Austurland - 19.09.2013, Page 10

Austurland - 19.09.2013, Page 10
10 19. september 2013 Íþrótt þar sem börn og fullorðnir sameinast Í tilefni af því að blaðið Austurland fjallar nokkuð um íþróttalíf á Austurlandi var ákveðið að taka Díönu Mjöll Sveinsdóttur tali en hún hefur verið áberandi í íþróttalífi í fjórðungnum og meðal annars skipulagt Götuþríþraut á Eskifirði. Þú hefur skipulagt Götuþríþraut á Eskifirði um sjómannadagshelgina undanfarin ár. Hvenær hófst þetta og hvers vegna var ákveðið að stofna til þríþrautar hér á Austurlandi? Aðdragandi þríþrautarinnar er sá að eftir að ég eignaðist börn fannst mér alltaf vanta að börn og fullorðn- ir gætu tekið þátt í keppni saman og átt góðar samverustundir við að undirbúa sig og æfa fyrir þá keppni. Ég æfði sund þegar ég var yngri og var búin að hugsa um að reyna að starta einhverju í þeirri grein. Það atvikaðist svo þannig að ég fór með nokkrum félögum mínum og tók þátt í þríþraut í London árin 2007 og 2008 og í framhaldi af því sá ég að þetta gæti verið það sem ég væri að leita að. Þríþraut gengur út á sund, hjól og hlaup en það eru íþróttir sem henta fjölskyldum mjög vel og ekki er mikill kostnaður við æfingar eða kaup á græjum. Ég viðraði þessa hugmynd óspart við fólk í kringum mig og árið 2010 réðumst við í þetta ég og vinkona mín Jóhanna Kristín Malmquist ásamt fleiru flottu fólki í kringum okkur. Það þarf nefnilega töluvert af fólki til að halda utan um svona keppni og eiga allir sem hafa komið að þessu, í algjörri sjálfboðavinnu í gegnum tíðina, ofsalega miklar þakkir skildar fyrir það. Við völdum sjómannadagshelgina af því að þá er margt annað um að vera á Eskifirði og kannski gætu keppendur sem kæmu að, því þetta var hugsað stórt, notið þeirra við- burða líka, eins og að fara í siglingu á togara, fylgjast með kappróðri og enda jafnvel á dansleik. Hefur þátttakan verið góð? Telurðu að Götuþríþrautin sé kom- in til að vera? Þátttakan hefur verið algjörlega frábær og hefur okkar helsta áskor- un verið að halda utan um tímatök- una, því sumir eru í þessu af meiri alvöru en aðrir og þá er gaman að geta gefið upp millitíma, þ.e. hve lengi verið er að synda, hjóla og hlaupa og skipta á milli greina. Það hefur gengið ótrúlega vel hjá okkur og hafa keppendur sýnt okkur mik- inn skilning þegar við höfum verið í því púsluspili. Gaman er að leyfa nöfnum og tímum methafanna okkar að fylgja svo þeir sem vilja slá þau út, viti að hverju þeir eigi að stefna: Stúlkur 7-13 ára, Svanhildur Sól Sigurbjarnardóttir, 01:16:12, met 2012 Drengir 7-13 ára, Mikael Máni Freysson, 00:54:56, met 2011 Lið barna 7-13 ára, Erla, Hrafn- kell, Elís, 00:49:51, met 2012 Konur 14-25 ára, Silja Hrönn Sigurðardóttir, 01:51:09, met 2012 Karlar 14-25 ára, Mikael Máni Freysson, 01:46:10, met 2013 Konur 25 ára+, Lillý Viðarsdóttir, 01:28:36, met 2012 Karlar 25 ára+, Stefán Viðar Sig- tryggsson, 01:11:37, met 2011 Lið fullorðinna 14 ára+, Hilmar, Sigurður, Jón – SóknINNI, 01:22:26, met 2012 Keppendurnir hafa þessi 4 ár verið alveg stórkostlegir og hafa þeir verið á öllum aldri, komið alls staðar að af Austurlandi og lengra að. Við höfum verið með fólk sem hefur tekið þátt í Járnkarli en það er mesta áskorunin í þríþraut þar sem syntir eru 3,8 km., hjólaðir eru 180 km. og hlaupið er heilt mara- þon og við höfum verið með 6 ára keppanda og upp í 67 ára og allt þar á milli. Við höfum alltaf aukið við okkur keppendafjölda á milli ára og markmiðið er að halda því áfram. Í fyrra voru keppendurnir 63. Það er því áskorun að fjölga þeim á næsta ári, en þá höldum við uppá 5 ára afmæli þríþrautarinnar og ætlum að fagna því með því að bæta við einni vegalengd sem ég veit að margir hafa beðið eftir. Undanfarin ár höfum við verið með 2 vegalengdir, annars vegar Super Sprint, sem er barna- flokkur og samanstendur af 400 m sundi, 10 km hjólreiðum og 2,5 km hlaupi og hins vegar Sprint sem er fullorðinsflokkur og samanstendur af 750 m sundi, 20 km hjólreiðum og 5 km hlaupi. Í liðakeppni barna má vera einn fullorðinn í liðinu en það er helst sundið sem hefur vafist fyrir þeim allra yngstu. Í liðakeppni fullorðinna mega 2-3 taka þátt. Á næsta ári bætum við svo ólympískri vegalengd við, en þar er sundið 1500 m., hjólið 40 km. og hlaupið 10 km. Það verður spennandi að takast á við það og hvetjum við fólk til að fara strax að æfa. Draumurinn er svo að í framtíðinni verði þessi vegalengd synt í sjónum. Þeir sem taka þátt í liðakeppni eru ekki bara fjölskyldur, einnig vinahópar og vinnuhópar og það er svo dásamlegt að sjá fólk undirbúa sig saman fyrir keppnina og heyra sögurnar um hvernig hafi gengið og hvernig fólk hafi hvatt hvert ann- að áfram. Á þessu ári fengum við í fyrsta sinn lið fermingarárganga sem voru komnir á Eskifjörð til að fagna afmælum. Mér finnst samt alltaf skemmtilegast að sjá yngstu krakkana taka þátt. Þau eru svo ótrúlega dugleg og þeim finnst þetta svo gaman. Ég veit ekki til þess að það sé nein önnur svona keppni á landinu þar sem börn og fullorðnir keppa á sama tíma og varð einum keppanda á orði í ár að það væri stórkostlegt að fá að taka þátt við hliðina á börnunum og vera þeim fyrirmynd inn í framtíðina. Við höfum verið ótrúlega heppin með styrktaraðila þessi fjögur ár sem við höfum verið með keppnina en það er auðvitað alltaf kostnaður sem fellur til við auglýsingar, kaup á verðlaunagripum og öðru og kunn- um við þeim öllum miklar þakkir fyrir. Þátttökugjald keppenda hef- ur undanfarin ár runnið til styrkt- ar unglingastarfi á Austurlandi, Kuldabola á Reyðarfirði annars vegar og landsmóts unglingadeilda björgunarsveitanna sem haldið var á Norðfirði hins vegar. Þannig ætlum við að halda því í framtíðinni. Þeir sem vilja fylgjast með því sem við erum að gera geta bæði farið inn á heimasíðuna okkar www.gotu3. com og einnig fylgt okkur á facebook, undir Götuþríþraut. Þú ert einnig viðloðandi aðra íþróttastarfsemi. Segðu aðeins frá því: Ég hef verið viðloðandi ket- ilbjölluþjálfun sem er ótrúlega skemmtileg líkamsrækt. Við feng- um frábæran kennara austur fyrir nokkrum árum síðan þar sem við lærðum til leiðbeinanda og síðan þá höfum við verið með námskeið á Eskifirði. Þetta eru frábærir tím- ar þar sem við leggjum mikið upp úr því að hafa gaman og styrkjast í leiðinni. Það er gaman að segja frá því að þar sem við erum konur sem þjálfum þá hafa nánast eingöngu konur sótt tímana og auglýsum við hér með eftir karlmönnum sem þora að láta sjá sig í kvennaveldinu. Við höfum verið með tímana bæði inni og úti og farið í sjósund í leiðinni en það er ótrúlega magnað. Núna erum við með tíma þrisvar í viku í íþróttahúsinu á Eskifirði. Íþróttastarf er þó ekki þitt aðal- starf eða hvað. Við hvað fæstu dags daglega? Nei, mitt aðalstarf er hjá Tanna Travel þar sem ég starfa sem mark- aðsstjóri. Tanni Travel er ferða- skrifstofa á Eskifirði og rekur eig- in hópbifreiðar. Við bjóðum upp á heildarlausnir fyrir hópa. Við skipuleggjum ferðir um allt Ísland en sérhæfum okkur í Austurlandi og leggjum metnað okkar í að koma til móts við óskir viðskiptavinarins með persónulegri ráðgjöf og þjón- ustu. Við leggjum okkur fram við að sinna svæðinu okkar eins vel og við getum sem og að fá ferðamenn til að koma og heimsækja okkur. Það sem við erum að vinna að núna er verkefnið „Meet the Locals“ eða „Hittu heimamanninn“, sem miðar að því að ferðamenn komi til Austurlands sem gestir en fari sem vinir. Það er mjög skemmtilegt og gaman að takast á við það og ef það eru áhugasamir ferðaþjónustuaðilar sem hafa áhuga á að taka þátt í því verkefni þá er um að gera að hafa samband við okkur. Tanni Travel fagnar 20 ára starfs- afmæli í ár og erum við afskaplega þakklát fyrir þau viðskipti sem Aust- firðingar og aðrir hafa átt við okkur í gegnum árin og vonum að saman getum við skapað áframhaldandi samstarf í ferðalögum og verðmæta- sköpun fyrir fjórðunginn a tekið á Í útitíma hjá Díönu Mjöll feðgar taka Sprettinn í þríþrautinni

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/1094

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.