Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.02.2015, Blaðsíða 23
1.2. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
Nutrilenk er fáanlegt í flestum apótekum,
heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna
P
R
E
N
T
U
N
.
I
S
NUTRILENK - hollráð við liðkvillum. Náttúrulegt fyrir liðina
Get þakkað NUTRILENK frábæran árangur í keilu!
NUTRILENK bjargarmér frá skelfilegum verkjum
Hvað getur Nutrilenk
gert fyrir þig?
Heilbrigður liður
Við mikið álag og eftir því sem árin færast yfir
getur brjóskvefurinn rýrnað sem veldur því að
liðirnir slitna. Mjög margir finna fyrir óþægin-
dum og verkjum þegar liðfletirnir núast saman,
sérstaklega í liðamótunum í mjöðmum, hrygg
og hnjám. Þess vegna er til mikils að vinna að
styrkja liðbrjóskið á náttúrulegan hátt.
Hefur hjálpað fjölmörgum
Nutrilenk Gold inniheldur brjósk úr fiski- og
hákarlabeinum sem er öflugt byggingarefni
fyrir bein og brjósk enda ríkt af kondritíni,
mangan, kollageni og kalki. Nutrilenk hefur
hjálpað fjölmörgun sem þjást af liðverkjum.
Prófið sjálf - upplifið breytinguna!
Liður með slitnum
brjóskvef
Það er ekki á hverjum degi sem sextugur maður nær 12 fellum í röð í
keilu. „Ég vil nú bara vera hógvær og segja að þetta hafi verið hinn
fullkomni leikur,“ Segir Davíð Löve, múrari, sem setti Íslandsmet í keilu í
fyrra. „ Satt að segja var ég ekki í góðummálum fyrir þremur árum. Ég var
búinn að fara í þrjár hnéaðgerðir á nokkra ára tímabili, var mjög slæmur
og treysti mér engan veginn í aðra aðgerð. Til allrar hamingju ákvað ég að
prófa NUTRILENK Gold. Ég tók inn 6 töflur fyrstu tvær vikurnar og það
dugði mér til að verða góður. Nú tek ég 2 töflur á dag til að viðhalda
batanum. Sem múrari er ég mikið á hnjánum og starfið reynir gríðarlega
á liðina. Það má segja að það sé kraftaverki líkast að ég sé orðinn góður.
Ég hvet því kollega mína í iðninni til að prófa og trúi því að NUTRILENK
haldi mér góðum í keilunni amk næstu 20 árin,“ bætir Davíð við kíminn.
Davíð Löve 60 áramúrari og keilusnillingur
„Ég þarf að vera á andhormónalyfjum næstu árin til halda í skefjum
brjóstakrabbameini sem ég greindist með fyrir einu og hálfu ári. Þessi lyf
fóru þannig í skrokkinn á mér að ég var undirlögð af skelfilegum liðverkj-
um og upplifði mig eins og gamla konu. Ég var því ekki bjartsýn á það að
geta tekið þessi lyf næstu 5 árin. Ég ákvað að prófa NUTRILENK og tók inn
2 töflur 3x á dag og fann mun viku seinna. Í kjölfarið gat ég minnkað
skammtinn niður í 3 töflur á dag og það heldur mér góðri. Mér er mikið í
mun að segja frá þessari reynslu því ég veit ummargar konur í sambæri-
legri stöðu og þess vegna vona ég að NutriLenk geti hjálpi þeim eins og
það hefur hjálpað mér. Ég er ótrúlega þakklát!
Lára Emilsdóttir 59 ára fjármálastjóri
Á vef Leiðbeiningastöðvar heim-
ilanna eru góðar upplýsingar um
hvernig megi notfæra sér þau.
Fjölnota edik
Borðedik klýfur fitu og nær fram
gljáa og eyðir vondri lykt. Það er
hægt að búa til rúðuúða úr edik-
inu. Blandið ediki og vatni í hlut-
föllunum einn á móti tíu í blóma-
úðabrúsa og úðið á gler og spegla.
Þurrkið vel og strjúkið yfir með
gömlum krumpuðum dagblöðum.
Prentsvertan eykur gljáa.
Ennfremur er á vefnum upp-
skrift að salernishreinsi. Hellið
ediki í skálina og látið liggja yfir
nótt. Burstið vel og sturtið niður.
Edikið er hægt að nota á margt
fleira, eins og ef þvottur lætur lit
er gott að leggja hann í bleyti í
vatn með ediki, 4 msk. af ediki í 5 l
vatni. Látið liggja í um ½ klst. Skol-
ið og þvoið á venjubundinn máta.
Eins má setja dálítið af ediki í
þvottavélina í stað þvottaefnis til
að flík haldi betur lit sínum.
Ef það er vond lykt í íbúðinni er
hægt að setja borðedik í skál og
láta standa á eða nálægt ofni. Ef
vond lykt er af skurðarbrettum má
skrúbba þau upp úr ediki og skola
vel. Kaffivélar má þvo með því að
láta edik í stað vatns í vélina og
láta hana ganga. Þetta er end-
urtekið tvisvar með vatni til að
eyða edikslyktinni. Ef vond lykt er
úr ísskápnum er gott ráð að þvo
hann upp úr ediksvatni og skola
vel á eftir.
Þegar eldaður er lyktsterkur
matur eins og skata er hægt að
vinda viskustykki upp úr ediki og
leggja yfir pottlokið og vel út fyrir
brúnir þess. Gætið þess samt vel
að það snerti ekki eldavélarhell-
una.
Kattarhlandslykt hverfur ef úðað
er á blettinn ediksblönduðu vatni í
hlutföllunum einn á móti fimm.
Góð aðferð við þrif á fúgum
milli flísa er að nota blöndu af
ediki, lyftidufti eða matarsóda og
sítrónusafa. Berið á og látið standa
jafnvel í nokkra klukkutíma, skolið
vel og þurrkið.
Áhrifarík sítróna
Sítróna eyðir fitu og gefur ferska
og góða lykt. Hún er líka áhrifarík
við að þrífa kísil sem vill setjast í
kringum blöndunartæki á baði og í
eldhúsi. Einfaldast er að skera sí-
trónu í tvennt og nudda eða bera
á óhreinindin, láta bíða um stund,
skrúbba með bursta og skola vel
með köldu vatni og þurrka.
Sama er að segja um sturtuklefa,
en þeir vilja verða gráir og mattir
af kísilnum úr hitaveituvatni.
Nuddið vel með sítrónu eða þvoið
með ediksblöndu. Látið liggja á og
skolið vel á eftir. Fyrirbyggjandi ráð
er að gera sér að reglu að skola
klefann eftir notkun með köldu
vatni og helst þurrka líka.
Nýja ávaxtabletti í fötum er gott
að nudda með sítrónuhelmingi og
skola vel og þvo á eftir.
Sítróna er góð til að þrífa til
dæmis ísskáp og örbylgjuofn. Best
er að setja skál með vatni og skera
sítrónu í sneiðar út í og setja í ör-
bylgjuofninn, stilla á hæstu stillingu
í 2 mínútur. Þá hafa óhreinindin
losnað og ekki annað eftir en að
strjúka ofninn að innan með rök-
um klút og þurrka síðan.
Flísar á baði og í eldhúsi verða
skínandi hreinar ef þær eru nudd-
aðar með sundurskorinni sítrónu,
látið liggja á svolitla stund og skol-
ið vel á eftir. Edik og sítróna eru
gagnleg á áfallinn kopar. Þá er best
að úða hlutinn með ediksblönd-
uðu vatni og salti. Skera má sítr-
ónu í tvennt og hafa gróft salt við
höndina og nudda hlutinn með því.
Láta bíða um stund og pússa síðan.
Mörg fleiri góð ráð er að finna á
vefnum www.leidbeiningastod.is.
Sítrónur og edik er
gott að nota við þrif
og er hægt að nota í
ótrúlega margt.
Morgunblaðið/Þorkell
Heilsusamleg og
umhverfisvæn hreinsiefni
ÓDÝR OG GÓÐ HREINSIEFNI SEM ERU JAFNFRAMT UMHVERFISVÆN OG EITUREFNALAUS
OG ÞVÍ BETRI FYRIR HEILSUNA ER AÐ FINNA Á FLESTUM HEIMILUM.