Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.01.2015, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2015
„Í fínsmíði eins og hjá okkur þarf
allt að vera samkvæmt stífu máli.
Ekki má skeika millimetra,“ segir
Bent Larsen hjá Selósi á Selfossi.
Hjá fyrirtækinu einbeita menn sér
að smíði á til dæmis innréttingum,
fataskápum, gluggum og hurðum.
Trésmiðja fyrirtækisins er, að
sögn starfsmanna, ein sú tækni-
væddasta á landinu og að und-
anförnu hefur þar verið mikið um-
leikis.
Vottun veit á gott
Aðalverkefni fyrirtækisins eru á
höfuðborgarsvæðinu og þá hafa
aukin umsvif í ferðaþjónustunni,
svo sem bygging gistihúsa um allt
land, skilað talsverðu. Selósmenn
sinna jafnframt þjónustu við ýmsa
verktaka sem og einstaklinga við
framleiðslu á gluggum, hurðum og
innréttingum. Þeir viðskiptavinir
eru alls staðar á landinu.
Um tuttugu manns starfa hjá
Selósi. Á verkstæðisgólfinu eru
tólf karlar og þrír eru í papp-
írsvinnu og við stjórnun. Þá eru
jafnan þrír til sex starfsmenn úti á
mörkinni sem annast uppsetningu.
Framleiðsla fyrirtækisins á glugg-
um og hurðum hefur fengið góða
dóma og munar þar um svonefnda
CE-vottun. Hún gildir á Evr-
ópuvísu og veit á gott, er staðfest-
ing þess að smíðin sé öll sam-
kvæmt kúnstarinnar reglum.
Efnivið í smíði sína fá Selósmenn
meðal annars beint frá erlendum
birgjum og verksmiðjum en eiga
þó líka í talsverðum viðskiptum
við innlend fyrirtæki.
Bær trésmiðanna
„Flestir okkar starfsmenn hafa
langa reynslu úr byggingariðn-
aðinum, eru virkilega flinkir og
kunna sitt fag,“ segir Bent. „Það
eru forréttindi að hafa slíka menn
í liðinu. Hér eru nokkrir útlend-
ingar en uppistaðan í hópnum eru
hagleiksmenn úr héraðinu. Stund-
um hefur verið sagt að Selfoss sé
bær trésmiðanna og sjálfsagt er
nokkuð til í því.“
Bent Larsen nam húsasmíði á
sínum tíma. Fór síðan til Dan-
merkur, hvaðan hann er að fjórð-
ungi ættaður, og lærði bygg-
ingafræði og hefur frá liðnu hausti
stýrt daglegri framleiðslu Selóss.
Einar Gunnar Sigurðsson, þekktur
handboltamaður frá fyrri tíð, er
framkvæmdastjóri fyrirtækisins
en aðaleigandi og stjórnar-
formaður Leó Árnason.
Atvinnuástand er gott
Almennt þykir atvinnuástand á
Selfossi vera með besta móti í
dag. Snemma síðastliðið haust
mældist atvinnuleysið 2,5%, en oft
er sagt að 2% sé hinn raunveru-
legi núllpunktur þess. Á sama
tíma var atvinnuleysi á landsvísu
4,2%. Í október gerðist það svo að
fjöldi íbúa í Árborg skreið yfir
8.000. Hefur fólki sem býr eystra
fjölgað mikið síðustu misserin sem
hefur aftur kallað á margvíslegar
framkvæmdir af hálfu sveitarfé-
lagsins. Má þar nefna stækkun
sundlaugar og annars tveggja
grunnskóla í Selfossbæ. Sundlaug-
arverkefninu lýkur í vor en fram-
kvæmdir við skólabygginguna
standa lengur og munu á verktíma
skapa fjölda iðnaðarmanna vinnu.
Það aftur rímar ágætlega við sjón-
armið það sem Jón Rúnar Bjarna-
son útibússtjóri Íslandsbanka á
Selfossi reifaði hér í Morg-
unblaðinu nýlega, að væri í bæn-
um næg vinna vinna fyrir um 100
iðnaðarmenn skapaði slíkt þau
margfeldisáhrif að öll hjól í hag-
kerfi bæjarins snérust greiðlega.
Helst það og í hendur við að nú er
aftur byrjað að byggja íbúðar-
húsnæði á Selfossi, en segja má að
allt slíkt hafi legið að mestu niðri
frá hruninu haustið 2008. En nú
er sem sagt að rofa til, eins og
víða annarsstaðar.
sbs@mbl.is
Innlit í atvinnulífið Selós á Selfossi
Fagmaður Ársæll Jónsson vinnur við spónlagningu á verk-
stæði Selóss og gengur glaður til verka, eins og sjá má.
Límvinna Jóhann Árnason nam smíði eins og hann á kyn til, en
að algengt er á Selfossi að ungt fólk læri til ýmissa iðngreina.
Ekki skeikar millimetra
Glöggskyggn Í tréiðn gildir að hafa gott smiðsauga, það er út-
sjónarsemi. Zbyszek Karczewicz er hæfileikum gæddur í því.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Völundar Rúnar Gestsson og Jakob Viðar Ófeigsson á verkstæðinu.
Vélavinna Trésmíðavélar hjá Selósi eru tölvuvæddar og forritað hvernig
sníða skal hverja plötu til. Vel er fylgst með eins og Michael Jón Ryan gerir.
Litur Í sprautuklefanum fær framleiðslan sinn rétta svip og hér sést Pawel
Kowel með lakksprautuna í hendi, tilbúinn að lita smíðisgripina góðu.
Gluggamaður Bent Larsen á að baki langan feril í byggingariðnaði aust-
anfjalls og hefur stýrt daglegri starfsemi Selóss frá því nú í haust.
Skrúfað Jakob Viðar Ófeigsson
sinnir gjarnan slíkum verkefnum.