Vesturbæjarblaðið - 01.11.2007, Qupperneq 1
11. tbl. 10. árg.
NÓVEMBER 2007Dreift frítt í öll hús í Vesturbæ og Mi›borg
Bónus á uppfyllingu í Ánanausti?
Verslun Bónus á Seltjarna-
nesi lokar 1. febrúar nk. en þá
rennur samningur um leigu á
húsnæðinu út. Jóhannes Jóns-
son, forstjóri Bónus, segir að opn-
uð verði verslun úti á Granda-
garði þar sem Húsasmiðjan var
til húsa, en þeirri verslun hefur
verið lokað.
“Það er algjör bráðabirgðalausn
meðan við erum að finna aðra
betri lausn fyrir Vesturbæinga
og Seltirninga. Við höfum þjónað
á Nesinu í hartnær 14 ár en nú
úthýsir bæjarstjórnin þar okkur,
hennar framkoma við okkur er
fyrir neðan allar hellur. Íbúar þar
sem og í Vesturbænum hafa sótt
í okkar þjónustu í þessari verslun
og því er það metnaðarmál okkar
að koma til móts við þá. Við erum
að skoða tvo til þrjá möguleika í
vesturhluta Reykjavíkur, en helst
horfum við þess að fá lóð á þeirri
uppfyllingu sem vonandi verður
í Ánanaustum í framtíðinni. En
vegna mótmæla nágranna við
áformum um uppfyllingu þarna er
það auðvitað bara vonarpeningur
í dag. Við þurfum stórt bílastæði
við verslunina og möguleikarnir
eru vissulega þar,” segir Jóhannes
Jónsson.
Næsta Bónusverslun með góð
bílastæði er í Holtagörðum en
verslun er einnig á Laugavegin-
um, en eðli málsins samkvæmt
með takmörkuðum bílastæðum.
Íslenskuverðlaun menntaráðs Reykjavíkur voru afhent í fyrsta sinn í Borgarleikhúsinu á Degi íslenskrar
tungu, 16. nóvember sl. Þrír nemendur Austurbæjarskóla hlutu viðurkenningu, þau Breki Þórðarson fyrir
góða þekkingu á íslensku máli, Emilía Ósk Þórðardóttir fyrir frjóa tjáningu í bundnu og óbundnu máli og
Skurta Krutaj fyrir framúrskarandi árangur í íslensku sem öðru tungumáli.
Sjá nánar grein um Austurbæjarskóla og viðtal við Guðmund R. Sighvatsson skólastjóra á bls. 4.
Skólavörðustíg 11
Sími: 550 1200
Stjórnkerfisnefnd Reykja-
víkurborgar hefur lagt til við
borgarráð að starfsemi hverfa-
ráða verði efld. Í því skyni verði
fjölgað í ráðunum úr þremur í
sjö. Hlutverk ráðanna við úthlut-
un hverfistengdra styrkja verði
undirstrikað og útfært frekar.
Umsagnarhlutverk hverfaráða
í skipulags- og samgöngumálum
verði skilgreint. Jafnframt geti ráð-
in haft frumkvæði að tillögugerð
sem lýtur að opnum svæðum,
útivistarmöguleikum og umhirðu
í hverfunum og verið umhverfis-
ráði og eignarsjóði til samráðs
um forgangsröðun slíkra fjárveit-
inga. Auk þess verði ráðin vel-
ferðarráði til ráðgjafar varðandi
starfsemi þjónustumiðstöðva í
viðkomandi hverfi. Borgarstjóra
verði falið að gera tillögu um
nánari útfærslu og fjárveitingar
vegna breytinganna í tengslum
við gerð fjárhagsáætlunar fyrir
árið 2008. Borgarráðsfulltrúar
Sjálfstæðisflokks vísaði á fundi
borgarráðs til tillögu sem ekki
kom til atkvæða á fundi stjórn-
kerfisnefndar en þar segir m.a.
að á það sé fallist að skoða þurfi
stöðu hverfaráða í borgarkerfinu.
Verkefni ráðanna eru vandræði-
lega lítil og ábyrgð þeirra engin.
Samtíningur nýrra verkefna sem
sett eru fram í tillögunni sé ekki
sannfærandi.
Starfsemi hverfisráða efld
ÚTSALA
Hagamel 39
23. - 24. og 25 .nóvember
á folaldakjöti
St
af
ræ
n
a
p
re
n
ts
m
i j
an
/
11
15
4 - MEDAN BIRGDIR ENDAST -