Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.02.2015, Blaðsíða 12
* Í samræmi við efnið og aðstæður var ræða[Sigurðar Arnar Ágústssonar] sniðin að fólkimeð lága meðalgreind. A.m.k. skildi ég hana vel.
Össur Skarphéðinsson, alþingismaður
Landið og miðin
SKAPTI HALLGRÍMSSON
skapti@mbl.is
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.2. 2015
UM ALLT LAND
HAFNARFJÖRÐUR
Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði eru áhugasöm um að
hótel verði reist í miðbænum. Skv. tilkynningu frá
bænum má gera ráð fyrir að gistinætur á nýju hóteli
þ g gj p g jverði 65 úsund á ári o að út öld viðski tavina nálæ t 2 mill örðum. Þar af
fari um 1,2 milljarðar í gegnum gististaðinn en um 300 milljónir í útgjöld annars
staðar í Hafnarfirði og 500 milljónir víðar á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni.
„Kannanir sýna að 15% erlendra ferðamanna sem komu til Íslands sumarið
2014 höfðu einhverja viðdvöl í Hafnarfirði. Þar af gistu rúmlega 3%, í að jafnaði
m áttuum 12% komu í dagsferð. Það3,1 nótt, en þýðir að aðeins 20% þeirra se
viðdvöl í bænum gistu þar og þarna er klárlega sóknarfæri,“ segir aldur L.Har
Haraldsson bæjarstjóri Hafnarfjarðar.
GRUNDARFJÖRÐUR
Íbúum Grundarfjarðar hefur fjölgað um liðlega 3% frá
upphafi ársins 2014. Þeir v sember
2013, en í upphafi árs 201
900. Sá skemmtilegi siður í upphafi
hvers bæjarstjórnarfundar m nýfæddum
firðingi er fagnað
ófataki. Sigurborg
Hannesdóttir, sem
settist í bæjarstjórn eftir
kosningarnar 2010 lagði
það til og þetta hefur
SAUÐÁRKRÓKUR
Dýpkun Sauðárkrókshafnar er að ljúka en alls hefur um 20.000 rúmmetrum verið
d l ú höf i i ð þ í i á f S i fél i Sk fj ð Dý ið ive tar
ar hluta efnisins dælt í lan
EGILSSTAÐIR
Ritsmiðja Austurlands var stofnu
Austfirðingum til að koma út
frá. Sigríður Lára
bókmenntafræ
miklum áhuga
vö r voru að skri
a
r
ega
var auglýst laust til umsók á
heimasíðu stofnunarinnar.
yfirmaður mannauðsmála
framkvæmd og eftirfylgni
Mannauðsstjóri mun sitja
heyrir beint undir forstjór
Á hugi dansks bókaútgefandaá bandarískum slökkvibílumsem fluttir voru til landsins
leiddi til þess að komið var upp
slökkviliðsminjasafni fyrir nokkrum
misserum. Safnið er í Reykjanesbæ.
Vorið 2011 tók Sigurður Lárus
Fossberg Sigurðsson, hjá Slökkviliði
höfuðborgarsvæðisins (SHS), að sér
að aðstoða Danann Søren Rislund
við að taka myndir og safna upplýs-
ingum um slökkvibíla sem komu til
Íslands frá Bandaríkjunum á ár-
unum 1940-1980.
Beiðni þar um barst frá slökkvi-
liðsstjóranum í Kaupmannahöfn til
Jóns Viðars Matthíassonar slökkvi-
liðsstjóra SHS. „Verkefnið var
kostnaðarsamt og tímafrekt en með
styrkjum frá Landssambandi
slökkviliðs- og sjúkraflutninga-
manna, SHS, Mannvirkjastofnun og
fleirum var þetta mögulegt. Verkið
gekk vel og bókin, Our Yankee Fire
Rigs, kom út í lok árs 2013. Í henni
eru 47 myndir af slökkviliðsbílum
sem notaðir hafa verið á Íslandi og
er forsíðumyndin af Mack slökkvibíl
á Akranesi,“ segir Sigurður.
Á ferðalagi um landið, við gagna-
öflun, áttaði Sigurður sig á því hve
mikið var til af bílum og öðrum
búnaði sem hafði tilheyrt slökkvilið-
um. „Hluti af búnaðinum var í
slæmu ásigkomulagi og í lélegum
geymslum sem héldu varla vatni og
vindi. Þá datt mér í hug hvort hægt
væri að setja upp sýningu eða safn
þar sem ýmsir munir yrðu varð-
veittir og saga slökkviliðsmanna í
gegnum tíðina sögð.“
Eftir að hafa skoðað nokkra staði
var húsnæði í Reykjanesbæ talið
álitlegasti kosturinn. Sumarið 2012
fékk Sigurður vin sinn, Ingvar
Georg Georgsson, slökkviliðsmann
hjá Brunavörnum Suðurnesja (BS),
til liðs við sig og saman lögðust þeir
í þá vinnu að gera safnið að veru-
leika. „Í fyrstu leist mönnum ekkert
sérstaklega vel á þetta, höfðu ekki
trú á því að tveir slökkviliðsmenn
með engan safnagrunn gætu látið
þetta verða að veruleika en við urð-
um bara enn ákveðnari við það.“
Þeir kynntu hugmyndina fyrir þá-
verandi bæjarstjóra í Reykjanesbæ,
Árna Sigfússyni, sem tók þeim vel.
Í framhaldinu skoðuðu Sigurður og
Ingvar slökkviliðssöfn í Svíþjóð,
Noregi og Danmörku. „Bókaútgef-
andinn Søren Rislund er einmitt
upphafsmaður slökkviliðs- og her-
minjasafns sem er í Oxböl í Dan-
mörku. Við heimsóttum hann og
fengum mjög góðar upplýsingar.“
Áhugamannasamtök um sögu
slökkviliða á Íslandi voru stofnuð og
samið við Byggðasafn Reykjanes-
bæjar í janúar 2013. Þá var töluverð
vinna eftir við að laga húsið. „Við
hefðum aldrei getað staðið í öllu
tveir og fengum mikla aðstoð frá
slökkviliðsmönnum og öðrum vel-
unnurum.“
Safnið var opnað 13. apríl 2013,
sama dag og haldið var upp á 100
ára afmæli Brunavarna Suðurnesja
(áður Slökkviliðs Keflavíkur).
Sigurður segir safnið hafa fengið
mjög góðar viðtökur. „Það er sér-
staklega ánægjulegt þegar „heldri“
slökkviliðsmenn koma í heimsókn og
segja reynslusögur ásamt því að
fræða menn um þann gamla búnað
sem er á safninu. Með stofnun
safnsins reynum við að sýna þeim
sem mörkuðu starfið, með þeim fá-
tæklega búnaði sem í boði var, virð-
ingu og þakklæti fyrir að hafa verið
brautryðjendur fyrir komandi kyn-
slóðir,“ segir Sigurður Lárus Foss-
berg Sigurðsson.
SUÐURNES
Strigafötur og
handdælur
SVO MIKIÐ VAR TIL AF BÚNAÐI SEM SLÖKKVILIÐ HÖFÐU
NOTAÐ Í GEGNUM TÍÐINA AÐ SIGURÐI LÁRUSI FOSSBERG
FANNST EKKI ANNAÐ HÆGT EN KOMA Á FÓT SAFNI.
Ingvar Georgsson, til vinstri, Gunnlaugur Búi Sveinsson, fyrsti heiðursfélagi safnsins, og Sigurður Lárus Fossberg.
Gunnlaugur Búi Sveinsson bjarg-
aði lífi Sigurðar, móður hans og
tveggja systkina í eldsvoða í jan-
úar 1968, þegar Sigurður var
fjögurra ára. Eldur kviknaði á
miðhæð þriggja hæða húss við
Hafnarstræti á Akureyri snemma
morguns, ekki var hægt að bjarga
konu og tveimur ungum börnum
á miðhæðinni en fjölskylda Sig-
urðar bjó á efstu hæð.
„Gulli Búi var einn á vakt, kom
því bara einn á staðinn og átta
manns fastir í húsinu. Ég efast um
að nokkur slökkviliðsmaður á Ís-
landi hafi staðið frammi fyrir ann-
ari eins áskorun. Hann reisti stig-
ann og bjargaði okkur, mömmu
og þremur börnum.“
Eftir að fjölskyldan fluttist í
grennd við slökkvistöðina kynnti
faðir Sigurðar drenginn fyrir
Gunnlaugi Búa og strax þá kvikn-
aði áhugi á starfinu. „Ég varð
strax heillaður af manninum og
hef alltaf borið óendanlega virð-
ingu fyrir honum. Ég fór að venja
komur mínar á stöðina. Fór í
sendiferðir, skúraði gólfið með
körlunum og fékk stundum að
fara með í lítil útköll, ef kveikt
hafði verið í rusli.“
Þegar Sigurður hafði aldur til
skráði hann sig í varaliðið og 25
ára, 1988, var hann lausráðinn
hjá slökkviliðinu. „Þá var ég sett-
ur á vaktina hjá Gulla Búa sem
var orðinn varðstjóri.“
Bjargaði fjölskyldu
Sigurðar úr eldsvoða