Vesturbæjarblaðið - 01.09.2007, Qupperneq 1
9. tbl. 10. árg.
SEPTEMBER 2007Dreift frítt í öll hús í Vesturbæ og Mi›borg
Nágrannar Keilugranda 1
ósáttir við borgarstjórn
Á fundi skipulagsráðs Reykja-
víkurborgar nýverið var lögð
fram að nýju tillaga skipulags-
og byggingarsviðs að breytingu
á Aðalskipulagi Reykjavíkur
2001-2024. Í tillögunni felst að
skilgreina nýjan þéttingarreit við
Keilugranda þar sem gert er ráð
fyrir allt að 130 íbúðum. Auglýs-
ingin stóð yfir frá 13. júlí til 24.
ágúst 2007.
Eftirtaldir aðilar sendu inn
athugasemdir; 6 íbúar við Fjöru-
granda 14, 16 og 18; Margrét Magn-
úsdóttir og Valgeir Pálsson Boða-
granda 10; Salvör Jónsdóttir og
Jón Atli Árnason Fjörugranda 2;
Guðrún Kristinsdóttir Bárugranda
11; Ingibjörg Sigurðardóttir og Örn
Halldórsson Boðagranda 8; Börk-
ur Vígþórsson skólastjóri Granda-
skóla; Kristjana Kjartansdóttir og
Björgvin Bjarnason Frostaskjóli 15
og Gunnar Finnsson Boðagranda
2a ásamt undirskriftarlista 395
íbúa. Afgreiðslu var frestað.
Íbúar í nágrenni reitsins Keilu-
granda 1 hafa brugðist við af undr-
un og reiði yfir þeim áformum borg-
arstjórnar Reykjavíkur að breyta
bæði aðalskipulagi og deiliskipu-
lagi til að byggja megi margfalda
byggð á reitnum Keilugranda 1
umfram þá, sem gildandi skipu-
lag heimilar. Meðal þeirra fjölda
athugasemda, sem fram koma
kemur fram að Skipulagsstofnun
hefur bent á að rökstuðning vant-
ar fyrir tillögum borgarinnar og
að samkvæmt skipulagsreglugerð
þarf að gera grein fyrir umhverfis-
áhrifum hennar sem og þéttleika
byggðar. Þó að andstaða gegn
áformun borgarinnar sé mikil og
almenn eins og fjöldi andmælenda
ber vitni um, telja andmælendur
að borgarstjórn hafi enn ekki hlust-
að og virðist því vera að ganga
erinda eiganda reitsins á kostnað
lífsgæða.
Ekkert samráð
Í bréfi til borgarstjóra, Vilhjálms
Þ. Vilhjálmssonar, nýverið segir
m.a. að byggð á svæðinu sé þeg-
ar mjög þétt og hærri en í öðrum
sambærilegum hverfum. Bent er
á að meðal afleiðinga af tillögum
borgarinnar sé mikið skuggavarp,
stórskert úsýni, sjónmengun, mikl-
ir sviptivindar, áhrif á grunnvatns-
stöðu, stóraukin umferðarþungi
með alvarlegum áhrifum á umferð-
aröryggi einkum barna á leið
úr og í Grandaskóla, sem er á bak
við Keilugranda 1, og æfingasvæð-
is KR.
“Við leggjum áherslu á að við
drögum ekki í efa réttinn til að byg-
gja á reitnum Keilugranda 1. Það
má hins vegar ekki gerast á kostn-
að öryggis barna sem og lífsgæða
og verðmætis húsnæðis íbúa í
nágrenninu. Skipulagsyfivöld borg-
arinnar verða að fylgja þeim regl-
um sem þau hafa sett sér sjálf en
ekki gera á þeim geðþóttabreyting-
ar, sem aðeins þjóna væntingum
og hagnaðarsjónarmiðum eigenda
reitsins. Því beinum við þessum
orðum til þín að þú hefur sýnt í orð-
um og verki að þú virðir hag hins
almenna borgara og að borginni
sé stjórnað á sönnum og traustum
lýðræðisgrundvelli en fyrri athuga-
semdum okkar til Skipulagsráðs
Reykjavíkur og Skipulagsfulltrúa
Reykjavíkur hefur hingað til verið
litill gaumur gefinn og ekkert orð-
ið úr yfirlýsingum þaðan um frek-
ari samráð við okkur,” segir í bréfi
íbúa í nágrenni Keilugranda 1.
Börn og starfsfólk Leikskólans Dvergasteins við Seljaveg buðu fyrir nokkru foreldrum, öfum og ömmum
til skemmtunar þar sem m.a. var sungið fyrir viðstadda.
Líf og fjör á Dvergasteini
Vetrarstarf KR
- Kynning í meðfylgjandi
fjórblöðungi
Hagamel 39
998.-meðan birgðir endast kglambalæri
Tilboð á
Af nýslátruðu
Tilboðið gildir 14.-16. september
St
af
ræ
n
a
p
re
n
ts
m
ið
ja
n
-1
07
23