Vesturbæjarblaðið - 01.11.2007, Qupperneq 2
Keilugrandi, opnunar-
tími og þyrluflug
Á fundi Hverfisráðs Vesturbæj-
ar í októbermánuði sl. var m.a.
fjallað um fyrirhugað skipulag að
Keilugranda 1 og athugasemdir
íbúa kynntar. Hverfisráð Vestur-
bæjar hvetur skipulagsráð til þess
að taka mið af athugasemdum
íbúa hvað varðar byggingamagn,
umferð, bílastæði og öryggi skóla-
barna. Ennfremur er óskað eftir
kynningu frá fulltrúa skipulagsráðs
og starfsmanns skipulagssviðs
á fyrirhuguðum skipulagsfram-
kvæmdum í vesturbænum.
Álit borgarlögmanns vegna erind-
is frá Hverfisráði Vesturbæjar um
ónæði vegna næturopnunar 10-11
verslunar við Hjarðarhaga 45-47
var lagt fram. Niðurstaða hans er
að hvergi er “að finna heimild fyr-
ir sveitarfélög að takmarka opn-
unartíma verslana ... Er því ekki
hægt að hagga við opnunartíma
10-11 verslunarinnar við Hjarðar-
haga.” Hverfisráðið harmar þessa
niðurstöðu og hvetur til þess að
borgarráð beiti sér fyrir pólitískri
stefnumörkun hvað varðar opn-
unartíma þjónustuaðila í íbúða-
hverfum. Vísar hverfisráð til 26.
greinar lögreglusamþykktar fyrir
Reykjavíkurborg þar sem stendur:
“Borgarstjórn getur þá takmark-
að opnunar- eða þjónustutíma hjá
einstökum aðilum ef starfsemin
veldur nágrönnum eða vegfarend-
um ónæði”.
Gögn um stöðu mála er varða
þyrluflug í nágrenni Skerjafjarðar
voru lögð fram en málið var síðast
tekið fyrir á fundi umhverfisráðs
þann 25. september sl. Ár er lið-
ið síðan málið var sent frá íbúum
og beðið úrbóta, en enn er greini-
lega ekkert að gerast. Það er ekki
góð þjónusta við íbúa Skerjafjarð-
ar. Fund hverfisráðs sátu Sæunn
Stefánsdóttir, formaður, Sif Sigfús-
dóttir, Felix Bergsson og Heimir
Janusarson.
Átta milljónir til kynn-
ingarmála vegna jóla
Borgarstjóri, Dagur B. Eggerts-
son, hefur lagt til að félagið Mið-
borg Reykjavíkur fái 8 milljón
króna styrk til að mæta kostnaði
vegna kynningarmála í aðdrag-
anda jóla. Styrkurinn greiðist af
liðnum ófyrirséð. Borgarráð hefur
samþykkt erindið.
Umræðuvettvangur
leikskóla- og
menntaráðs
Leikskólaráð hefur samþykkt að
setja á laggirnar umræðuvettvang
leikskóla- og menntaráðs, ,,Brú”.
Markmið Brúar er að standa fyrir
opnum fundum þar sem gefst tæki-
færi fyrir alla þá aðila sem tengjast
skólastigunum tveimur að setja
fram hugmyndir, kynna verkefni
sín og ræða samstarf skólastig-
anna. Hlutverk Brúar er eingöngu
að vekja umræðu og vettvangur-
inn mun á engan hátt ganga inn
á verksvið leikskóla- og mennta-
ráðs. Ábyrgðarmenn Brúar eru
sviðsstjórar beggja sviða í nánu
samstarfi við bæði ráð. Í nýnum
meirihluta borgarstjórnar er Sig-
rún Elsa Smáradóttir formaður leik-
skólaráðs en Oddný Sturludóttir
formaður menntaráðs.
Háhraðanet fyrst í
miðborginni
Borgarráð hefur samþykkt að
tillögu borgarstjóra að fela þjón-
ustuskrifstofu Reykjavíkurborg-
ar að kanna möguleika á þráð-
lausu háhraðaneti í Reykjavík.
Horft verði í byrjun til miðborg-
ar, háskólasvæðis í og kringum
Vatnsmýri, ásamt viðskiptahverf-
inu í kringum Borgartún. Kannað-
ir verði möguleikar borgarinnar
til hagræðingar og bættrar þjón-
ustu með þráðlausu háhraðaneti.
Greindar verði tæknilegar útfærsl-
ur og samþætting við ljósleiðara-
net OR eða aðra aðila á þessu sviði
til að greiða fyrir gagnaflutningum
í borginni. Greindur verði stofn- og
rekstrarkostnaður, möguleg fjár-
mögnun og viðskiptalíkan. Kannað-
ur verði áhugi háskóla, ríkis, banka
og fjarskiptafyrirtækja á samstarfi í
slíku verkefni. Niðurstöðum athug-
unar verði skilað til borgarráðs
fyrir 15. desember nk.
Reykjavíkurborg
eftirsóknarverðari
vinnustaður
Leikskólaráð hefur fagnað sam-
þykkt borgarráðs um aðgerðir í
starfsmannamálum Reykjavíkur-
borgar sem eiga að gera Reykja-
víkurborg að eftirsóknarverðari
vinnustað. Samþykktin gagnast
starfsmönnum leikskóla mjög vel.
Leikskólaráð segir ánægjulegt er
að allir starfsmenn leikskóla sem
rétt hafa á yfirvinnu vegna matar-
tíma fengu þær greiðslur 1. nóv-
ember sl. Því er þorri starfsfólks í
leikskólum þegar farinn að njóta
góðs af þessum aðgerðum.
Óskað breytinga að
Laugavegi 46
Að lokinni grenndarkynningu
var lögð fram beiðni um breytingu
á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 46
við Laugaveg. Um er að ræða m.a.
stækkun á verslunarrými á 1. hæð
og á íbúðarrými á 2. og 3. hæð.
Grenndarkynning stóð yfir frá 28.
sept. til 26. okt. 2007. Athugasemd
barst frá húsfélaginu Laugavegi 44
og Önnu Þórisdóttur Laugavegi
44. Samþykkt með vísa umsókn-
inni til umsagnar skipulagsstjóra
og vísað til 12. gr. samþykktar um
skipulagsráð.
Breytingar á Hressó
Sótt hefur verið um leyfi fyr-
ir breytingum á innra skipulagi
Hressingarskálans að Austur-
stræti 20 þannig að áður Ömmu-
kaffi og veitingastaðurinn Hress-
ingaskálinn verða sameinuð í
eina einingu með því að opna á
milli eininga og breyta áður eld-
húsi Ömmukaffis í bar á lóðinni
nr. 20 við Austurstræti. Skipulags-
ráð gerir ekki athugasemd við að
veitt verði byggingarleyfi þegar
teikningar hafa verið lagfærðar
í samræmi við athugasemdir á
umsóknareyðublaði. Málinu var
vísað til afgreiðslu byggingarfull-
trúa.
Dressmann stækkar
Sótt hefur verið um leyfi til
skipulagsráðs til að stækka 1.
hæð að Laugavegi 18b, verslunin
Dressmann, með því að færa fram
inndregna verslunaglugga og loka
undirgangi, innrétta íbúð í ein-
ingu 0202, breyta gluggum norður
hliðar 2. hæðar, breyta gistirými í
íbúð, breyta skrifstofu á 4. hæð
í gistirými ásamt lagfæringum á
áður gerðri stækkun íbúðar á 4.
hæð í fjöleignarhússinu á lóð nr.
18B við Laugaveg. Beiðnin var
samþykkt en áskilin er lokaúttekt
byggingarfulltrúa.
Vesturgata 17 verður
gistiheimili
Sótt hefur verið um leyfi til að
innrétta 17 herbergja gistiheimili
á 1., 2. og 3. hæð í stað verslun-
ar og skrifstofurýma og rífa 15
ferm. skúrbyggingu á lóðinni nr.
17 við Vesturgötu. Grenndarkynn-
ing stóð frá 7. júní til og með 5.
júlí 2007. Athugasemdir bárust
frá 9 íbúum að Vesturgötu 17A og
10 íbúum við Ránargötu 2 og 4.
Erindinu var vísað til umsagnar
vesturteymis arkitekta hjá skipu-
lagsstjóra. Afgreiðslu hjá skipu-
lagsráði var frestað um sinn.
Enn fjallað um
Nýlendureit
Lögð hefur verið fram í skipu-
lagsráði tillaga endurskoðuð
tillaga að deiliskipulagi Nýlendu-
reits með nýrri afmörkun. Einnig
lagt fram bréf Skipulagsstofnun-
ar þar sem gerð er athugasemd
við birtingu auglýsingar á sam-
þykkt deiliskipulagsins í B-deild
Stjórnartíðinda. Breytt afmörkun
samkvæmt tillögu samþykkt með
vísan til athugasemda Skipulags-
stofnunar. Málinu var vísað til
borgarráðs.
2 Vesturbæjarblaðið
Útgefandi: Borgarblöð ehf.
Vesturgötu 15 • 101 Reykjavík
Sími: 511 1188 • 561 1594
Fax: 561 1594
Ritstjóri: Geir A. Guðsteinsson, Sími 564 5933, 898 5933
Netfang: geirgudsteinsson@simnet.is
Auglýsingasími: 511 1188 • 561 1594 • 895 8298
Netfang: borgarblod@simnet.is
Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Kristján Jóhannsson
Umbrot: Valur Kristjánsson
Prentun: Landsprent ehf.
Dreifing: Íslandspóstur
11. tbl. 10. árgangur
Vesturbæjarblaðinu er dreift í hvert hús í Vesturbæ og Miðborg.
S T U T T A R
B O R G A R F R É T T I R
F ífilbrekka, gróin grund,grösug hlíð með berjalautum,flóatetur, fífusund,
fífilbrekka, smáragrund!
Yður hjá ég alla stund
uni bezt í sæld og þrautum,
fífilbekka, gróin grund,
grösug hlíð með berjalautum!
Er hægt að yrkja fallegra til föðurlandsins? Þessi fyrsta vísa
í Dalvísum Jónasar Hallgrímssonar segir manni að skáldið,
náttúrufræðingurinn og stjórnmálamaðurinn hafi ætíð hugsað
sterkt til föðurlandsins, og þá kannski helst heim að Hrauni í
Öxnadal, þótt hann dveldi langdvöldum erlendis og andaðist
þar langt um aldur fram. Jónas Hallgrímsson er eitt mesta skáld
sem Ísland hefur átt, en stundum vilja gleymast aðrir kostir
hans, eins og t.d. stjórnmálamannsins, en það hefur farið lægra.
Ekkert íslenskt skáld á það betur skilið en þjóðskáldið Jónas Hall-
grímsson að Dagur íslenskrar tungu sé tileinkaður honum, skáldinu
sem hafði svo frábær tök á málinu og orti oft svo frábærlega.
Það var líka mjög við hæfi að veita dr. Sigurbirni Einarssyni bisk-
up verðlaun Jónasar Hallgrímssonar í ár. Yfirburða þekking hans
og vald á íslensku máli gerðu predikanir hans svo eftirtektarverðar,
jafnvel svo að margir þeir sem stóðu utan Þjóðkirkjunnar hrifust
með vegna orðsnillinnar. Líkt og Jónas Hallgrímsson hefur hann
lagt merkt framtak til þess að tryggja framtíð íslenskrar tungu. Þjóð
sem týnir tungumáli sínu, týnir einkennum sínum og að lokum sjálf-
stæði sínu. Þökk sé dr. Sigurbirni að það er fjarri því að vera í nánd.
Hvert fer Gröndalshús?
S vokallað Gröndalshús við Vesturgötu bíður þess að vera flutt burtu af núverandi stað að baki Vesturgötu 16 þar sem það er fyr-ir skipulagi, en hvert? Meiri vilji hefur verið til þess að flytja húsið
á lóð við miðbæinn en upp á Árbæjarsafn þótt eflaust færi ágætlega um
það þar. Fyrst átti að koma því fyrir við Mjóstræti, en það hentaði ekki
Þráni Bertelssyni baksíðupistlahöfundi, og borgaryfirvöld samsinntu
því. Síðan stóð til að setja Gröndalshús niður á lóð á horni Tungötu og
Garðastrætis sem í dag geymir grjótóskapnað sem á að minna okkur
á stuðning við sjálfstæði Letta. Nágranni mótmælti, og ekkert varð af
því. Við Grjótagötuna er róluvöllur sem fáir koma á en hefði kannski
hentað sem staðsetning. Húsið hefði skyggt á útsýni frá húsi Sverris
Guðjónssonar söngvara og eftir undirskriftarsöfnun sem skilað var til
fyrrverandi borgarstjóra virðist sú hugmynd einnig hafa lent í ruslaföt-
unni. Þessi saga er sýnishorn af afstöðu margra borgarbúa til þess þeg-
ar þétta á byggð í grónum hverfum. Flestir eru því sammála, bara ekki í
þeirra baklóð. Á meðan grotnar Gröndalshús niður, eða hvað?
Meirihlutinn í Vesturbænum
N ýlega urðu breytingar á stjórn borgarinnar þegar Fram-sóknarflokkurinn skipti um samstarfsflokk, setti Sjálfstæð-isflokkinn af skútunni og tók Samfylkingu, Vinstri græna
og varafulltúa Frjálslyndra um borð. Til fróðleiks má geta þess að
meirihluti borgarfulltrúa býr í Vesturbænum eða Miðbænum, eða 8
af 15 borgarfulltrúum. Sex þeirra búa í Vesturbænum en tveir í Þing-
holtunum, þ.á.m. nýr borgarstjóri sem býr við Óðinsgötu en formað-
ur menntaráðs við Sjafnargötu. Í fjölmennasta hverfinu, Grafarvogi,
býr enginn borgarfulltrúi og heldur enginn í því nýjasta, Grafarholti.
Hvort búseta hafi áhrif á ákvarðanatöku er hins vegar dregið í efa,
borgarfulltrúar eru fulltrúar allra borgarbúa, ekki bara sumra.
Geir A. Guðsteinsson
Íslensk tunga
á hauk í horni
Vesturbæingar
Kannski KR fái æfingaaðstöðu
á uppfyllingunni við
Ánanaust?
NÓVEMBER 2007