Austurland - 19.09.2013, Síða 2

Austurland - 19.09.2013, Síða 2
2 19. september 2013 Tjarnarbraut 19, 700 Egilsstaðir, sími 471-1616. Opnunartími mán-,miðviku- og föstudaga 9-17, þriðju- og fimmtudaga 9-19. Árangursrík meðferð fyrir alla. 20% afsláttur af Academie sýrumeðferð. Upplýsingar í síma 471-1616. Verið velkomin. Frábær meðferð sem jafnar áferð og fullkomnar hreinsun húðarinnar, þéttir húðholur, kemur jafnvægi á fituframleiðslu, viðheldur mýkt húðar, veitir rakajafnvægi, sléttir úr fínum línum, örvar frumuendurnýjun og dregur úr litablettum í húð. Í þessu tölublaði Austurlands er aðallega fjallað um íþróttalíf á Austurlandi. Þegar ég fór að kanna málið kom það mér á óvart hversu mikið væri í boði á öllu Austurlandi. Góða og jafnvel fullkomna aðstöðu til íþróttaiðkunar, bæði innandyra og utan, var að finna í flestum sveitarfélögum fjórðungsins. Auk þess kom í ljós að ungmenna- og íþróttafélögin sem halda utan um starfsemina á flestum stöðunum voru stofnuð á fyrri hluta síðustu aldar og eitt þeirra hélt upp á aldarafmæli sitt á þessu ári og annað upp á níræðisafmælið. Bæði þessi félög, Huginn á Seyðisfirði og Þróttur í Neskaupstað, eru meira að segja enn í fullu fjöri þrátt fyrir háan aldur. Íþróttafélög og íþróttaaðstaða er þó einskis virði ef enginn hefur áhuga á að nýta sér það sem í boði er en ég tel að ljóst sé að íþróttalíf á Austurlandi sýni svo ekki verði um villst að Austfirðingar hafi bæði áhuga á og vilja til að taka þátt í því. Ég stundaði ekki íþróttir þegar ég var ung. Ég veit ekki hvort eitthvað slíkt var í boði á Vesturlandi þar sem ég bjó til tíu ára aldurs en tel það þó líklegt miðað við aldur félaganna hér fyrir austan. Íþróttir höfðuðu engan veginn til mín og mín vegna hefði alveg mátt sleppa íþróttatímunum í skólanum. Á fullorðinsárum hefur þó stundum hvarflað að mér að taka þátt í einhverjum íþróttum, t.d. einhverri boltaíþrótt, en til þess hefur mig skort kjark. Mér finnst alltof mikil keppni í öllum íþróttum og ég held að ég gæti ekki þolað það að vera atyrt fyrir að klúðra einhverju tækifæri fyrir liðið. Mér finnst að íþróttir eigi að vera leikur þar sem maður skemmtir sér og eflir líkamann en það er eitthvað sem mun koma okkur til góða á efri árum. Það er ekki eðlilegt að drengir á fyrstu árum grunnskóla komi grenjandi inn úr frímínútum af því að einhver þeirra skaut framhjá og þeir töpuðu leiknum. Ég reyni að telja börnunum mínum trú um að íþróttir séu leikur en ekki keppni en það er eins og það fari inn um annað eyrað og út um hitt. Ef til vill mun ég fullnægja þörf minni fyrir íþróttir í einhverri íþrótt þar sem maður keppir eingöngu við sjálfan sig. Reyni að verða betri útgáfa af sjálfri mér og verð þá vonandi jafn langlíf og íþróttafélögin sem ég nefndi hér að ofan. En langlífi er ekki eins mikils virði án góðrar heilsu. Því er nauðsynlegt að við styrkjum líkama okkar áður en það er orðið of seint og stuðlum um leið að betri andlegri heilsu. Tækifærin eru í það minnsta til staðar hér á Austurlandi. Halldóra Tómasdóttir ritstjóri Leiðari Heilbrigð sál í hraustum líkama AUSTURlAnd 13. TBl. 2. ÁRGAnGUR 2013 Útgefandi: fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi@fotspor.is. auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík. auglýsingasími: 578 1190, netfang: auglysingar@fotspor.is. Ritstjóri: Halldóra tómasdóttir, sími 471-3119 & 852-1911, netfang: ht@me.is Prentun: Ísafoldarprentsmiðja, 4.400 eintök. dreifing: Íslandspóst- ur. - Blaðið er aðgengilegt á Pdf sniði á vefnum www.fotspor.is. Fríblaðinu er dreiFt í 4.400 eintökum Á öll Heimili Á auSturlandi OG HOrnaFirði auk dreiFbÝliS. blaðið liGGur einniG Frammi Á HelStu þét tbÝliSStöðum Á auSturlandi. Gildi hamingjunnar Egilsstaðaskóli er þátttakandi í alþjóðlegu samstarfs- verkefni sem styrkt er af Evrópusambandinu. Verkefnið heitir ABC of well being – action, balance and caring. Verkefnið er í anda heilsueflandi skóla og eru skólar frá fimm löndum aðilar að verkefninu. Það eru skólar í Nor- egi, Finnlandi, Þýskalandi, Slóveníu og Grikklandi. Verk- efnið er tveggja ára verkefni og er þetta síðara starfsárið. Meðal þess sem unnið hefur verið með í verkefninu er leikjabox þar sem leikjum frá löndunum hefur verið safnað saman og búið til box utan um þá. Boxið er svo aðgengilegt fyrir kennara og nemendur. Einnig hefur verið búin til matreiðslubók þar sem nemendur hafa safnað saman réttum, bæði léttum réttum og þjóðlegum. Í síðustu viku voru þemadagar í Egilsstaðaskóla sem tengdust verkefninu og var þemað hamingjan eða happiness. Á þemadögunum var unnið með spurninguna ,, Hvað gerir mig hamingjusama/n”. Eins og sést af mynd- unum tóku nemendur fúslega þátt. a Sandra María fraM­ kvæMdaStjóri Uía Sandra María Ásgeirsdóttir hefur tekið við störfum sem starfandi framkvæmdastjóri UÍA. Hún mun gegna stöðunni fram þar til Hildur Bergsdóttir snýr aftur úr barneignarleyfi. Sandra María tekur við stöðunni af Gunnari Gunnars- syni sem hverfur til annarra starfa. Hann mun þó áfram gegna stöðu formanns UÍA. Sandra María er fædd árið 1989 og lauk B.Sc. prófi í ferðamálafræði frá Háskóla Íslands í vor. Hún er stúdent frá Menntaskólanum á Egilsstöðum og er með diplómu í einkaþjálfun frá lýðháskólanum í Söndeborg. Sandra María kom til starfa hjá UÍA í maí og starfaði í sumar sem farandþjálfari sambandsins ásamt því að sinna öðrum verkum.

x

Austurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/1094

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.