Vesturbæjarblaðið - 01.11.2007, Qupperneq 8
Dvalar - og hjúkrunarheim-
ilið Grund fagnaði nýlega 85
ára afmæli og um leið var þess
minnst að 100 ár voru liðin frá
fæðingu Gísla Sigurbjörnssonar
sem var forstjóri Grundar frá
árinu 1934.
Fjölbreytt dagskrá var 27.októ-
ber sl. M.a. var sýning á gömlum
og nýjum myndum úr starfi Grund-
ar; afmæliskaffi í borðstofu; söng-
ur Gerðubergskórsins og einnig
söng Elín Ósk Óskarsdóttir fyrir
gesti við undirleik Kjartans Ólafs-
sonar, og á efstu hæðinni var sýn-
ing á handavinnu heimilismanna.
Ljóst er að margur hefur orðið vís-
ari um fjölbreytta starfsemi Grund-
ar þennan dag, en fjöldi manns
heimsótti Grund af þessu tilefni.
8 Vesturbæjarblaðið NÓVEMBER 2007
Á Grund eiga margir
ánægjulegt ævikvöld
Handavinna er snar þáttur í starfseminni. Starfseminni á vinnustofunni stjórnar Stefanía Snævarsdóttir
handavinnukennari. Opið er alla daga frá kl. 09.00 til 16.30, en þarna kemur fólk á sínum forsendum.
Þessar konur eru frá Gilsfjarðarbrekku í Gilsfirði. F.v.: Kristín Soffía Jónsdóttir, Anna Guðrún Jónsdóttir og
Ragnheiður Jónsdóttir, en Ragnheiður býr ein þeirra systra á Grund. Þær Kristin og Anna voru í heimsókn
hjá systur sinni í tilefni dagsins.
Tónlistarhátíð Neskirkju “Tón-
að inn í aðventu” hófst sl. sunnu-
dag og verða alls sex tónleikar,
og mjög fjölbreyttir. Hátíðin
hófst sl. sunnudag.
Föstudagskvöldið 23. nóvem-
ber, þ.e. á morgun, koma fram
tveir aðrir félagar er hafa starfað
lengi saman en það eru Jón Þor-
steinsson tenór og Hörður Áskels-
son orgelleikari. Þeir munu fly-
tja tíu sálma af hljómdiskinum “Ó,
Jesú, að mér snú” sem nýverið
kom út og hefur hlotið mikið lof,
en einnig flytja þeir fimm “Geist-
liche Lieder” eftir J. S. Bach.
Sunnudaginn 25. nóvember
mun tríó skipað Pamelu De Sensi
flautuleikara, Martin Frewer fiðlu-
leikara og Sophie Schoonjans
hörpuleikara flytja ástríðufulla
tónlist ættaða frá Frakklandi og
Spáni. Þess má geta að þau eru
frá sínu landinu hver, Ítalíu, Belgíu
og Englandi en öll búsett á Íslandi
og verður spennandi að sjá hvern-
ig þessi áhrif blandast saman.
Föstudagskvöldið 30. nóvem-
ber verður barrokk-hópurinn
Rinascente með tónleika undir
yfirskriftinni “Vín og ljúfir tónar”
í safnaðarheimili kirkjunnar. Þar
verður flutt tónlist eftir Bach, Muf-
fat og svo tvær einsöngs kantötur
eftir G. F. Handel. Einnig verður
“Vín og matur” með vínkynningu
á ítölskum vínum í hléi en kantöt-
ur Handel samdi hann á Ítalíuár-
um sínum en ekki á Englandi og
mun þetta skapa rétta stemningu.
Sunnudaginn 2. desember held-
ur Steingrímur Þórhallsson org-
anisti við Neskirkju sína árlegu
orgeltónleika undir yfirskriftinni
“Org” en þar mun hið mikla hljóð-
færi kirkjunnar fá að njóta sín
með tónlist Bach, Allain og Jóns
Þórarinssonar.
Lokatónleikar hátíðarinnar
verða svo fimmtudagskvöldið 6.
desember klukkan 20:00 en þar
mun Kór Neskirkju ásamt fjórum
einsöngvurum og hljómsveit flytja
í fyrsta sinn á Íslandi óratoríuna
“L’allegro, penseroso e moderato”
eftir meistara G. F. Handel sem
hann samndi einu ári áður en
meistaraverkið “Messías”. Leikið
verður á barrokkhljóðfæri og er
þetta líklega stærsta hljómsveit
af því taginu sem sett hefur verið
saman hér af hljóðfæraleikurum
starfandi á Íslandi og er gaman að
sjá að smám saman er að skapast
reynsla hjá innlendum hljóðfæra-
leikurum í að spila á upprunarleg
hljóðfæri.
Einsöngvarar á tónleikunum
eru Hallveig Rúnarsdóttir sópr-
an, Marta Halldórsdóttir sópran,
Eyjólfur Eyjólfsson tenór og Hrólf-
ur Sæmundsson baritón. Konsert-
mestari er Martin Frewer en
stjórnandi Steingrímur Þórhalls-
son.
Fullyrða má að þáttaka í Tónlist-
arhátíðinni færir fólk nær hátíð
jólanna, fyrir utan hvað það gerir
öllum gott að njóta góðrar tónlist-
ar eina kvöldstund.
Tónað inn í
aðventu í Neskirkju
Kirkjukór Neskirkju að æfa fyrir lokatónleika Tónlistarhátíðar Nes-
kirkju sem verða 6. desember nk. Þar mun kórinn ásamt fjórum
einsöngvurum og hljómsveit flytja í fyrsta sinn á Íslandi óratoríuna
“L’allegro, penseroso e moderato” eftir meistara G. F. Handel sem
hann samndi einu ári áður en meistaraverkið “Messías.” Stjórnandi er
Steingrímur Þórhallsson.