Austurland - 19.09.2013, Síða 4

Austurland - 19.09.2013, Síða 4
4 19. september 2013 Ókeypis tann- læknaþjónusta fyrir börn inn- leidd í áföngum Sjúkratryggingar Íslands og Tann- læknafélags Íslands hafa gert með sér samning er varða greiðsluþátt- töku SÍ í tannlæknaþjónustu fyrir börn. Frá 1. september 2013 síðast- liðinn áttu öll 3 ára og 12-17 ára börn rétt á ókeypis tannlæknaþjónustu. Börnin þurfa þó að greiða 2500 kr. árlegt komugjald. Samningurinn verður innleiddur í áföngum og árið 2018 mun hann ná til allra barna yngri en 18 ára. Sérstök athygli er vakin á því að börn sem falla ekki undir aldursmörk samningsins en eru í bráðavanda og búa við erfiðar félags- legar aðstæður geta engu að síður sótt um fulla greiðsluþátttöku. Svo þessi börn öðlist greiðsluþátttöku þarf tilvísun að berast tannlækni frá heilsugæslu, barnavernd eða fé- lagsþjónustu. Nauðsynlegt er að barnið sé skráð hjá heimilistannlækni sem er með samning við SÍ um barnatannlækn- ingar. Þeir tannlæknar á Austurlandi sem eru með slíkan samning eru: » Berg Valdimar Sigurjónsson, Egilsstöðum » Edda Hrönn Sveinsdóttir, Egilsstöðum » Helgi Sigurðsson, Egilsstöðum » Jón Hafliði Sigurjónsson, Reyðarfirði » Guðni Óskarsson, Eskifirði » Pálmi Þór Stefánsson, Neskaupstað Nánari upplýsingar um þjónustuna má fá á heimasíðu Sjúkratrygginga Íslands http://www.sjukra.is Óveður setur strik í reikninginn Óveðrið sem gekk yfir landið í byrjun vikunn- ar setti víða strik í reikninginn. Á Jökuldal óttuðust bændur að missa fé í fönn og í Ör- æfum brotnuðu rúður í bílum og ferðamenn þurftu áfallahjálp. Víða þurfti að loka fjall- vegum til að koma í veg fyrir að fólk legði út í óvissu. Samkvæmt Austurfrétt var allt gistirými á Djúpavogi uppurið því fólk komst hvorki lönd né strönd. Ófært var á þjóðvegi eitt yfir Öxi og Breið- dalsheiði var þungfær. Hellisheiði eystri varð ófær og á Vatnsskarði var snjóþekja. Borgfirðingar gleðjast þó yfir því að nú hefur Vegagerðin ákveðið að fjölga mokstursdög- um úr fjórum í sex og verður Vatnsskarði því haldið opnu alla daga vikunnar nema laugardaga. Á Fjarðarheiði var ýmist þung- fært eða hálka. Hvort heldur sem er hlýtur hvít Fjarðarheiðin að hræða ferðamenn sem koma með Norrænu en vetraráætlun ferj- unnar hefur tekið gildi og kemur ferjan til Seyðisfjarðar á þriðjudögum (nema veður eða annað hamli) og fer aftur utan á mið- vikudögum. Þungfært var til Mjóafjarðar og má segja að vetur hafi snemma áhrif hjá Mjófirðingum í ár. Hálkublettir voru á Fagra- dal og Oddsskarði en þeir höfðu lítil áhrif á umferðina enda þurfa margir að komast til vinnu í álverinu og geta þá notað rúturnar ef færðin reynist heimilis bílnum ofviða. Á Suðausturlandi voru vegir grænir á korti Vegagerðarinnar en þar leiddi sand- og grjótfok til vandræða og eyðileggingar. Um eitt hundrað bílaleigubílar urðu fyrir skemmdum og er líklegt að leigutakar þurfi sjálfir að bera kostnaðinn. Það er víst við hæfi að náttúran láti að sér kveða á Degi náttúrunnar og minni á að hversu tæknivæddir sem mennirnir verða verði þeir alltaf upp á náttúruna komnir. a SviSSneSkir ferðamenn keðja fjallatrukkinn sinn áður en þeir leggja í Fjarðarheiðina. Lifandi miðbær eða ekki – þarna er efinn Heyrst hefur að flytja eigi Upplýs- ingamiðstöð Austurlands úr Níunni, á horni Hringvegarins og Fagra- dalsbrautar. Það væri stórkostlegur missir því Upplýsingamiðstöðin er frábærlega staðsett þar sem hún er og hún ásamt Húsi handanna stuðla svo sannarlega að lifandi miðbæ á Egilsstöðum. Hvað eiga Akureyri, Ísafjörður og Garðabær sameiginlegt? Það er ef- laust margt en svarið sem ég vil fá er MIÐBÆR. Akureyri og Ísafjörður eru gamlir menningarstaðir með gróinn miðbæjarkjarna þar sem ýmsa versl- un og þjónustu er að finna. Garðabær var lengi vel dæmigerður svefnbær þar sem fólk bjó og svaf en sótti allt annað yfir í nágrannasveitarfélög- in. Af einhverjum ástæðum sem ég þekki ekki fór að myndast miðbær í Garðabæ. Verslanir og alls konar þjónusta, svo sem læknaþjónusta, sálfræðingar, efnalaug og bóka- safn, voru sett á sama stað. Bæjar- skrifstofurnar voru einnig færðar á svæðið og til að kóróna allt var byggð kirkja þarna. Líklegt þykir að í deiliskipulagi fyrir Garðabæ hafi verið ákveðið að þétta miðbæ- inn svo þar væri ákveðið flæði fólks, með öðrum orðum að skapa lifandi miðbæ. Í síðasta blaðinu sem Stefanía G. Kristinsdóttir ritstýrði gekk hún um miðbæ Egilsstaða og skoðaði hvernig unnið hefði verið að því að mynda lifandi miðbæ á Egilsstöðum. Hún gekk milli fyrirtækja og verslana á einum af góðviðrisdögunum í sumar og naut mannlífsins. Í sumar voru margir ferðamenn á Egilsstöðum. Þeir fóru langflestir í Upplýsinga- miðstöðina, hvort sem þeir voru Íslendingar eða útlendingar. Upp- lýsingarmiðstöðin er einstaklega vel staðsett á horni Hringvegarins og Fagradalsbrautar. Flest þekkjum við pirringinn sem grípur um sig þegar hringsólað er um ókunna bæi í leit að upplýsingamiðstöðinni. Slíkt á ekki að geta gerst á Egilsstöðum því það þarf einstaka lagni til að fara framhjá Upplýsingamiðstöð Aust- urlands eins og hún er staðsett í dag. Í sama húsnæði og Upplýsingamið- stöðin er Hús handanna rekið. Hús handanna er verslun sem einbeitir sér að austfirskri hönnun og hand- verki. Það sér hver heilvita maður að þetta er frábær samvinna. Upp- lýsingamiðstöð sem dregur að sér megin markhóp Húss handanna, þ.e. ferðamenn. Heyrst hefur að uppi séu hug- myndir um að færa Upplýsingamið- stöðina út að tjaldsvæðinu. Það er fráleit hugmynd því í fyrsta lagi er það miklu verri staðsetning og í öðru lagi þurfa alls ekki allir ferðamenn á tjaldsvæði að halda. Nú segja þeir sem vilja færa Upplýsingamiðstöð- ina að það sé einfaldasta mál í heimi að setja upp skilti en þau leysa alls ekki allan vanda. Mér er enn í fersku minni hringsól mitt um Hvamms- tanga í sumar og um Neskaupstað í fyrrasumar. Á báðum stöðunum var ég að reyna að fylgja skiltum í átt að tjaldsvæði staðarins. Allir sem hafa upplifað miðbæ Egilsstaða í sumar eru sammála um að Upplýsingamiðstöð Austurlands ásamt Húsi handanna og öðrum verslunum og veitingahúsum sem þarna eru í næsta nágrenni eru það næsta sem hægt er að komast lifandi bæjarmiðju. Leigusamningur á milli Íslands- banka og Austurbrúar á húsnæði Upplýsingamiðstöðvar og Húss handanna rennur út um í lok september og er húsnæðið í sölu- ferli. Allt bendir til þess að Hús handanna muni loka 1. október næstkomandi. Í kjölfarið mun Hús handanna leggja áherslu á að byggja upp vefverslun, vinna að vöruþróun og markaðssetningu á austfirskri framleiðslu en þegar eru í gildi sölu- samningar á Austfirska vörusafninu til Rammagerðarinnar. Stefnt er að því að halda úti vefverslun áfram og þróa sölu og markaðsþjónustu fyrir austfirskt listhandverk og vöruhönnun. Margir Austfirðingar telja lokun Húss handanna stórslys en verslun- in er mikið dásömuð af þeim sem hana heimsækja og hróður hennar hefur borist víða.  Hús handanna selur fyrir 70-80 aðila af Austurlandi auk þess að selja þekkta íslenska hönnunarvöru. Stjórn Húss handanna hefur frá áramótum unnið að endurskipulagn- ingu rekstrarins samhliða því að reyna að tryggja áframhaldandi samstarf við Upplýsingamiðstöð um leigu á húsnæðinu í Miðvangi 1-3 (Níunnil). Framtíðarsýn Húss handanna var að vinna að hug- myndum um að þróa öfluga sölu- og kynningarmiðstöð í samstarfi við Austurbrú, ferðaþjónustuaðila og Fljótsdalshérað sem gengið hefur undir nafninu Anddyri Austurlands í Níunni. Stofnun Húss handanna var upphaflega einn af þremur lyk- ilþáttum í Þorpinu, þróunarverk- efni sem stoðstofnanir á Austurlandi hleyptu af stokkunum eftir hrun, og í aðdraganda að stofnun Austurbrúar. Rekstur verslunar Húss handanna er svo miklu meira en venjuleg verslun og í raun er Hús handanna „einskon- ar safn“ eða safnverslun. Safnversl- un sem gerir ferðamanninum kleift, ekki einungis að fá upplýsingar um ferðaþjónustu á svæðinu heldur upp- lifa einnig sögu svæðisins í gegnum listhandverk, myndlist, austfirskar krásir og vöruhönnun af svæðinu. Verslunin endurspeglar hvað Aust- firðingar geta, kunna og gera sér til ánægju og til að skapa sér atvinnu á sviði skapandi greina. a

x

Austurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/1094

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.