Ský - 01.02.2008, Page 48

Ský - 01.02.2008, Page 48
4 ský | 1. tbl. 2008 Í tvo mánuði í vetur stóð yfir ljósmynda- og gjörningasýningin ,,För hersins“ í Þjóðarbókhlöðunni. Þar voru meðal annars til sýnis ljósmyndir sem Sólveig Dagmar Þórisdóttir tók á varnarsvæðinu og öryggissvæðinu á Miðnesheiði - svo sem af flugskýlum fyrir F-15 orrustuþotur, sprengjugeymslum og stærsta flugskýli landsins. Þá voru fjórir strigar í sýningarrýminu þar sem gestir og gangandi gátu skrifað hugleiðingar sínar um veru og för hersins. Á meðal setninga sem voru á strigunum þegar blaðamaður staldraði við í Þjóðarbókhlöðunni var: ,,Langafi minn var hermaður.“ ,,Erlendsson. Hermannsson.“ ,,Bye, bye Yankees. The Russians are coming.“ ,,NATO er hrunið og svo má einnig fullyrða um EES og ESB.“ ,,Við erum frjáls.“ Eldfimt efni Fyrir utan að hafa starfað lengi sem myndlistarmaður og grafískur hönnuður hefur Sólveig Dagmar starfað sem fararstjóri í rúman áratug og þá aðallega innanlands. Hún var einmitt fararstjóri á Ítalíu þegar hún skoðaði ,,hús Júlíu“ - Júlíu hans Rómeós - í Veróna. Þar er almenningslistaverk þar sem fólk getur tjáð sig með skrifum sínum um þann sem það elskar. Þá fékk Sólveig Dagmar þá hugmynd að gera tilraun til að gera almenningslistaverk heima á Íslandi en biðja þar um tjáningu um veru og för hersins. Þessa hugmynd notaði hún í tengslum við lokaverkefni sitt í MA-námi í hagnýtri menningarmiðlun við hugvísindadeild Háskóla Íslands. Sýningin ,,För hersins“ var liður í lokaverkefni Sólveigar Dagmarar Þórisdóttur myndlistarkonu, í MA-námi hennar í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands. Á sýningunni gafst fólki kostur á að tjá sig um veru og för varnarliðsins og sjá og fræðast um byggingar þær sem eftir standa á Miðnesheiði. Myndlist og hönnun hefur verið rauður þráður í lífi listakonunnar sem segir að það að geta miðlað til fólks gefi sér lífsfyllingu, ánægju og gleði. Sólveig Dagmar Þórisdóttir. ,,Ég fór þá djörfu leið að fjalla um hið viðkvæma efni sem herinn er.“ Speglun þjóðfélagsins Texti: Svava Jónsdóttir Myndir: Geir Ólafsson o.fl.

x

Ský

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.