Austurland - 19.09.2013, Page 6
6 19. september 2013
Brammer Ísland ehf | Steinhella 17a | 221 Hafnarfjörður | Sími: 522 6262 | www.brammer.is
Heimsþekkt vörumerki frá öllum helstu framleiðendum í iðnaðarvörum og þetta er aðeins brot af þeim merkjum sem við bjóðum upp á
Legur og drifbúnaður
Verkfæri og öryggisvörurLoft- og vökvakerfi
Almennings-
garður verður
til á Seyðisfirði
Þegar ný ferjuhöfn sem gæti tekið
við nýju skipi Smyril-Line og öðrum
stærri skipum var gerð á Seyðisfirði
fyrir nokkrum árum var það gert
með mikilli landfyllingu. Landið sem
til varð er skilgreint á aðalskipulagi
sem iðnaðarsvæði og hefur helst ver-
ið horft til hafnsækinnar starfssemi
þar. Hins vegar hefur engin eftir-
spurn verið eftir lóðum og hefur
svæðið til þessa verið óhrjálegt á að
líta og ekki prýði að því í hjarta bæj-
arins þar sem tugþúsundir erlendra
ferðamanna fara um árlega.
Klasi undir heitinu Aldamóta-
bærinn Seyðisfjörður var settur á fót
árið 2009 og var það að mati hans
eitt mikilvægasta verkefnið á sviði
umhverfis- og ferðamála í bænum
að fegra þetta svæði auk þess sem
rætt var um hvernig hægt væri að fá
þá ferðamenn sem fara um höfnina
til þess að staldra aðeins lengur við.
Markaðstorg og almenningsgarð-
ur kom þá sterklega til greina sem
nokkurskonar „lokkari” fyrir ferða-
menn. Var svæðið hannað með þetta
í huga en ljóst er að þær hugmyndir
sem þar komu fram yrðu of dýrar í
framkvæmd.
En fræi hafði verið sáð og fólk
vildi nú sjá þetta svæði verða til ein-
hvers. Fjögurra manna hópur kom
fram með þá hugmynd að þarna
skyldi vissulega búa til almennings-
garð og markaðstorg en það skyldi
gert fyrir frumkvæði og með vinnu
Seyðfirðinga sjálfra. Hópurinn fékk
síðan fleiri til liðs við sig og hinn svo-
kallaði Hafnarhópur var stofnaður
vorið 2012 en hugmyndafræðin að
baki verkefninu er eftirfarandi:
» Að svæðið sé nýtt í þágu
íbúanna – þetta sé okkar
garður
» Að íbúarnir leggi sjálfir af
mörkum það sem þeir geta, í
formi vinnuframlags, efniviðar,
þekkingar o.s.frv.
» Að kostnaður við gerð
garðsins sé í lágmarki
og hugtökin sjálfbærni,
endurnýting og samvinna
verði höfð að leiðarljósi.
Í garðinum má meðal annars
finna markaðstorg, skúlptúrgarð,
smíðavöll barna og grasagarð með
íslenskum jurtum. Í byrjun árs fékkst
veglegur styrkur frá Framkvæmda-
sjóði ferðamanna til að vinna að upp-
byggingu svæðisins og í samvinnu
við Seyðisfjarðarkaupstað hefur
mörgu verið áorkað á því rúma ári
sem liðið er síðan verkefnið hófst.
Laugardaginn 7. september síð-
astliðinn var boðað til vinnudags
í Hafnargarðinum eins og hann er
kallaður, í annað skiptið þetta árið.
Um þrjátíu manns mættu í blíðskap-
arveðri þar sem hitinn steig eftir því
sem leið á daginn og endaði í um
20 gráðum. Frábær stemning var
meðal þeirra sem mættu og fólk
var samhent og einhuga í að vinna
þau verkefni sem lágu fyrir. Teknir
voru niður smíðakofar sem krakkar
höfðu byggt í sumar, plantað yfir 100
birkiplöntum, hver yfir 2 m að hæð,
kurli dreift í göngustíga, byrjað að
smíða húsgögn úr öspum sem felldar
hafa verið í görðum á Seyðisfirði og
ýmislegt fleira. Líklegast voru lagðar
fram yfir 160 vinnustundir þennan
dag sem er mánaðarvinna fyrir einn
mann. Eins og oft áður segja myndir
meira en mörg orð!
Með kærri kveðju
Aðalheiður Borgþórsdóttir,
ferða- og menningarfulltrúi
Eiðaskóli 130 ára
Eiðavinir ætla að minnast þess með
mikilli tónlistarveislu á Eiðum nú
um helgina að 130 ár eru liðin frá því
að Eiðaskóli var stofnaður. Skólinn
var m.a. þekktur fyrir mikið tónlist-
arlíf og fjölbreytt tónlistardagskrá
verður alla helgina og ríður Bjartmar
Guðlaugsson, íbúi á Eiðum, á vaðið
á föstudagskvöldið á pöbbakvöldi
í matsalnum og sér um tónlistina
fram á nótt með dyggri aðstoð fyrr-
um Eiðanema. Fleiri íbúar á Eiðum
og nágrenni taka virkan þátt í tón-
listardagskránni þessa helgi.
Aðaltónleikadagurinn er á laugar-
daginn en hátíðin verður formlega
sett klukkan 12:00 á planinu fyrir
utan matsalinn á Eiðum. Fljótlega
upp úr því hefst mikil tónlistarveisla
sem stendur langt fram á kvöld með
smá hléum.
Á sunnudagsmorgun klukkan 10
verður farið í sögugöngu um Eiða-
stað með Helga Hallgrímssyni en
klukkan 11.30 hefst hátíðardagskrá í
salnum. Klukkur Eiðakirkju hringja
til poppmessu klukkan 13 þar sem
hinir landsþekktu Eiðanemar Esther
Jökuls, Jónas Sig. og Magni koma
fram. Hægt verður hægt að kaupa
sig sérstaklega inn á þessa sunnu-
dagstónleika. a
frá vinnudeginum 7.9.13