Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.01.2015, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2015 5
Raðauglýsingar 569 1100
Tilboð/útboð
Reykjavíkurborg
Innkaupadeild
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Sími 411 1042 / 411 1043
Bréfsími 411 1048
Netfang: utbod@reykjavik.is
Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg:
• Rammasamningur um tölvu- og netbúnað,
EES útboð nr. 13119
ÚTBOÐ
Nánari upplýsingar er að finna á
www.reykjavik.is/utbod
15743 - Brunatryggingum fasteigna í
eigu ríkisins.
Ríkiskaup, fyrir hönd Fjármálaráðuneytisins,
standa fyrir þessu útboði á brunatryggingum fyrir
fasteignir í eigu íslenska ríkisins ásamt eigum
Íbúðalánasjóðs. Undanskilin útboði þessu er RÚV
ohf.
Bjóðendur skulu bjóða í skyldubundið iðgjald
brunatrygginga fyrir fasteignir í eigu ríkisins sem
eru skráðar í Fasteignaskrá Þjóðskrár Íslands
(www.skra.is/Fasteigna-og-brunabotamat).
Þjóðskrá Íslands ber ábyrgð á Fasteignaskránni
sem geymir allar grunnupplýsingar um lönd, lóðir
og spildur auk mannvirkja sem á þeim standa.
Þar er hægt að finna fasteigna- og brunabótamat,
fermetrafjölda eignar og fastanúmer eignar.
Útboðið tekur til þeirra fasteigna sem ríkið á
hverju sinni og því getur umfang samnings breyst
í samræmi við breytingar sem kunna að verða á
fjölda og verðmæti fasteigna ríkisins á samnings-
tímanum. Undanskyldar eru fasteignir ríkissjóðs
sem eru í leigu, ábúð eða umsjón þriðja aðila sem
annast greiðslu brunatryggingariðgjalds sam-
kvæmt samkomulagi við ríkissjóð. Hér er aðallega
um að ræða fasteignir á jörðum og lóðum sem eru
í ábúð eða leigu, sbr. m.a. ákvæði 19. gr.
ábúðarlaga nr. 80/2004.
Nánari upplýsingar er að finna í útboðsgögnum
sem verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa
www.rikiskaup.is, eigi síðar en miðvikudaginn 21.
janúar 2015.
Tilboðin verða opnuð hjá Ríkiskaupum 3. mars
2015 kl. 10.00 að viðstöddum þeim bjóðendum
sem þess óska.
Til leigu
Faxaflóahafnir sf. auglýsa hér með til leigu:
Tvö verslunarrými í verbúðunum við Grandagarð
í Reykjavík
Grandagarður 19, 70 fermetrar, frá 1. febrúar
Grandagarður 29, 104 fermetrar, frá 15. apríl
Eitt verslunarrými í verbúðunum við Geirsgötu
í Reykjavík
Geirsgata 5A, jarðhæð, 108 fermetrar, frá 1. febrúar
Lögð verður áhersla á að starfsemin við Grandagarð og
Geirsgötu verði sem fjölbreyttust, dragi að fólk og stuðli að
fjölbreyttu mannlífi.
Það skilyrði er sett fyrir útleigu húsnæðisins að um
verslunarrekstur verði að ræða með reglubundnum
opnunartíma og að um heilsárs starfsemi verði að ræða.
Húsnæðið verður leigt í því ástandi sem það er.
Væntanlegir leigusamningar verða án tímamarka en með
gagnkvæmum sex mánaða uppsagnarfresti.
Leigugjald verður 1.100 krónur + VSK fyrir hvern fermetra á
mánuði.
Umsóknum skal skilað til hafnarstjóra Faxaflóahafna sf. eigi
síðar en 28. janúar 2015 og skal jafnframt gerð grein fyrir
fyrirhugaðri starfsemi í viðkomandi verslunarrými.
Bent er á að fyrri umsóknir um leigurými við Grandagarð og
Geirsgötu teljast úr gildi fallnar og þarf að endurnýja sé
áhugi fyrir hendi.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Laxdal, forstöðumaður
rekstardeildar Faxaflóahafna, í síma 5258900.
Þjóðskjalasafn Íslands, Hús 1 -
Endurbætur rishæðar
Útboð nr. 15780
Framkvæmdasýsla ríkisins, f.h. Mennta- og
menningarmálaráðuneytisins, óskar eftir tilboðum
í framkvæmdir við Þjóðskjalasafn Íslands, Hús 1,
en gera skal gagngerar endurbætur á rishæðinni
utan- og innanhúss.
Helstu magntölur eru:
Málmklæðning á þak 455 m²
Þakgluggar 23 stk.
Rif veggja, glugga og gólfefna 800 m²
Loftræsisamstæða 1 heild
Hjólastólalyfta 1 heild
Neyðarstigi í flóttaleið 1 heild
Vettvangsskoðun verður haldin 28. janúar kl. 14.00
að viðstöddum fulltrúa verkkaupa.
Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en
1. ágúst 2015.
Útboðsgögn verða til sýnis og sölu á kr. 3.500 hjá
Ríkiskaupum, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík frá og
með þriðjudeginum 20. janúar 2015.
Tilboðin verða opnuð hjá Ríkiskaupum 10. febrúar
2015 kl. 14.00 að viðstöddum þeim bjóðendum
sem þess óska.
Útboð nr. 20187
Þeistareykjavirkjun
Rennilokar
Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í renniloka
í stærðum DN50 til DN1000 samkvæmt
útboðsgögnum nr. 20187 „Gate Valves“ fyrir
jarðvarmavirkjun á Þeistareykjum í
Þingeyjarsveit.
Verkið felst í framleiðslu og afhendingu á
rennilokum fyrir Þeistareykjavirkjun.
Renniloka skal afhenda fyrir 28. ágúst 2015.
Útboðsgögn eru á ensku.
Útboðsgögn eru aðgengileg á útboðsvef
Landsvirkjunar http://utbod.lv.is
Tilboðum skal skila til Landsvirkjunar,
Háaleitisbraut 68, fyrir klukkan 12.00
þriðjudaginn 3. febrúar 2015 þar sem þau
verða opnuð kl. 14.00 sama dag og lesin upp
að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess
óska.
Kynningarfundur fyrir útboðið verður
haldinn í húsakynnum Landsvirkjunar,
Háaleitisbraut 68, fimmtudaginn 22. janúar
2015 kl. 14.00.
*Nýtt í auglýsingu
15649 Gegnumlýsingarbúnaður fyrir ÍSAVIA
ohf. Ríkiskaup fyrir hönd ÍSAVIA ohf. óska eftir til-
boðum í gegnumlýsingarbúnað.
Nánari upplýsingar er að finna í útboðsgögnum
sem eru aðgengileg á heimasíðu Ríkiskaupa
ww.rikiskaup.is.
Tilboð verða opnuð 23. janúar 2015 kl. 11.00 hjá
Ríkiskaupum.
15758 Stofnmæling hrygningarþorsks -
Netarall 2015. Ríkiskaup, fyrir hönd Hafrann-
sóknastofnunarinnar óska eftir tilboðum í leigu á
netabátum til að stunda netaveiðar í rannsóknar-
skyni og gagnaöflunar, tímabundið, vegna
mælinga á hrygningarstofni þorsks vorið 2015.
Nánari upplýsingar eru í útboðsgögnum sem eru
aðgengileg á vef Ríkiskaupa www.rikiskaup.is.
Opnunartími tilboða er 29. janúar 2015 kl. 11.00 hjá
Ríkiskaupum.
Hveragerðisbær
Útboð
Hveragerðisbær óskar eftir tilboðum í verkið:
SLÁTTUR OG HIRÐING
Í HVERAGERÐI
Verkið felur í sér slátt og hirðu á opnum
svæðum í Hveragerði. Markmiðið er að
grassvæði séu ávallt vel hirt og snyrtileg.
Verktímabil er frá 21. viku til og með 34. viku
ár hvert sem verksamningurinn nær yfir.
Verkið er boðið út til tveggja ára.
Heildar flatarmál grassvæða er 158.253 m²
og eru umhirðustig eftirfarandi:
1. stig – svæði slegin á 7 daga fresti.
2. stig – svæði slegin á 14 daga fresti.
3. stig - svæði slegin á 30 daga fresti.
4. stig – svæði slegin á 45 daga fresti.
Haldin verður kynningafundur á bæjar-
skrifstofu Hveragerðisbæjar fimmtudaginn
22. janúar kl. 14.00 og í framhaldi af honum
verður væntanlegum bjóðendum gefinn
kostur á að fara í vettvangsferð og kynna
sér umhirðusvæðin.
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi
frá og með mánudeginum 19. janúar. Þeir
sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa
samband við Ingibjörgu í síma 412 6900,
eða með tölvupósti á netfangið
utbod.sudurland@efla.is og gefa upp nafn,
heimilisfang, síma og netfang og fá í
kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti.
Tilboðum skal skila á bæjarskrifstofu
Hveragerðisbæjar fyrir kl. 14.00 fimmtu-
daginn 5. febrúar 2015, en þá verða þau
opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum
sem þess óska.
Umhverfisfulltrúinn í Hveragerði.