Vesturbæjarblaðið - 01.11.2007, Side 11
Nýtt kirkjuár hefst fyrsta
sunnudag í aðventu og er fjöl-
breytt dagskrá í Dómkirkjunni
alla aðventuna. Messað er á
sænsku, þýsku, dönsku og okkar
ylhýra íslenska máli.svo eitthvað
sé nefnt, eins og fram kemur í
dagskránni hér að neðan.
Dagskrá helg ihaldsins á
aðventu og jólum í Dómkirkjunni
er eftirfarandi:
2. desember kl. 11.00, messa dr.
Einar Sigurbjörnsson predikar. Kl.
20.00 aðventukvöld.
9. desember kl. 14.00, sænsk
messa sr. Anna Sigríður Pálsdótt-
ir prédikar. Kl. 11.00 aðventuhátíð
barnanna, kl. 20.00 Aðventukvöld
Kiwanis.
16. desember kl. 11.00, messa dr.
Einar Sigurbjörnsson prédikar. Kl.
20.00, æðruleysismessa.
Þorláksmessa 23. desember kl.
11.00, messa sr. Anna Sigríður Páls-
dóttir prédikar. Kl. 15.00 þýsk messa
Sr. Gunnar Kristjánsson predikar.
Aðfangadagur 24. desember kl.
18.00, aftansöngur sr. Hjálmar Jóns-
son prédikar. Kl. 15.00, dönsk messa
sr. Þórhallur Heimisson prédikar. Kl.
23.30 kvöldmessa, biskup Íslands
prédikar
Jóladagur 25. desember kl. 14.00,
messa sr. Anna Sigríður Pálsdóttir
prédikar.
26. desember kl. 11.00, messa sr.
Þorvaldur Víðisson prédikar.
30. desember kl. 11.00, messa sr.
Hjálmar Jónsson prédikar.
Gamlarsdagur 31. desember kl.
18.00, aftansöngur sr. Anna S. Páls-
dóttir prédikar
B+ í Dómkirkjunni!
Vikuna 28. október til 4. nóvem-
ber stóð ÆSKÞ fyrir verkefninu
B+ í samstarfi við Hið íslenska
biblíufélag og æskulýðsfélög í
kirkjunni. Lagt var upp með það
verkefni að lesa Biblíu 21. aldar
í heild sinni á landinu öllu. Nýju
þýðingu biblíunnar var skipt upp
í 28 hluta og þeim deilt niður á
æskulýðsfélög.
Í Dómkirkjunni lásu fermingar-
börnin sinn hluta sunnudaginn
28. október. Góð mæting var hjá
fermingarbörnunum og skemmti-
legt að hin vaxandi kynslóð skuli
hafa tekið þetta verkefni að sér.
Á sama tíma og lesturinn fór fram
héldu TTT krakkar í Dómkirkj-
unni kökubasar og söfnuðu pen-
ingum fyrir munaðarlausa stúlku
sem þau eru að styrkja á Indlandi.
Samhliða því var gestum boðið að
skrá sig í Hið íslenska biblíufélag.
B+ var verkefni sem teygði anga
sína út um land allt, en einnig út
fyrir landssteinana, því ferming-
arbörn í Noregi tóku einnig þá í
verkefninu.
Hádegisbænin á
sínum stað
Á hverjum miðvikudegi kl.
12:00 hefst hádegisbæn Dómkirkj-
unnar á því að organisti leikur
tónlist. Um klukkan 12:10 hefst
bænastund þar sem prestur leið-
ir í orði og bæn. Hægt er að bera
fram skriflegar fyrirbænir og ein-
nig er bænarefnum veitt móttaka í
síma 520-9700. Veitingar eru síðan
í boði á kirkjuloftinu gegn vægu
gjaldi í lok stundarinnar um kl.
12:30. Allir eru að sjálfsögðu vel-
komnir!
Kvöldkirkjan hóf göngu sína á
nýju kirkjuári á aðventu árið 2006.
Kvöldkirkjan er opin frá kl. 20:00
til kl. 22:00 öll fimmtudagskvöld.
Hún er skjól og athvarf fyrir þá
sem þangað sækja. Hún er farveg-
ur bænar og kyrrðar og þess að
nálgast og upplifa Guð á nýjan
máta. Allir eru velkomnir inn í
kyrrð kirkjunnar til að eiga stund
með sjálfu sér og Guði sínum.
Fermingarbörn í Dómkirkjusókn
tóku þátt í árlegri söfnun Hjálpar-
starfs kirkjunnar þann 5. nóvem-
ber sl. Í fermingarfræðslunni voru
þau búin að fá innsýn inn í starf
Hjálparstarfsins og þekkja þau
góðu málefni sem Hjálparstarfið
vinnur að á erlendri grundu. Alls
safnaðist rúmlega 71 þúsund krón-
ur á þeim tveimur tímum sem
krakkarnir voru að í sókninni.
11VesturbæjarblaðiðNÓVEMBER 2007
Fisk
isló
ð
Gra
nda
gar
ður
MýrargataÁna
nau
st
Við erum hér!
Arnar GuðborgDagný
Rakel KongaSilla
SALON REYKJAVÍK
Grandagarði 9 • Reykjavík • S. 568 5305
salon@salon.is
Vertu velkomin(n)!
Við erum flutt
út á Granda!
Hárgreiðslustofan Salon Reykjavík hefur
flutt sig um set úr Glæsibæ út á Grandagarð 5,
gegnt gamla Ellingsen húsinu.
Grandagarði 5 • Reykjavík • S. 568 5305
Dómkirkjan á aðventunni!
Sólveig Vaka, fermingarstúlka í Dómkirkjunni 2008 hóf verkefnið B+
í Dómkirkjunni.
Skrifstofuaðstaða Brims hf. í
Reykjavík hefur verið flutt að
Bræðraborgarstíg 16 í Reykjavík,
en var áður í Hafnarhvoli við
Tryggvagötu. Húsið, sem stend-
ur á horni Öldugötu og Bræðra-
borgarstígs hýsti áður bakarí og
síðar bókaforlag Iðunnar. Það
hefur allt verið gert upp og er
hið glæsilegasta. Á Akureyri er
aðeins skrifstofuhald kringum
daglegan rekstur þar.
Brim var stofnað 1998, þá sem
Útgerðarfélagið Tjaldur ehf. þegar
þeir feðgar, Kristján Guðmunds-
son, Hjálmar Kristjánsson og Guð-
mundur Kristjánsson, skiptu upp
rekstri sínum á Rifi. Guðmundur
var þá fluttur til Reykjavíkur og
tók alfarið við rekstri Útgerðarfé-
lagsins Tjalds ehf. Árið 2005 var
nafni Útgerðarfélagsins Tjalds ehf.
breytt í Brim hf.
Inga Jóna Friðgeirsdóttir skrif-
stofustjóri segir að starfsfólk sé
mjög ánægt með að vera kom-
ið vestur í bæ, húsnæðið mjög
skemmtilegt og umhverfið rólegt
og ekki sami slagur um bílastæði
eins og í Tryggvagötunni. Helst sé
að sakna þess að sjá ekki út á sjó.
Brim á Bræðraborgarstíg
Skrifstofur Brims á Bræðraborgarstíg.
WWW.N1.ISN1 HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
Það er öryggisatriði að vera á góðum vetrardekkjum. N1 er með mesta úrval
landsins af hjólbörðum og á hjólbarðaverkstæðum okkar færð þú fyrsta flokks
þjónustu og góð ráð fyrir veturinn. Svo getur þú auðvitað geymt dekkin hjá okkur.HJÓ BAR A
N1 - Meira í leiðinni.
Þriðja stærsta útgerðarfélag landsins flytur í Vesturbæinn: