Vesturbæjarblaðið - 01.11.2007, Page 13
13VesturbæjarblaðiðNÓVEMBER 2007
Fjölbreytt jólatónlistarhátíð í Hallgrímskirkju
Jólatónlistarhátíð Hallgríms-
kirkju fer fram dagana 1. til 9.
desember nk. Hátíðin hefst 1.
desember kl. 12.00 með org-
elandakt við upphaf aðventu þar
sem Björn Steinar Sólbergsson
leikur orgelverk eftir J. S. Bach,
D. Buxtehude og Andrew Cart-
er. Sr. Birgir Ásgeirsson flytur
ritningalestur og bæn. Kl. 14.00
er opnuð aðventusýning, Himna-
sýn?? Þar sem Arngunnur Ýr
Gylfadóttir sýnir ný olíumálverk
í forkirkju Hallgrímskirkju.
2. desember kl. 11.00, hátíða-
messa á 1. sunnudegi í aðventu.
Biskup Íslands herra Karl Sigur-
björnsson predikar og þjónar fyr-
ir altari.
2. desember kl. 17.00, jólatón-
leikar Mótettukórs Hallgríms-
kirkju, í 26. sinn. Kirkjan verður
fagurlega skreytt og undurfögur
jólatónlist lyftir hugum í hæðir.
Á efnisskránni í ár eru m.a. þætt-
ir úr Jólaóratóríu Saint Saëns
ásamt fleiri perlum franskrar
jólatónlistar. Gissur Páll er gestur
Mótettukórsins og flytur m.a. arí-
ur eftir Gounod o.fl.
6. desember kl. 20.00, jólatón-
leikar Drengjakórs Reykjavíkur.
Með kórnum syngja félagar úr
Karlakór Reykjavíkur, ásamt Gunn-
ari Guðbjörnssyni óperusöngv-
ara, orgelleikari: Lenka Máteova,
stjórnandi: Friðrik S. Kristinsson.
8. desember kl. 12.00 - 17.00.
Söngur og orgeltónlist á jólaföstu.
Klaisorgelið 15 ára.en það er
stærsta orgel Íslands með 72 radd-
ir og 5275 pípur, en það var vígt
þann 13. desember 1992. Kl. 12.30,
Hallgrímskirkjuturninn hljóm-
ar! Klukkuspil og málmblásarar,
Hörður Áskelsson og Hljómskála-
kvintettinn leika á klukkuspil og
lúðra í Hallgrímskirkjuturninum.
Kl. 13.00, aðventu- og jólasöngvar
- allir syngi með! Mótettukór Hall-
grímskirkju undir stjórn Harðar
Áskelssonar leiðir sönginn. Síðan
tekur m.a. við Noël, noël! Björn
Steinar Sólbergsson flytur franska
jólatónlist fyrir orgel; Drengjakór
og félagar úr Karlakór Reykjavík-
ur undir stjórn Friðriks S. Krist-
inssonar leiða sönginn og flytja
jólatónlist, Lenka Mateova leikur
á orgel; Dómkórinn í Reykjavík
undir stjórn Marteins H. Friðriks-
sonar; Kvennakór við Háskóla
Íslands flytur jólalög m.a. úr
Söngvasveig eftir Benjamin Britt-
en undir stjórn Margrétar Bóas-
dóttur; Hafdís Huld syngur, og
börn og fullorðnir syngja með!
og loks leikur Guðný Einarsdóttir
leikur jóla- og aðventutónlist eftir
J.S. Bach og Dietrich Buxtehude.
9. desember kl. 11.00, messa á
2. sunnudegi í aðventu. Karlakór
Reykjavíkur syngur. Kl. 17.00 flyt-
ur Björn Steinar Sólbergsson org-
anisti og Schola cantorum undir
stjórn Harðar Áskelssonar jólatón-
list eftir J. S. Bach.
Björn Steinar Sólbergsson organisti.
BORG
6591159
FRÍTT
VERÐMAT!
TOPP ÞJÓNUSTA
6599606
www.remaxeignir.com
Kaupi
hljómplötur
(LP) rokk, jazz og íslenskt.
Annað kemur til greina.
Ingvar sími: 699 3014
& 534 9648.