbarðana
hjá Hjólbarðaþjónustu N1, Ægisíðu 102
og farðu áhyggjulaus í sumarfríið.
Hjólbarðaþjónusta N1, Ægisíðu 102, Reykjavík, sími 552 3470