Austurland - 19.09.2013, Qupperneq 14
14 19. september 2013
Fimleikastarf Hattar
Vegna umfjöllunar Austurlands
um íþróttastarf á Austurlandi var
ákveðið að leggja nokkrar spurn-
ingar fyrir Auði Völu Gunnarsdóttur
um fimleikastarf Hattar.
Hvernig kom það til að farið var
að byggja upp fimleikadeild hér fyrir
austan?
Fimleikadeild Hattar var stofnuð
formlega sem deild innan Hattar árið
1986 en var búin að vera starfandi í tvö
ár áður. Stofnendur deildarinnar voru
Hólmfríður Jóhannsdóttir og Unnar
Vilhjálmsson og voru þau einnig fyrstu
þjálfara deildarinnar. Síðan hefur fim-
leikadeildin starfað samfleytt í 29 ár.
Hvað stunda mörg börn fimleika
í vetur og eru það færri eða fleiri en
undanfarin ár?
Í fimleikadeildinni eru u.þ.b 215
börn sem æfa frá 2 ára aldri upp í 19
ára aldur. Í hópi sex ára og eldri erum
við með um 140 iðkendur. Við höfum
verið með svipaðan fjölda undan-
farin ár, í ár hefur verið fækkun hjá
okkur og meðal annars vegna þess að
við lögðum niður áhugamannahóp
þar sem við höfum ekki pláss til að
taka við öllum þessum fjölda.
Hvaðan af Austurlandi koma
börnin sem stunda fimleika hjá
Hetti?
Það er mjög skemmtilegt og að-
dáunarvert hvað margir foreldrar
leggja á sig til að koma börnunum
sínum á æfingar. Við höfum iðkendur
frá Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði, Djúpa-
vogi og Seyðisfirði.
Eru fleiri fimleikadeildir hér fyrir
austan?
Fimleikar eru á Höfn og síðasta
vetur voru fimleikar á Fáskrúðsfirði
og vonandi eigum við eftir að sjá fim-
leika á fleiri stöðum á Austurlandi.
Er eitthvað á döfinni að fara að
bjóða upp á parkour og fimleika fyrir
fullorðna?
Eins og áður hefur komið fram
vantar fimleikana betri aðstöðu og
meiri tímafjölda til að geta boðið
upp á fleiri hliðargreinar innan fim-
leikanna. Við höfum fengið beiðn-
ir um að byrja með þessa tíma en
deildin getur það því miður ekki.
Hvernig er aðstaðan til fimleika-
iðkunar hér á Fljótsdalshéraði og
hvernig gæti hún verið betri?
Aðstaðan er ekki góð í dag og iðk-
endur og þjálfarar þurfa að leggja
mikla vinnu á sig fimm sinnum í viku
við að byggja upp íþróttasalinn með
fimleikaáhöldum og ganga frá eftir
æfingar. Foreldrar koma inn einu
sinni í viku til að aðstoða svo hægt
sé að byrja á réttum tíma. Iðkend-
ur sem eru komnir langt í greininni
æfa við erfiðar aðstæður og lítið ör-
yggi. Í dag erum við að fara suður
á æfingar með iðkendur sem þurfa.
Í vetur munum við fara með yngri
einstaklinga til Akureyrar til að
framkvæma flóknari æfingar við
öruggar aðstæður, æfingar sem við
reynum svo að keyra við okkar að-
stæður. Draumur fimleikaiðkenda er
að fá viðeigandi aðstæður til að æfa
í en það þýðir fimleikahús.
Hvað telur þú að framtíðin beri í
skauti sér fyrir fimleikana? Eru þeir
komnir til að vera hér á Austurlandi?
Ég tel að fimleikarnir séu komn-
ir til að vera. Við erum með stór-
an hóp iðkenda og þar af stúlkur
í meirihluta. Ég tel að deildin sé
löngu búin að sanna sig með því að
starfa samfellt í 29 ár.
Ef þú mættir ráða og til væru
ótakmarkaðir peningar hvernig væri
þá draumaaðstaðan?
Þá fengjum við fimleikahús við
íþróttahúsið á Egilsstöðum eins
og búið er að teikna. Fimleikarn-
ir fengju betri aðstöðu og þá tíma
sem þeir þurfa fyrir iðkendur sína.
Aðrar greinar innan íþróttafélags
Hattar myndu njóta góðs af þar sem
meira rými yrði fyrir aðrar greinar í
íþróttahúsinu okkar á Egilsstöðum.
Það er mikið íþróttalíf á Egilsstöðum
og íþróttafélagið okkar blómstrar.
Ég tel það mjög mikilvægt að bæj-
arfélagið hlúi vel að þessu mikla og
góða forvarnarstarfi sem fer fram
hjá íþróttafélaginu Hetti á Egils-
stöðum. a
tónliSt fyrir alla
Í vikunni hljómuðu tónleikar Tónlistar
fyrir alla um Austur- og Norðaustur-
land. Óveðrið setti að vísu aðeins strik
í reikninginn og seinkaði tónleikun-
um um einn dag.
Dúó Stemma og Páll og Lauf-
ey ferðuðust á milli grunnskóla og
léku fyrir nemendur. Tónlist fyrir
alla leitast við að bjóða upp á vand-
aða skólatónleika fyrir börn þar sem
skemmtun og menntun haldast í
hendur. Boðið er upp á fjölbreytta
tónlist í hæsta gæðaflokki í flutningi
atvinnutónlistarfólks. Upplifun barn-
anna af tónleikunum er lykilatriði og
áhersla er lögð á að hún verði sem
allra best.
Samtals voru haldnir 25 tónleikar
í vikunni. Fyrstu tónleikarnir voru
á Egilsstöðum og í Fellabæ. Dúó
Stemma með þeim Herdísi Önnu
Jónsdóttur víóluleikara og Steef
van Oosterhout slagverksleikara ók
norður fyrir og endaði ferð sína á
Akureyri en Laufey Sigurðardóttir
fiðluleikari og Páll Eyjólfsson gítar-
leikari keyrðu firðina einn af öðrum
og enduðu á Hofgörðum í Öræfa-
sveit.
Það er vonandi að hver einasti
austfirski nemandi hafi notið tón-
listarinnar.
Þetta vilja
börnin sjá!
Fyrsta sýning haustsins í Menn-
ingarmiðstöðinni Sláturhúsinu er
farandmyndlistarsýningin „Þetta
vilja börnin sjá!“ en þar gefur að
líta myndskreytingar í íslenskum
barna og unglingabókum sem gefn-
ar voru út árið 2012. Sýningin var
opnuð fimmtudaginn 29. ágúst síð-
astliðinn og verður opin á opnunar-
tíma Sláturhússins til 26. september
en auðsótt er að fá séropnanir fyrir
hópa.
„Þetta vilja börnin sjá! er sýning
á myndskreytingum úr nýútkomn-
um íslenskum barnabókum og hef-
ur slík sýning verið haldin árlega í
Gerðubergi frá árinu 2002. Markmið
sýningarinnar er að beina athyglinni
að gildi myndskreytinga í barnabók-
um. Þátttakendur keppa jafnframt
um íslensku myndskreytiverðlaun-
in sem kennd eru við Dimmalimm.
Verðlaununum er ætlað að hvetja
bæði útgefendur og höfunda texta
og mynda til frekari dáða. Dóm-
nefnd velur eina bók og voru úrslitin
kunngerð í Gerðubergi við opnun
sýningarinnar, 27. janúar. Sýningin
er farandsýning og hefur hún verið
sett upp víða um land síðustu ár. Þar
á meðal í Sláturhúsinu.
Þátttakendur í sýningunni í ár
eru: Aðalheiður Vigfúsdóttir, Agung
Wulandana, Áslaug Jónsdóttir, Berg-
rún Íris Sævarsdóttir, Birgitta Sif
Jónsdóttir, Erla María Árnadóttir,
Freydís Kristjánsdóttir, Guðbjörg
Hlíf Pálsdóttir, Guðrún Kristín
Magnúsdóttir, Gunnar Júlíusson,
Heiða Björk Norðfjörð, Hólmsteinn
Össur Kristjánsson, Hugrún Hrönn
Kristjánsdóttir, Íris Auður Jónsdótt-
ir, Jean Posocco, Karl Jóhann Jóns-
son, Kerry Reidy, Leonardo Ariza,
Nunung Nurjannah, Ólafur Gunn-
ar Guðlaugsson, Rosaria Battiloro,
Salbjörg Rita Jónsdóttir, Sigrún Eld-
járn, Smári Rúnar Róbertsson, Unn-
ur Valdís Kristjánsdóttir,Vladimiro
Rikowski, Þórarinn Már Baldursson,
Þórarinn Leifsson.“
Frá og með 1. sept verður opið í
Menningarmiðstöðinni Sláturhúsinu
sem hér segir:
Mánudaga - fimmtudaga kl.:
18.00 -22.00 og laugardaga kl.:
13.00-17.00
Myndin sem fylgir fréttinni er
úr bókinni sem hlaut Dimmalimm
verðlaunin fyrir árið 2012 þar sem
Birgitta Sif Jónsdóttir myndskreytti
bókina Ólíver. a
Höttur á fimleikamóti á Selfossi í maí sl.
Steinsmiðja Akureyrar • Glerárgötu 36 • S: 466 2800 • sala@minnismerki.is • www.minnismerki.is
Opnunartímar: Mán. - fim. kl. 13:00-18:00, föst. kl. 13:00-17:00
ÓKEYPIS FLUTNINGUR!
Fráb
ært úrv
al Gott verð Gæði 25 ára reynsla
Skoðið úrvalið á
www.minnismerki.is