Vesturbæjarblaðið - 01.11.2009, Síða 4
4 Vesturbæjarblaðið NÓVEMBER 2009
Ég var 16 ára þegar ég fluttist í Vesturbæinn og hef búið þar síðan með viðkomu í Danmörku, Bol-
ungarvík og nú í Dalabyggðinni.
Á sumrin var ég í sveitinni en á
haustin kom ég heim í Hlíðarnar
og var þar yfir veturinn. Frá því
ég fluttist vestur fyrir læk hef ég
búið á þremur stöðum í innan við
200 metra radíus. Fyrst á Holts-
götu, svo Meistaravöllum og loks
á Vesturvallagötu,” segir Grímur
Atlason, sveitarstjóri í Dalabyg-
gð og tónlistaráhugamaður með
meiru í samtali við Vesturbæjar-
blaðið.
Grímur kveðst vera landsbyggða-
maður í eðli sínu sem stafi að einh-
verju leyti af því hversu mikið hann
var í sveit á sumrin sem barn og
unglingur. “Ég er þó Reykvíkingur
en af fyrstu kynslóð því báðir
foreldrar mínir eru utan af landi.
Faðir minn er úr Súðavík en móðir
mín frá Raufarhöfn en þar dvaldi ég
líka hjá langömmu minni sem barn.
Mér finnst ég ekki hafa kynnst Reyk-
javík af alvöru fyrr ég var kominn á
fjórtánda ár og var í fyrsta skipti
að sumri til í bænum. Ég slapp því
alveg við fótboltaæfingar og annað
tómstundastarf sem borgarbörnum
var boðið upp á. Ég var bara í
sveitinni á sumrin og veturnir fóru í
skólann.” Eftir grunnskólann lá leið
Gríms í MH og þaðan í Þroskaþjál-
faskólann.
“Ég fór síðan að starfa í þeim
geira, fyrst með náminu en síðar
í fullri vinnu. Ég vann um tíma á
geðdeildum en lengst hjá Styrk-
tarfélagi vangefinna, sem nú er nú
Ás-styrktarfélag. Síðar flutti ég til
Danmerkur þar sem ég bjó í þrjú
ár og hélt áfram að starfa við fagið.
Allan tímann hafði ég og hef ennþá
mikinn áhuga á listum og þá ein-
kum tónlistinni. Ég var í listafélag-
inu í MH þar sem við héldum marga
tónleika og fluttum meira að segja
inn hljómsveit sem frægt mál ska-
paðist af á þeim tíma. Þegar ég kom
heim frá Danmörku hélt ég áfram
að vinna að mínu fagi og mest
við félagsþjónustu en fór fljótlega
einnig að fást við tónlistina. Sam-
hliða starfi mínu hjá félagsþjónus-
tunni fór ég að sinna tónleikahaldi
og plötuútgáfu allt til ársins 2004
þegar ég ákvað að sinna tónlistinni
í fullu starfi. Ég stofnaði fyrirtæki
sem m.a. stóð að tónleikahaldi og
innflutningi tónlistarmanna.”
Gamli Vesturbærinn er
bara Ísland
Grímur segir að fyrir sér sé gamli
Vesturbærinn vestan Grjótaþorp-
sins eins og hluti af því umh-
verfi sem hann þekki til utan af
landsbyggðinni. “Samsetningin er
ekki ólík því sem ég kynntist í Bol-
ungarvík. Nálægðin við höfnina og
sjóinn er hin sama og í þessum bor-
garhluta þekkjast nágrannar enn
þann dag í dag og ræðir saman á
förnum vegi. Einn kostur Vestur-
bæjarins er að hann er ekki hluti
af miðborginni en miðborgin, með
öllu því góða sem hún hefur upp
á að bjóða, er samt bara í fimm
mínútna göngufæri. Gamli Vestur-
bærinn er bara Ísland. Ef ég lít inn
í heim krakkanna þá er hann einnig
líkur því sem maður kynntist fyrir
vestan. Þau gengu nokkur skref í
skólann í Víkinni og gera það líka
í Vesturbænum. Sömu sögu er að
segja úr Búðardal. Aðeins nokkrir
metrar að ganga í skólann. Vegna
starfa minna í Dölunum og tvö-
faldri búsetu fjölskyldunnar af þeim
sökum þá hafa börnin notið þess
að fara í skólann fyrir vestan þegar
þau dvelja þar.”
Fallegustu hús í Reykjavík
“Vesturbærinn er um margt
öðruvísi en aðrir borgarhlutar,”
heldur Grímur áfram. “Hann hefur
gengið í gegnum marga hluti. Ótal
kynslóðaskipti hafa átt sér stað.
Vesturbærinn hefur heldur ekki
alltaf verið jafn barnmargur og í
dag. Ég man eftir því þegar ég var
strákur að erfitt var að manna KR
í Vesturbænum og verið var að fá
krakka „lánaða“ úr Breiðholtinu og
annarsstaðar frá í félagið. En nú
er búið að markaðssetja hann sem
fjölskylduvænt umhverfi og ungt
fólk með börn hefur leitað þangað í
auknum mæli. Gamli Vesturbærinn
er löngu fullbyggður og unga fólkið
kaupir eldri íbúðir og gerir þær
upp eða flytur bara inn eftir efnum
og ástæðum. Þetta er allt annar
bragur en á flestum öðrum borg-
arhverfum – bragur sem uppfyllir
þarfir mínar um búsvæði.” Grímur
kveðst geta sagt gamla Vesturbæ-
num til hróss að þar sé að finna
einhver fallegustu hús í Reykjavík
og klassískan arkitektúr. “Þar er
mikið af gömlum timburhúsum
og einnig af fallegum steinhúsum.
Blessunarlega hefur hin heimska
hönd skipulagsins ekki farið þar um
og náð að eyðileggja gróið umhverfi
eins og víða hefur orðið og nægir
að nefna Kvosina, Laugaveginn og
Skuggahverfið í því efni. Baráttan
gegn skipulaginu eða öllu heldur
skipulagsleysinu hefur kostað blóð,
svita og tár og stundum hefur fram-
kvæmdaástin náð um of að komast
inn í skipulagið þar sem reynt er að
fá sem flestar krónur fyrir hvern
rúmmetra af steinsteypu.”
Kaffivagninn og fallegar
verbúðir
Talið berst að sjávarsíðunni sem
minnir Grím á Raufarhöfn og Bol-
ungarvík og aðra staði við sjóinn
sem hann kefur kynnst. Hann
segir ákveðinn sjarma vera yfir
Slippsvæðinu þótt þar megi finna
ljótar byggingar. “En nú er verið
að forma spennandi hugmyndir
um endurbyggingu þessa svæðis.
Á Grandanum er hinsvegar búið
að reisa of mikið af skemmulaga
húsum. Verslanirnar eru komnar í
litlausa skemmukassa og jafnvel eru
flutt inn stálgrindarhús ætluð undir
vöruskemmur, iðnaðarhúsnæði
og jafnvel gripahús. Þetta er afleit
þróun en nú er spurning hvernig
tekst til hinum megin á Örfiriseynni.
Svæðið í kringum verbúðirnar og
Kaffivagninn er notalegt. Ég fer oft
þangað með krakkana að skoða
skipin og til að velta því fyrir okkur
hvaðan þau koma og hverskonar
afla þau koma með að landi. Það er
gott að verðbúðirnar fá að standa
því þangað er gott að fara. Ég fór
þangað oft sem krakki því afi minn,
Magnús Grímsson, var með pláss
í lengjunni og þangað heimsótti
ég hann. Hann var þekkt aflakló
en hafði ímugust á landhelgisgæs-
lunni. Hafði viðurnefnið „Mangi
langt fyrir innan“. Man eftir því
eitt sinn að hann benti mér þá sjö
ára á varðskipin við Ægisgarð og
sagði: „Grímur, þetta eru bófar“. Ég
taldi lengi vel á eftir að Landhelgis-
gæslan væru helstu glæpasamtök
Íslands“, segir Grímur og hlær.
Vesturbærinn er
blessunarlega laus við
kassastílinn í arkitektúr
Grímur lítur síðan yfir borgar-
landið og skipulagslega þróun þess
í síðari tíð. “Mér finnst aðkoman
inn í Reykjavík úr norðri líka
hafa versnað. Áður fyrr voru fall-
egar byggingar Korpúlfsstaða það
fyrsta sem fyrir augað bar og húsið
í Hulduhólum. Nú er þetta eigin-
lega horfið á bak við ljóta kassa.
Korputorgið er misheppnað og Bau-
hauskassinn er ekkert skárri. Þegar
maður kemur t.d. til Kaupmanna-
hafnar má sjá gamla reykspúandi
verksmiðjur rétt við Gamle Køge
Landevej. Þetta er samt bygging
með sjarma og stíl – minnir svolítið
á myndina utan á Animals með
Pink Floyd. Við þurfum að byggja
fleiri hús sem særa ekki fegurðar-
skyn manna. Þessi kassastíll sem
nú tröllríður öllu er úldinn arkitek-
túr – dragúldinn. Og hann einkennir
ekki aðeins Örfiriseyna og Mosfells-
bæinn. Hann er út um allt. Kassarnir
við Suðurlandsbrautina eru ekkert
augna yndi að ekki sé talað um
Skuggahverfið og nýja Borgartúnið
eða 2007 hverfið sem átti að verða
“Wall Street” Reykjavíkur og tákn
um hinn nýfengna stórgróða. Nú
er líka í tísku að lita allt svart og
hvítt. Svarthvíta kassaformið er
allsráðandi í byggingalistinni. Eitt
af aðalsmerkjum gamla Vesturbæ-
jarins fyrir utan vinalega mannlíf
sem hefur mótast þar er að þetta
byggingaform hefur ekki náð þan-
gað og mun vonandi aldrei koma.
Þar má sjá alls kyns form og liti,
sem gleðja augað. Við verðum að
varðveita þessa mynd.”
Aldrei verið 101 rotta
Grímur hefur að eigin sögn alltaf
hafa haft áhuga á pólitík og nokkuð
sterka sýn á stjórnmálin. “Eftir að
ég kom heim frá Danmörku fór
þessi áhugi minn vaxandi. Ég gekk
til liðs við Vinstrihreyfinguna –
grænt framboð og fór að starfa með
þeim. Eftir kosningarnar 2002 tók
ég sæti í nefndum á hennar vegum.
Þar liggja mín fyrstu afskipti af
sveitarstjórnarmálum. Ég ritstýrði
Morgunpóstinum um tíma sem var
einskonar málgagn flokksins um
tíma og skrifaði pólitíska leiðara á
hverjum degi.”
Grímur segir ekki rétt sem stun-
dum hafi verið haldið fram að
hann hafi dottið inn í landsbyg-
gðapólitíkina 2006. “Ég hef alltaf
verið tengdur landsbyggðinni og
bakgrunnur minn liggur þar að
verulegu leyti. Ég hef aldrei verið
svona 101 rotta eins og stundum
er sagt í háði um þá sem einkum
tengjast miðborg Reykjavíkur og
miðborgarstemningunni. Ég reyndi
fyrir mér í prófkjöri í Reykjavík fyrir
sveitarstjórnarkosningarnar 2006
en náði ekki þeim árangri sem ég
hafði vænst og í framhaldi af því
gerðust hlutirnir nokkuð hratt. Þótt
höfuðborgin skipti mig miklu þá hef
ég þessa landsbyggðartenginu og
svo fór eftir þessar kosningar að
ég endaði sem bæjarstjóri vestur í
Bolungarvík. Þetta lýsir því hversu
heimurinn getur verið óútreiknan-
legur.”
Skakkt að strákur að
sunnan væri bæjarstjóri
Grímur kveðst hafa haft nokkur
kynni af Bolungarvík og þau
auðveldað sér að taka ákvörðun
um að flytjast vestur. “Ég kynntist
Bolungarvík fyrst í gegnum mennin-
gu og listir. Ég hafði farið vestur og
haldið tónleika með Emiliönu Tor-
rini í félagsheimilinu í Bolungarvík.
Ég hafði einnig kynntist Soffíu
Vagnsdóttur, sem var tónlistarken-
nari og skólastjóri auk þess að sitja
í bæjarstjórn. Þetta gerðist með
þeim hætti að skömmu eftir kos-
ningarnar 2006 sá ég auglýst eftir
bæjarstjóra í Bolungarvík. Ég man
að við hjónin sátum að kvöldi til
og voru að ræða þessa auglýsin-
gu. Við höfðum þá farið vestur
þrjú ár í röð og leist vel á þetta
svæði. Það var eitthvað heillandi
við þessa byggð og aðra staði fyrir
Gamli Vesturbærinn er bara Ísland
Grímur Atlason.
VETUR